Skólablaðið - 01.04.1962, Page 11
95 -
hitti Fúsa og alla hina gæjana. Þeir
höfðu þegar drukkið eina blöndu og sumir
voru farnir að twista eftir eigin söng.
Og við héldum til íþöku. Ég var látinn
smygla inn víninu, því ég var svo feitur,
sögðu strákarnir, að engu munaði þó ég
bætti ixm á mig nokkrum flöskum af
7. -up. Ég laumaðist inn með vínið og
faldi það 1 sturtukassanum á klósettinu,
og svo byrjaði ballið.
Kvennafar? A slíkum góukvöldum
fara allir á kvennafar. Ég fór líka á
kvennafar, hún var engin smásmíði stúlk-
an sú, og þegar við höfðum tvwistað og
rokkað okkur þreytt, þá fórum við upp
á loft, þar sem Guðmundur heldur orgíur.
og kysstumst, og hún beit mig í i;eðri
vörina, og ég beit hana í timguna,- og
við drukkum brennivín í 7. -up og það
var svo gaman.
íþökuloftið er vinsæll staður á laug-
ardögum, þangað sækir unga fólkið, þeg-
ar því er orðið kalt á að rokka og
twista til að sækja hita hvort á annars
líkama. Þar eru básar, og stundum eru
mörg pör í bás, ég og hún vorum í
næsta bás við Tómas. Hallfríður var í
básnum beint á móti. Þetta er fyrir-
fólk.
En skyndilega var sem drægi ský
fyrir sólu og allt varð svo hræðilegt.
Magnús kom og strauk á sér nefið og
sagði : " Þú ert drukkinn, út með þig, "
ég fór að gráta, og sýndi Magnúsi fram
á það, að enginn yrði fullur af einni
blöndu, og máli mínu til sönnunar sýndi
ég honum að 7.-up flaskan var tóm
En Magnús var þrár og sagði: "Þú ert
drukkinn, út með þig, ,rog það fór allt
f háa loft og öll félagsheimilisnefndin
kom og sagði: "Þú ert drukkinn, út
með þig. " En svo kom Guðmundur og
hann bjargaði öllu, því hann sagði, að