Skólablaðið - 01.04.1962, Blaðsíða 5
89 -
Busablað
"Það hvimleiða fyrirbæri 3.bekkjar','
eins og segir á einum stað í blaðinu,
leit dagsins ljós í öndverðum marzmán-
uði. Svífur þar nálega sami andinn yfir
vötnunum og í þeim busablöðum, er und-
anfarin ár hafa verið gefin út, semsé,
að efribekkingar séu fullir fyrirlitningar
á vesælum busum etc. Menn minnast í
þessu sambandi "Saltarans", sem Einar
Már ritstýrði og "Spjailara" Júníusar 1
fyrra. Nú hafa þeir ex-editorar eflaust
lúmskt gaman að öllu sjálfstæðisbröltinu.
í mína tið kom ekkert busablað út;
þá miðluðu busar Skólablaðinu af anda-
gift sinni. Hins vegar gaf hinn fram-
takssami 3.bekkur D þá út vélritað
bekkjarblað, sem límt var upp um veggi
og hét "Veggjalúsin". Var það firna^ott
blað og dafnaði vel, enda stóð að því
Markús Antonsson, hinn kunni blaðamað-
ur og fótógrafer hjá Mbl. Er snepillinn
nú f varðveizlu bókasafnsins.
CJm efni "Busans" ætla ég ekki að
fjölyrða. Ef að vanda lætur,. verður
hann "virtur viðtals" annars staðar hér
í blaðinu og fær þá sinn skammt þar.
Garpar f vxgamóð
Það er misskilningur hjá ritstjóra
busablaðsins, að gangáslagir séu úr sög-
unni. Þeir eru eingöngu iðkaðir af efri-
bekkingum, og fær ritstjórinn því vænt-
anlega að kynnast þeim næsta vetur.
Menn minnast tveggja stórátaka f vetur :
Fyrri rimman varð hálf snubbótt; hún
endaði semsé með því, að 5. bekkingur
sleit niður bjölluna eftir að hafa dinglað
f henni dágóða stund.
SíÓari rimman mun lengi í minnum
höfð fyrir sakir hreystilegrar framgöngu
4. og 5. bekkinga. Var Gunnar Jónsson
fremstur í flokki varnarliðsins og sat á
gildum herðum Einars Bollasonar.
Eggjaði hann menn sína svo óspart, að
ógn stóð af. Um síðir fengu þó 6.bekk-
ingar rofið hina traustu breiðfylkingu og
áður en varði kom einn þeirra svffandi
af himnum ofan og þreif í kólf bjöllunn-
ar. Lauk þar með einhverjum þeim
grimmilegasta gangaslag, sem sögur fara
af.
Biðraðir
Sú siðvenja hefur tíðkast í íþöku f
vetur, þá er frimfnútnasala fer fram, að
nokkrar sálir hafa ætíð þyrpzt að sölu-
gatinu, án þess að fara f röð, eins og
lög gera ráð fyrir. Þeim, er stillt hafa
sér upp og beðið tímunxxm saman, hefur
að vonum gramizt þetta mjög, og enda
þótt formælendur raðverja með hinn
tungulipra Gunnar Jónsson í broddi fylk-
ingar hafi látið mjöð óðlega um, að
sauðum þessum verði bægt frá, hefur það
ætfð verið eins og að skvetta vatni á gæs.
Skapar ásókn þessi skiljanlega kaos
mikið umhverfis gatið og peningabaukinn,
enda hefur margur sakleysinginn fengið
kakógusu á klæði sín, t. d. snyrtimennið
ölafur R. Grímsson.
Vonandi tekst félagsheimilisnefnd,
sem staðið hefur vel í stykkinu í vetur
undir röggsamri stjórn Guðfinnu, að ráða
hér bót a.
Nýtt embætti?
Karlpenin^ur skólans hefur gerzt ali
aðsópsmikill í eldhúsinu f íþöku í vetur,
enda tilgangurinn augljós. Er það mál
manna, að þá gangi afgreiðsla öll helm-
ingi fljótar og brauðmeti sé yfirleitt
mun kræsilegra, enda er þá hvorki ostur
né smjör skorið við nögl. Þykir IV. - B
skara fram úr f þessum efnum, að ég
tali ekki um hinn ágæta V.-B.