Skólablaðið - 01.04.1962, Blaðsíða 7
91
Þegar við höfðum rétt komið út fyrra
tölublaði ''BUSANS", tveim dögum fyrir
miðsvetrarpróf, kom stóri broðir
"SKÖLABLAÐIÐ", fyrir almenningssjónir
1 þriðja sinn á þessum vetri.
Það er alltaf gaman að sjá nýtt Skóla-
blað, alltaf einhver eftirvænting. En hve
lengi getur vont versnað? Ég held að
lengra verði varla komizt, ekki innan
M.R. , sem hefur á að skipa 700 nem-
endum, sem flestir myndu skrifa, væru
þeir hvattir til þess. Blaðið er með
allra þynnsta móti, yfirfullt af leiklistar-
gagnrvni manna, sem lítið eða ekkert vit
hafa a. Þáttinn "leiklist" hefði mátt
fylla með annari greininni af hinum
tveimur.
Flestir eru einnig orðnir leiðir á
viðtölum við ölaf R. Grímsson, þó að
maðurinn sé hreint afbragð og Einar Már
sé vel pennafær, þá er of mikið að eyða
þremur síðum í þá kumpána.
I ritstjórnargreininni, Editor Dicit, kem-
ur skýrt fram lestrarhneigð tittnefnds
Sverris og velvilji hans gagnvart bóka-
safninu og sé það í lagi, en hann hefur
ekki umboð til að úthúða dansinn og
hljóðfæraleikinn í íþöku. Ef þeirra hljóð-
færaleikara, sem þar hafa lagt fram
vinnu í vetur, hefði ekki notið við,hefðu
dansiböllin verið ærið fámenn og þar af
leiðandi íþaka á hausnum efnahagslega,
en dansinn er nú svotil það eina, sem
félagslíf í M.R. býður upp á.
Forstandsmenn "SKÖLABLAÐSINS"
hafa, að þvf er mér virðist, misskilið
hvort tveggja : hlutverk sitt og tilgang
"Skólablaðsins". Tilgangur "Skólablaðs-
ins" er þrískiptur. I. Þar á að koma
fram efni FRA NEMENDUM, sem getur
verið margþætt: smásögur, ritgerðir,
ljóð, ferðasögur og fleira. II. Þar á
að koma fram efni UM NEMENDUR, efni
eins og slúðurdálkarnir Quid Novi og
Blekslettur, einnig ritdómar og önnur
gagnrýni. III. Efni til nemenda. Alls-
kyns boðskapur og bréf, sem hinar
mörgu deildir félaganna í skólanum þurfa
að koma fyrir sjónir nemenda, rit-
stjórnargreinar og fleira. Sé þessu
blandað hæfilega saman held ég að til-
gangi skólablaðsins sé náð.
Það er alger smekkleysa að eyða
allt að 7 síðum ( af 28 ) í blaðinu undir
fyrrnefnda leikgagnrýni, tveim undir lé-
legar skopmyndir, þá vel á minnst.
Hvaða erindi átti mynd Vilhj. Eyþ. í
SKÖLABLAÐIÐ ? Auglýsing? Skrýtla?
Ég hef ekki ennþá séð nemendur með
flösku í lúkunum í tfmum eða kjams-
andi á kvenmannskjömmum á fremsta
borði. ( Ef Vilhj. Eyþ. heldur að hann
geti teiknað Alfred E. Neumann (kannske
með reglustiku eins og annað á mynd-
inni ), þá getur hann selt sfnar "græjur"
strax ! ). En nóg um það.
í blaðinu er þó ýmislegt, sém stend-
ur fyrir sínu. Til dæmis er Quid Novi
Baldurs Símonarsonar alveg f hinum
rétta anda, sem á að vera f hverju
Skólablaði. Baldur er með snjallan
mönnum hvað snertir blaðamennsku.
Grein E. H. um fjárstyrkina er athyglis-
verð og nauðsynleg. Það er altalað
mál, að margir þeir, sem hljóta styrki,
sjást á "SKALLA" með "bokku" strax
að úthlutun lokinni ( þó að þeir notist
við "spíra" þess á milli), Þeir, sem sjá
um úthlutun, eiga að athuga efnahag
þeirra nemenda, sem eru utanbæjar-
menn og þurfa að greiða allt viðuryæri
( húsnæði, fæði, bækur, skólagjöid, þjón-
ustu ) úr eigin vasa.
Blekslettur Þ. B. standa fyrir sínu.
íþróttaþáttur er nauðsynlegt fyrirbæri í
hverju Skólablaði. Sá hópur nemenda,
sem stundar íþróttaiðkun jafnframt námi,
fer alltaf vaxandi og sé það vel.
Þá er það grein I. H. "Frá liðnu sumri'.1
Greinin er dável skrifuð. Það mun nú
Frh. á bls. 110.