Morgunblaðið - 22.03.2010, Page 23
Menning 23FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2010
RAGNAR Bjarnason mun
syngja á tvennum tónleikum
með Stórsveit Suðurlands,
24. og 25 mars nk. Á fyrri
hluta tónleikanna mun sveit-
in leika ein og óstudd nokk-
ur lög, m.a. hefðbundin
swing-lög, samba og fönk.
Eftir hlé stígur Raggi á
stokk og tekur lagið með
sveitinni, slagara á borð við
„New York, New York“,
„My way“ og „All of Me“ og einnig lög sem
þjóðin þekkir vel í hans flutningi. Fyrri tón-
leikarnir verða haldnir í Hótel Selfossi og hefj-
ast kl. 20.30. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Þeir
seinni, 25. mars, verða haldnir í Iðnó kl. 20.30.
Tónleikar
Raggi Bjarna
með stórsveit
Ragnar
Bjarnason
BEBOPFÉLAG Reykjavík-
ur stendur fyrir bebop-
kvöldum í kjallara Kaffi Kúlt-
úra alla mánudaga. Í kvöld
verður tónlist hljómsveit-
arstjórans og píanóleikarans
Duke Ellington könnuð í tríó-
formi. Tríóið skipa Daníel
Friðrik Böðvarsson, gít-
arleikari, Þórður Högnason
kontrabassaleikari og Óskar
Kjartansson trommuleikari.
Tónleikarnir hefjast um kl. 21 og um klukku-
stund síðar verður öllum velkomið að spreyta
sig með tríóinu. Aðgangseyrir er 1.000 kr. en kr.
500 fyrir námsmenn. Þeir sem taka þátt í tón-
listarflutningnum fá miðann endurgreiddan.
Tónleikar
Tónlist Ellington á
Kaffi Kúltúra
Duke
Ellington
NÆSTKOMANDI mið-
vikudagskvöld, 24. mars,
hefst kammertónleikaröð
Félags íslenskra tónlistar-
manna í samvinnu við Nor-
ræna húsið. Flytjendur á
fyrstu tónleikum starfsárs-
ins eru ítalskir, Natalia
Benedetti klarínettuleikari
og Sebastiano Brusco píanó-
leikari. Þau munu flytja efn-
isskrá með vinsælum verk-
um fyrir klarínett og píanó eftir evrópsk og
bandarísk tónskáld. Brusco og Benedetti hafa
starfað saman um nokkurt skeið á alþjóðlegum
vettvangi. Aðgangseyrir á tónleikana er kr.
1.500 en ókeypis fyrir alla undir 21 árs aldri.
Tónleikar
Gestir frá Ítalíu í
Norræna húsinu
Sebastiano
Brusco
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
SÍÐASTLIÐIÐ fimmtudagskvöld var óperan
Parsifal eftir Wagner frumsýnd í Grand
Theatre í Genf. Meðal söngvara í sýningunni
er Þóra Einarsdóttir sem fer með hlutverk
blómastúlku. Þóra segir að frumsýningin hafi
gengið vel og verkinu verið mjög vel tekið.
Ánægðir áhorfendur
„Það var verulega mikil ánægja hjá áhorf-
endum í lokin og einstaklega gaman fyrir mig
að fá að taka þátt í svona miklu stórvirki eins
og þessi ópera er,“ segir Þóra. Hún hefur áður
sungið í öllum fjórum óperum Niflungahrings
Wagners, Rínargullinu, Siegfried, Valkyrj-
unum og Götterdämmerung. Nú bætist Parsi-
fal við.
„Þetta er frábær leið og mikil upplifun fyrir
mig til að kynnast meistaralegri tónlist Wag-
ners. Í byrjun ferilsins átti ég aldrei von á því
að eiga eftir að syngja í óperum Wagners því
ég taldi mig ekki vera með rödd í það. Ég er
þeim mun glaðari að uppgötva að það eru hlut-
verk í Wagner-óperum sem henta rödd minni.
