Skólablaðið - 01.04.1962, Síða 27
- 111 -
út, hvað þá að safria efni. Læt ég hér
staðar numið.
Björn Bjarnason 3.-C.
NtTÍMATONLIST. . . frh. áf bls. 99.
Nútíminn hvílir á mjög gömlum for-
sendum,svo sem kristni, afdönkuðum heim-
spekikerfum og stjórnmálastefnum, sem
byggðar eru á átjándu og nítjándu aldar
efnishyggju. Þessi efnishyggja hafði mjög
takmarkaðan skilning á manninum, og sá
skilningur er að koma okkur í koll núna.
Það sannast áþreifanlega í deilum stórveld-
anna. Nútíminn verður að breyta forsend-
um sínum, og nýr skilningur á manninum
verður að koma fram. Ég held, að nýrri
stefnur í listum geti vfsað mönnum veginn
að þeim skilningi. Listirnar eru nú miklu
óhlutstæðari en áður og betur til þess falln-
ar að sækja djúpt inn í manninn en gamal-
dags realismi og naturalismi. Gildi listar-
innar er fólgið í því, að ekki er hægt að
rökræða hana. Picasso segir á einum stað,
að listin sé lygi. En einmitt með þeirri
lygi skynjum við sannleikann. "
Nú var klukkan orðin nokkuð margt,og
ég stóð upp til að fara. Að skilnaði lánaði
Þorsteinn mér Lyrísku svituna og sagði :
"Þessi tólf tóna músik er stórkostleg, í
rauninni byggist hún á hreinni stærðfræði."
Og svo gekk ég niður stigann meðan
fótónurnar stigu léttan dans í kringum mig.
Einar Már.
BUSINN, frh. af bls. 101.
stundum skrúðmælgi. " Síðan ræðir Sig.
Sig. um menningarmál og frið, af orð-
gnótt mikilli og stundum af skrúðmælgi.
Síðan er grein S. Aðalsteinssonar,
er kallast "Hugsum okkur um". Frum-
leg tillaga og nýstárleg, sem við styðjum
af heilum hug.
Greinin Nýji skólinn ( hvers vegna
ekki skólinn lika með j ) er stórmerkileg.
Heyrzt hefur á götuhornum, að Sólon
þessi og Tryggvi Karlsson hafi í hyggju
að stofna nýjan stjórnmálaflokk, sem
mun eiga að heita Architectural
Rearmament.
A víð og dreif í blaðinu eru pistlar,
sem á góðri íslenzku nefnast bjálfafyndni,
en ekki 5 aura brandarar.
Fyrir þá, sem hafa gaman að aug-
lýsingum er blaðið hreinasta Paradís.
Einnig hlýtur prentvillupúkinn að
hafa lagt mikla vinnu í að misþyrma
fslenzku máli og stafsetningu jafn hroða-
lega og raun ber vitni.
N. B. Það er óskammfeilin hauga-
lygi hjá útgefendum ritsins að nefna
' Busann" 3.bekkjar blað. Þriðjubekk-
ingar hafa aldrei gefið Birni Björnssyni
og hans nótum umboð til að gefa út
blað x nafni þriðja bekkjar. Takist þess-
um fuglum að kukka út öðru riti er
þeim hollast að nota sín eigin nöfn, án
þess að bendla allan 3. bekk við það
fyrirtæki.
Þráinn Bertelsson
Jón Gíslason
Til að forðast misskilning vil ég
taka fram, að Jón Gíslason ritaði dóm-
inn um grein mína í Busann.
Þráinn Bertelsson
SKÝ YFIR HELLUBÆ, frh. af bls. 102.
þandist út eins og hellt væri úr hveiti-
sekk í roki og það fór að rigna.
En þá voru allir löngu gengnir til náða
á Hellubæ, nema elskendurnir, sem
vöktu upp á hlöðulofti og horfðu á hvít-
fyssandi rigningarvatnið steypast niður
um naglagat á þakinu.
Böðvar Guðmundsson.
SIGURKARL STEFANSSON
yfirkennari
átti sextugsafmæli fyrir skemmstu .
Skólablaðið vill þakka honum langt
og farsælt starf við skólann og óska
honum allra heilla í framtíðinni.
Hans verður nánar getið í næsta
Skólablaði.
Ritnefnd.