Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 19
Fréttir 19ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010 AÐDÁENDUR Thaksin Shinawatra, hins brottrekna forsætisráðherra Taílands, sletta mannablóði úr plast- pokum á hliðið á húsi Abhisit Vejjajiva, núverandi for- sætisráðherra, í Bangkok í gær. Áður hafði þeim tekist að brjótast í gegnum raðir lögreglumanna sem gættu hússins en hleyptu loks nokkrum mótmælendum að hliðinu. Ráðherrann og fjölskylda hans voru ekki í hús- inu. Þúsundir manna tóku þátt í aðgerðunum sem hafa staðið í fjóra daga og er markmiðið að þvinga Abhisit til að boða til nýrra þingkosninga. Þótt tugþúsundir manna hafa tekið þátt í mótmæl- unum hafa þau farið friðsamlega fram. Thaksin er í út- legð en sýndar hafa verið myndir af honum á stórum sjónvarpsskjám og hann flutt þannig ávörp til almenn- ings á útifundum. Reuters BLÓÐUGT EN ENGINN MEIDDIST Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HART er nú sótt að stjórnvöldum í Kína sem sögð eru auka á efnahags- vanda annarra ríkja með þvi að halda gengi gjaldmiðilsins, júansins, óeðlilega lágu. Ljóst er að lágt geng- ið gerir kínverskar útflutningsvörur ódýrari en ella. En keppinautar Kín- verja á mörkuðum eru ekki hrifnir. Kínverjar eru sakaðir um að mis- beita gengisskráningarvaldi sínu og öðlast þannig forskot. Margir bandarískir stjórnmála- menn og leiðtogar stéttarfélaga krefjast þess að reynt verði að hamla gegn innflutningi sem hreki dýrari, innlendan varning af markaðinum. Neytendur hugsa flestir meira um budduna en innlendu verksmiðju- störfin sem tapast. Þess vegna er krafist opinberra aðgerða til að vernda innlendu störfin, jafnvel tolla og annarra innflutningshamla. AGS styður Bandaríkjamenn Ríkisstjórn Baracks Obama hefur þegar látið að hluta undan þessum kröfum, m.a. með sérstökum álögum á innflutta hjólbarða frá Kína. En fullyrt er að hátt gengi júans- ins tefji nú fyrir bata í efnahag Bandaríkjanna. Í gær tók Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn, AGS, undir með ráðamönnum í Washington. „Gengi [júansins] er allt of lágt skráð,“ sagði Dominique Strauss-Kahn, yfirmaður AGS. Þar sem nú væri að komast aft- ur á jafnvægi í efnahag heimsins væri rökrétt að gengið hækkaði. Að sögn Financial Times hvetja Kínverjar nú fjölþjóðleg fyrirtæki til að styðja sig í baráttunni gegn verndaraðgerðum af hálfu Banda- ríkjastjórnar. Yao Jian, talsmaður ráðuneytis viðskipta í Peking, sagð- ist vona að „bandarísk fyrirtæki með starfsemi í Kína“ legðu sig fram um að ýta undir alþjóðaviðskipti og berj- ast um leið gegn verndarstefnu. Heimta að Kínverj- ar lækki gengið Stjórn Obama segir lága gengið tefja fyrir efnahagsbatanum Í HNOTSKURN »Þingmenn vestra vilja látakæra ríki sem skrá gengið allt of lágt á vettvangi Heims- viðskiptastofnunarinnar. »En hærra gengi júansinsgæti hins vegar hækkað verðlag í Bandaríkjunum. Fjárfestirinn og hagfræð- ingurinn Jim Rogers telur líklegt að dag- ar evrunnar verði taldir eft- ir 15-20 ár. Kom þetta fram í viðtali CNBC við Rogers í gær. Hann minnti á að menn hefðu áður gert tilraunir með mynt- bandalög en þær hefðu mistek- ist. Danski fréttavefurinn epn.dk rifjar í því sambandi upp Skandinavíska myntbandalagið frá 1873. Að því stóðu Svíþjóð og Danmörk og 1876 bættist Noregur við en bandalagið leystist í reynd upp í fyrri heimsstyrjöld. Rogers segir að menn verði að láta Grikkland fara í gjald- þrot, þá muni þjóðir heims sannfærast um að evran sé „al- vöru gjaldmiðill“. Evran ekki langlíf? Jim Rogers Fáðu úrslitin send í símann þinn Útsölumarkaður Verðlistans ...opnar í dag í Ármúla 44 (áður HP húsgögn). Opið mán.-fös. kl. 12-18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.