Þótt það séu ekki aðalhlutverkin þá fæ ég að
vera með og kynnast tónlistinni.“
Skemmtileg klassatónlist
Í Parsifal er fjallað um leitina að hinum heil-
aga gral. Sýningin tekur um fimm og hálfan
tíma í flutningi, sem reynir bæði á flytjendur
og ekki síður áhorfendur. „Þetta er langur
tími en verkið er gríðarlega magnað og flott,“
segir Þóra. „Þegar kemur að Wagner verður
að sjá verkin í óperuhúsi og upplifa listformið.
Þá er nauðsynlegt að sleppa taki á tímanum,
og leyfa honum að líða hægt.“
Vart er hægt að ímynda sér ólíkari tónskáld
en Offenbach og Wagner, en Þóra þekkir tón-
list þeirra vel. Í Bretlandi er kominn út geisla-
diskur með óperunni Vert-Vert eftir Offenbach
en þetta er í fyrsta sinn sem heildarútgáfa af
þeirri óperu kemur út á diski. Þar syngur
Þóra hlutverk Mimiar, sem er aðalkvenhetja
óperunnar. Hún er saklaus stúlka sem fylgir
ástinni. „Þetta er mjög létt og skemmtileg tón-
list en það er mikill klassi yfir henni,“ segir
Þóra. „Offenbach var mikill snillingur. Ég get
vitnað í Atla Heimi um það að hann er einn af
mestu tónsnillingunum.“
Þóra mun syngja í sex sýningum á Parsifal í
Genf en kemur síðan hingað til lands á laug-
ardaginn fyrir páska og syngur daginn eftir í
páskamessu í Grafarvogskirkju.
Þetta er mikil upplifun
Þóra Einarsdóttir syngur í Parsifal í Genf
Frumsýningargestir voru hæstánægðir
Syngur á geisladiski í óperu eftir Offenbach
Þóra Einarsdóttir Svona lítur hún út í hlutverki sínu í Parsifal eftir Wagner.
Þóra Einarsdóttir stund-
aði söngnám við Söng-
skólann í Reykjavík hjá
Ólöfu Kolbrúnu Harð-
ardóttur og við Guildhall
School of Music and
Drama hjá Prof. Lauru
Sarti.
Þóra þreytti frumraun
sína að námi loknu við
Glyndebourne Festival Opera árið 1995.
Hún steig þó fyrst á svið Íslensku óp-
erunnar aðeins átján ára gömul í litlum
hlutverkum í Rigoletto og í Töfraflaut-
unni.
Þóra hefur sungið víða um heim við af-
ar góðar undirtektir og hlotið ýmsa styrki
og viðurkenningar fyrir söng sinn.
Söngkonan
Síðustu tónleikar Kamm-ermúsíkklúbbsins á þessumvetri fóru fram á laugardag.Óvænt flýtingin frá sunnu-
degi til laugardags dró að vísu úr að-
sókn yngri hlustenda eins og við
mátti búast; laugardagskvöld eru
jafnan erfið til tónleikahalds. Má að
auki rifja upp ummæli Sigurðar
Steinþórssonar tónskrárritara í sjón-
varpi fyrr um daginn að fjölgun spil-
ara virðist meira áberandi en verð-
andi hlustenda – sem undirritaður
vakti raunar einu sinni máls á í Af
listum. Neyzluvíma „góðærisins“ var
harla ólíkleg til að örva leit að tor-
fengnari en varanlegri lífsgæðum, og
þurfa grunnstoðir tónleikalífsins á við
KMK og SÍ því að huga grannt að ný-
liðun framtíðaráheyrenda, líkt og
gerist víða erlendis.
