SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Blaðsíða 41
19. desember 2010 41
Michael Jackson-teppi - Vík Prjónsdóttir
„Góð ullarteppi eru nauðsynleg á hverju heimili. Því var það mikið
gleðiefni þegar Vík Prjónsdóttir tók að sér að skapa einstök æv-
intýrateppi fyrir sófa og fleti landsmanna. Þetta teppi, gjarnan kallað
Michael Jackson-teppið, hentar öllum, konum og körlum.“
Fæst í Spark Design Space, Klapparstíg 33.
Bindisnæla - Aurum
„Það eru ekki margir skartgripir og fylgihlutir sem karlmenn geta notað og því var hönnun
Guðbjargar Ingvarsdóttur á línu fyrir karlmenn einkar kærkomin síðastliðið vor. Bindisnælan
er mjög falleg, smágerð í fjarska, einmitt eins og þær eiga að vera í dag, en gróf þegar nær
er komið.“
Fæst í versluninni Aurum, Bankastræti 4.
Thy will be done eða Verði þinn vilji - Sruli Recht
„Þetta er mjög vönduð dagbók, bundin í leður, eftir Sruli Recht sem mér þykir
afar spennandi hönnuður. Bókin kostar um 3000 kr. og hægt er að nálgast
hana t.d. á netinu, srulirecht.com. Mér þykir hugmyndin að þessari hönnun
svo falleg að ég get vel ímyndað mér að allt sem ég skrifa í þessa bók verði
að veruleika.“
Fæst í Spark Design Space, Klapparstíg 33 og í Vopnabúrinu, Hólmaslóð 4.
Apparat-diskurinn
„Flottasti geisladiskurinn í ár er
frá Apparat orgelkvartett, bæði
tónlistin og svo auðvitað um-
slagið sem er vel hannað af
Sigga Eggertssyni. Ef ég fæ
hann ekki sjálf þá ætla ég að
minnsta kosti að skutla honum í
pakkann til einhvers annars.“
úans undir jólatréð
Annað sem var nefnt:
Skartgripatré eftir Hrafn Gunnarsson, The Lava Cube of Fire frá Secet North, Bentey-
stóll eftir Ragnheiði Ösp Sigurðardóttur, skartgripir eftir Dýrfinnu Torfadóttur, Sprelli-
Gnarr eftir Margréti Guðnadóttur, Blik prjónaflíkur eftir Laufeyju Jónsdóttur, Traktor-
inn hans Villa eftir Manfreð Vilhjálmsson, Starkaður, snagi eftir Tinnu Gunnarsdóttur,
Geirfuglinn, kerti eftir Snæfríði Þorsteins og Hildigunni Gunnarsdóttur, Jólaskeiðin
2010 eftir Hönnu Sigríði Magnúsdóttur, Íslenskir fuglar eftir Hafþór Ragnar Þóhallsson,
Jakki frá Ýri, Leir- og postulínslínan frá Kristbjörgu Guðmundsdóttur, Sasa-klukkan
eftir Þórunni Árnadóttur, Berjalyng frá Bility, Hárskraut frá Telmu, skartgripir frá Orr.
Hásokkar - Royal
Extreme
„Elska allt frá Royal Ext-
reme. Sokkarnir erum með
þykkri fléttu framan á og
kögri efst sem kemur þá að-
eins undan kjólnum. Þessir
sokkar geta bæði verið sexí
og dúllulegir. Fullkomnir í
jólapakkann, held að flestar
stelpur langi í þá!“
Fæst í verslun Royal Ext-
reme, Bergstaðastræti 4.