Skólablaðið - 01.04.1962, Side 20
- 104 -
Körfuknattleikur
Körfuknattleiksmót í. F.R.N. var háð
dagana 16., 17. og 19.febrúar í íþrótta-
húsi Háskólans. í mótinu tóku þátt 20
lið frá 15 skólum. Tókst mótið mjög vel
í alla staði. M.R. sendi lið til keppni í
öllum þremur flokkum (þ. e. I. og II.
flokk karla og kvennaflokk ), og bar M. R.
sigur úr býtum bæði f I. fl. karla og
kvennaflokki, en það er ágætur árangur.
Skal nú skýrt nánar frá úrslitum f hverj-
um flokki fyrir sig.
Keppni f II. fl. karla (3.bekkur) var
geysihörð og tvfsýn. M.R. gersigraði
fyrst G. Austurbæjar með 39:10 og
keppti síðan við Verzlunarskólann í und-
anúrslitum. Var sá leikur mjög tvfsýnn
og munaði aldrei meira en tveimur eða
þremur stigum á liðunum, en í hálfleik
var jafnt 22 : 22. Verzlunarskólamenn
reyndust þó drjúgari, er á leið, og sigr-
uðu með 34:31 eftir góðan leik. Þá var
úti sá draumur, aðM.R. sigraði í öllum
flokkum. Verzlunarskólinn sigraði að
lokum Vogaskólann í úrslitaleik og vann
þar með þann flokk.
Stúlkurnar sigruðu G. Vesturbæjar
auðveldlega. Léku þær sfðan úrslitaleik
við Hagaskóla ( sigurvegarar frá í fyrra)
og sigruðu f geysitvísýnum leik með
8:7. Unnu þær fagran bikar, sem Bene-
dikt Jakobsson hafði gefið, fyrsta sinni.
Mikill munur var á getu liða f I.fl.
karla. M. R. sigraði alla andstæðinga
sína með yfirburðum, Menntaskólann á
Laugarvatni með 81 : 50, Iðnskólann með
84:37 og Verzliínarskólann með 92:73.
Hlaut liðið að launum fagran bikar, er
rektor Menntaskólans í Reykjavík,Krist-
inn Armannsson, hefui- gefið, en nú var
keppt um bikarinn í fyrsta sinn.
Eigi verður hér rætt um einstaka
liðsmenn né getu þeirra, utan Þorsteins
Hallgrfmssonar, en hann stuðlaði öðrum
fremur að sigri M.R. f I. flokki. Svo
mjög bar Þorsteinn af öðrum leikmönn-
um liðsins og raunar öllum, er þátt
tóku í mótinu, að unun var á að horfa.
Þau fjögur ár, er hann hefur stundað
nám hér f skóla hefur hann tvisvar sinn-
um verið valinn í landslið íslands, f
seinna skipti fyrirliði þess, íslands- og
Reykjavíkurmeistari f. R. hefur hann og
verið síðastliðin 3 ár, og allan þann
tíma hefur hann borið uppi körfuknatt-
leikslið M.R. og leitt það til margs sig-
urs. A þeim tmaa hefur lið M. R. fimm
sinnum unnið mót f. F.R.N. og auk þess
sigrað á Laugarvatni og Akureyri.
Aðeins einn leikur hefur verið tapleikur,
þ. e. gegn Háskólanum síðastliðinn vetur.
Núna, þegar Þorsteinn er að hverfa á
bratit úr skólanum, langar mig til þess
að þakka honum góða kynningu, bæði f
leik og utan leikvallar, svo og ómetan-
legt framlag hans til körfuknattleiksins
f þessum skóla.
Sigurvegarar M. R. voru : Kvennafl. :
Hrafnhildur Skúladóttir 4. -A, fyrirliði
Margrét Snorradóttir 4. - A
Margrét Georgsdóttir 4.-Y
Þóra Asgeirsdóttir 4.-T
Erla Björnsdóttir 4.-E
Guðrún Svavarsdóttir 3.-L
Vilborg Bjarnadóttir 3.-A
I. fl. karla:
Einar G. Bollason 5. -B, fyrirliði
Þorsteinn Hallgrímsson 6.-X
Einar Hermannsson 6.-Y
Guttormur ölafsson 4.-B
Þorsteinn ölafsson 3.-H
Agnar Friðriksson 3.-C
Körfuknattleiksmóti skolans lauk
fyrir skemmstu. Það dróst allverulega
á langinn, og kom þar margt. til, mót
f. F.R.N. , skfðaferðir, miðsvetrarpróf