Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 21
hrekkjum og einelti og hvað börn geta gert ef þau eða aðrir verða fyr- ir einelti,“ segir Guðrún og tekur fram að sökum þessa falli námsefnið vel að Olweusar-áætluninni gegn einelti. „Í fimmta þættinum er rætt um breytingar, jafnt stórar sem smáar. Mesta og erfiðasta breytingin er þegar einhvern nákominn deyr. Þótt fullorðnum þyki oft erfitt að tala um dauðann þá sýna rann- sóknir að það sama á ekki við um ung börn. Þau fagna tækifærinu sem þarna gefst til að ræða á opin- skáan hátt um efni sem vefst fyrir mörgum fullorðnum. Sem lið í kennslunni er farið í vettvangsferð í kirkjugarð, en tekið skal fram að kennsluefnið er ekki trúarlegt,“ segir Guðrún og bendir á að mjög mikilvægt sé að náms- efnið sé kennt í réttri röð þannig að nauðsynlegur undirbúningur sé fyr- ir hendi þegar komi að þessum þætti námsefnisins. Í sjötta þætti kennslunnar er unnið með allt það sem á undan er komið auk þess sem börnunum er veitt viðurkenning fyrir þátttökuna. Morgunblaðið/hag Rætt um sorgina og aðskilnað Guðni Már Harðarson, prestur í Lindaprestakalli, tekur á móti nem- endum annars bekkjar Vatnsenda- skóla í vettvangsferð um kirkju- garðinn vegna Vina Zippýs. Daglegt líf 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010 VINIR Zippýs er alþjóðlegt for- varnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn sem Lýðheilsustöð hleypti af stokkunum árið 2005. Námsefnið var upphaflega þróað og forprófað í Danmörku á árunum 1998-1999 og frekari forprófun og innleiðing fór fram í Danmörku og Litháen árin 2000-2001. Árið 2002 tóku bresku góðgerð- arsamtökin Partnership for Child- ren við verkefninu og sjá þau um útbreiðslu þess. Námsefnið er í dag kennt í leik- og grunnskólum í 16 löndum, en þau eru auk Íslands, Bandaríkin, Brasilía, Bretland, Danmörk, Frakkland, Holland, Ind- land, Írland, Kanada, Kína, Lithá- en, Máritíus, Noregur, Pólland og Singapúr. Alls hafa um 420 kennarar frá alls 91 leik- og grunnskóla hér- lendis sótt námskeið í því hvernig kenna eigi námsefnið um Vini Zipp- ýs. Í mars 2008 sóttu 20 starfsmenn Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans námskeið sem nýtist yngstu skjólstæðingum deild- arinnar til að efla tilfinningaþroska þeirra og félagsfærni. Að minnsta kosti 6.500 nemendur hérlendis hafa nú þegar kynnst Zippý og vinum hans, en á heims- vísu má reikna með að nemendur skipti hundruðum þúsunda. Námsefnið er þróað fyrir 5-7 ára gömul börn en hægt er að nota efn- ið aftur og aftur, en þá sjá nem- endur oft aðra fleti á efninu í sam- ræmi við aukinn þroska. Vinir Engisprettan Zippý í hópi vina. Teikningin er hluti af námsefninu. Kennt í 16 löndum Glæsilegar nýjar vörur Kvenfatnaður Vor 2010 M b l1 17 80 95 Hæðasmára 4 - Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 - www.selena.is NÝTT KORTATÍMABIL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.