SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Side 6

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Side 6
O ft þarf ekki nema örlítið frávik til að búa til brandara. „Ég vil fá hótelher- bergi,“ sagði Peter Sellers í hlutverki franska lögregluvarð- stjórans Clouseaus og salurinn sprakk af hlátri og aftur skömmu síðar þegar hann var- aði við „bömbu“. Blake Edwards leikstýrði myndunum um bleika pardus- inn og átti reyndar leik- stjóraferil, sem spannaði hálfa öld. Edwards lést á miðvikudag 88 ára að aldri. Hann hefur verið kallaður meistari gamanmynd- anna og arftaki Chaplins. Myndir Edwards voru af ýmsum toga, en húmorinn var aldrei langt undan þótt stund- um væri hann grár. Gagnrýn- andinn Andrew Sarris skrifaði árið 1968 að Edwards hefði „stundum kallað fram mesta hláturinn með bröndurum, sem voru of skelfilegir fyrir flestar hryllingsmyndir“. Edwards sló fyrst í gegn með Breakfast at Tiffany’s, sem byggð var á sögu Trumans Capotes með Audrey Hepburn í aðalhlutverki í stuttum svörtum kjól. Árið 1962 gerði hann mynd- ina Dagar víns og rósa þar sem Jack Lemmon, sem hann sagði skemmtilegasta leikarann að vinna með, og Lee Remick leika hjón í baráttu við drykkjusýki. Lemmon mun hafa fundist handritið svo nöturlegt að það myndi aldrei virka án leikstjóra, sem gæti blandað smáhúmor inn í myndina. Fyrsta myndin um bleika pardusinn var frumsýnd árið eftir og sló strax í gegn og ekki skemmdi seiðandi tónlist Hen- rys Mancinis fyrir. Edwards og Sellers munu hafa tekist á við tökur myndarinnar. Á endanum leyfði leikstjórinn leikaranum að gera varðstjórann að klunna og um leið miðpunkti sögunnar. Edwards og Sellers gerðu sjö myndir saman milli 1964 og 1978, en samkomulagið á milli þeirra fór versnandi. Þegar Sell- ers lést árið 1980 var Edwards farinn að vinna að nýrri mynd um bleika pardusinn þar sem Sellers kom hvergi við sögu. „Peter Sellers varð að skrímsli,“ var haft eftir Edwards á kvik- myndavefsíðunni imbd. „Hann varð einfaldlega leiður á hlut- verkinu, reiður, fúll og ófagleg- ur.“ Seint á sjöunda og í upphafi áttunda áratugar liðinnar aldar gerði Edwards nokkrar myndir, sem náðu engum vinsældum. Í nokkur ár fór hann í sjálfskipaða útlegð, en sneri aftur og komst á skrið á nýjan leik með þremur myndum um bleika pardusinn og myndinni 10 með Bo Derek og Dudley Moore árið 1979. Sú mynd sló í gegn og Edwards þótti ekki verra að hún var byggð á handriti, sem hann gerði og forseti MGM, James Aubrey, hafði hafnað nokkrum árum áður. Hann var til- nefndur til Óskars- verðlauna fyrir þá mynd, en eini Ósk- arinn, sem hann fékk var fyrir ævi- starfið árið 2004. Aftur sló Edwards í gegn 1982 með mynd- inni Victor/Victoria og reyndist það síðasta skiptið þótt myndirnar yrðu fleiri. Þar lék eiginkona hans, Julie Andrews, söngkonu á horriminni, sem þykist vera samkynhneigður pólskur greifi, sem treður upp í kvenmannsgervi. Edwards og Andrews gengu í hjónaband árið 1969 og voru þau gift í 41 ár. Edw- ards var þá nýskilinn við leikkonuna Patriciu Walker. Andrews er vitaskuld þekkt- ust fyrir leik sinn í kvik- myndinni Söngvaseiður. Edwards lýsti því í samtali, sem þau hjónin fóru í við Playboy árið 1982, að áður en þau kynntust hefði hann fengið fólk til að hlæja í samkvæmi þar sem gestir voru að velta fyrir sér ástæðunni fyrir stórkostlegri velgengni Andrews með því að segja: „Ég veit ná- kvæmlega hvað býr að baki. Skapahár hennar eru gerð úr liljum.“ Í viðtalinu kvaðst hún hafa sent honum blómvönd úr liljum í upphafi tilhugalífsins. Edwards fékk eiginkonu sína til að taka að sér hlutverk á skjön við hina heilbrigðu Söngvaseiðsímynd og í mynd- inni S.O.B. beraði hún meira að segja brjóstin fyrir mann sinn. „Hann var einstakasti maður, sem ég hef kynnst … Orð fá ekki lýst söknuði mínum og hann verður alltaf í hjarta mínu,“ sagði Andrews við andlát manns síns. Blake brugðið Blake Edwards, meistari gamanmyndanna, látinn Audrey Hepburn í svarta kjólnum. Getty Images Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Í myndinni 10 sér Dudley Moore hinni fögru Bo Derek bregða fyrir á 42 ára afmælinu og allt fer á ann- an endann í lífi hans. Peter Sellers var óborg- anlegur í myndunum um bleika pardusinn. 6 19. desember 2010 Blake Edwards sagði í viðtali við The New York Times árið 2001 að hann hefði strítt við þunglyndi allt sitt líf og er það rifjað upp í minningargrein blaðsins um leik- stjórann. Eitt sinn var hann svo langt niðri að hann var í „sjálfs- morðshugleiðingum“. Honum fannst of subbulegt að skjóta sig og ekki nógu öruggt að drekkja sér þannig að hann ákvað skera sig á púls á ströndinni við Mal- ibu á meðan hann horfði út á hafið. Þar sem hann sat með rakvél með tvíeggjuðu blaði byrj- aði annar hundurinn hans að sleikja á honum eyrað og hinn setti bolta í kjöltu hans og vildi fara að leika. Edwards kastaði boltanum til að losna við hund- inn og fór um leið úr axlarlið og missti rakvélina. „Ég hugsaði með sjálfum mér að þetta væri ekki dagurinn til að fremja sjálfs- morð,“ sagði hann. Þegar hann reyndi að taka rakvélina upp steig hann á hana og endaði á slysavarðstofunni. Farsakennd atriði af þessum toga eru í mörgum mynda Ed- wards. Í myndinni S.O.B. er kvik- myndaleikstjóra fyrirmunað að fremja sjálfsmorð, en þegar hann loks slær í gegn lætur hann lífið. Lífið er alvara en farsinn aldrei langt undan Blake Edwards ásamt konu sinni, leikaranum Julie Andrews, árið 2004. Getty Images ódýrt og gott Krónu hamborgarhryggur 989kr.kg

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.