Langt er síðan blásarasveit hefur
fyllt heila kvölddagskrá innan vé-
banda KMK. Tilbreytingin var því
kærkomin og yfirbragðið almennt hið
hressilegasta. Enda hefur skemmti-
gildið viljað loða við listmúsík fyrir
tréblásara allt frá fyrstu tíð þegar
hún var oftast tengd utandyra veizlu-
haldi. Þótt ekki væru slík dæmi bein-
línis á dagskrá að þessu sinni skein
vínarklassískur skemmtiarfurinn
engu að síður í gegn í mörgum til-
vikum. Hvergi var dauft augnablik,
m.a. þökk sé fjölbreytni heilla sex
verka, allt frá 1783 til 1992, eftir jafn-
marga höfunda – og ekkert þeirra úr
hófi langt. Nýklassísk (raunar nýbar-
okkleg) „Kleine Kammermusik für
Bläser“ Hindemiths op. 24,2 frá 1922
var innblásin perla með aukakeim af
Stravinskíj í líflegum flutningi hóps-
ins. Verkið spriklaði af kerskni og
myndaði nærri götustrákslega and-
stæðu við kliðmjúkan Kvintett Danzis
(1763-1821) í g op. 56,2 frá 1822; sam-
tímamanns og vinar Beethovens er
var meðal frumkvöðla hinnar þá
splunkunýju áhafnargreinar fyrir
flautu, óbó, klarínett, horn og fagott.
Húmorinn seytlaði örlátt um Gö-
vertimento Þorkels Sigurbjörnssonar
fyrir félaga úr Sinfóníuhljómsveit
Gautaborgar (frumfl. 1992) í kitlandi
viðsnúningi á m.a. Pastoralsinfóníu
Beethovens – og pilsasviptandi Can
Can-þættinum(!) úr Orfeifi í undir-
heimum Offenbachs. Eftir hlé kom
hið allkunna stutta Trois pieces brè-
ves (1930) eftir Jaques Ibert. Ekta
franskt – og andagiftin samsvarandi
„yfirborðsleg, litrík og fyndin“ er
Oscar Wilde kvað hafa sagt að
„hversdagsfólk misskilji gjarnan sem
léttúð“ í óborganlegri tilvitnun tón-
leikaskrár.
Í kjölfarið fylgdi Adagio í B K411
(1783) Mozarts fyrir frímúrarastúku
hans í Vín; upphaflega fyrir tvö klar-
ínett og þrjú bassetthorn. Því miður
láðist að nefna umritarann fyrir blás-
arakvintett, en það spillti í engu fyrir
eðalfagurri túlkun þessa úrvals-
stykkis.
Loks kom að seinni götustrák
kvöldsins, Francis Poulenc, með
krassandi litríkri túlkun á Sextetti
hans fyrir píanó og blásara frá 1939.
Afbragðsverk þetta gat stundum
minnt á Prokofjev að angurværð og
reimleika, en spannaði annars geysi-
vítt tjábrigðasvið í eldsnarpri og sam-
stilltri túlkun Vovku og blásarahóps-
ins.
Hér fór smitandi spilagleði og
árangurinn var eftir því. Í einu orði
sagt: hörkugaman!
Bústaðakirkja
Kammertónleikarbbbbn
Verk eftir Hindemith, Danzi, Þorkel Sig-
urbjörnsson, Ibert, Mozart og Poulenc.
Blásarakvintett Reykjavíkur (Hallfríður
Ólafsdóttir flauta, Daði Kolbeinsson
óbó, Einar Jóhannesson klarínett, Jósef
Ognibene horn og Hafsteinn Guð-
mundsson fagott) ásamt Vovku Ashke-
nazy píanó. Laugardaginn 20. mars kl.
20.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Hörkugaman!
Morgunblaðið/Golli
Smitandi spilagleði Blásarakvintett Reykjavíkur ásamt Vovka Ashkenazy.
FJÖRUVERÐLAUNIN –
bókmenntaverðlaun
kvenna, voru veitt í fjórða
skipti í gær, fyrir bækur
sem komu út í fyrra. Verð-
launahafi í flokki fag-
urbókmennta var Ingunn
Snædal fyrir ljóðabókina
Komin til að vera, nóttin;
verðlaun í flokki fræðirita
hlaut Þórdís Elva Þorvalds-
dóttir fyrir bókina Á
mannamáli. Tvær bækur hlutu verðlaun í
flokki barna- og unglingabóka: Arngrímur
apaskott og fiðlan eftir Kristínu Arngríms-
dóttur og Aþena (ekki höfuðborgin í Grikk-
landi;) eftir Margréti Örnólfsdóttur.
Bókmenntir
Fjórar hlutu
Fjöruverðlaun
Margrét
Örnólfsdóttir