SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Blaðsíða 34
34 19. desember 2010
T
vær merkilegar tilvitn-
anabækur eru komnar út.
Annarsvegar er það Tilvitn-
anabókin sem Kolbrún Berg-
þórsdóttir safnaði í og hinsvegar Kjarni
málsins sem Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson tók saman. Bók Kolbrúnar er
handhægari enda tæplega 400 síður á
lengd meðan bók Hannesar er tæplega
1000 síður. Kolbrún er með þúsundir
snjallyrða hvaðanæva úr heiminum og
nýtir sér þónokkuð nútímaskáldskap
og jafnvel barnabókahöfunda. Bók
Hannesar er klassískari og er stofninn
úr Íslenskum tilvitnunum sem hann
gaf út fyrir fimmtán árum. Blaðamaður
Morgunblaðsins hitti höfundana saman
á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur. „Já, ég
notast við þessa bók sem ég gaf út fyrir
fimmtán árum sem stofn en það lætur
nærri að verkið hafi þrefaldast síðan
þá. Ég reyndi að bæta við tilvitnunum í
konur og í höfunda frá öðrum mál-
svæðum en hinu enska,“ segir Hannes.
Bæði Kolbrún og Hannes skoðuðu vel
aðrar tilvitnanabækur sem komið hafa
út einsog Oxford Dictionary of Quota-
tions, New Dictionary of Quotations og
fleiri þekktar bækur áður en þau settu
sínar saman. „Þetta eru samt mjög
ólíkar bækur,“ segir Kobrún. „þótt
sumt sé eins. Til dæmis notumst við
bæði mikið við snjalla menn einsog
Jónas Hallgrímsson og Sigurð Nordal.
En auk þess að nota gamla klassík
reyndi ég mjög meðvitað að koma að
sem mestu af nútímaskáldskap og huga
að barnabókahöfundum. Ég vildi líka
að bókin yrði skemmtileg. Ég hef alltaf
haft mjög gaman af því að vera innan-
um skemmtilegt fólk. Ég held að það sé
ein ástæðan fyrir því að dálæti mitt á
Oscar Wilde hefur aldrei minnkað, al-
veg frá unglingsárunum. Hnyttnar og
skemmtilegar setningar hafa alltaf glatt
mig,“ segir Kolbrún.
„Já, ég einbeiti mér að þjóðlegum
fróðleik og alþjóðlegum í bókinni,“
segir Hannes. „Ég hef unnið að þessu í
fimmtán ár og það hafa margir komið
að þessari vinnu. Mér fannst áhugavert
við gerð bókarinnar hvað vandamál
mannlegrar tilveru eru oftast lík, jafn-
vel kynslóða á milli. Þjáning mannsins
er svipuð, angist hans og gleði. Annað
sem tók mikinn tíma hjá mér var að
feðra tilvitnanir rétt en fyrir vikið er
bókin miklu betri en internetið til að
finna ummæli eða réttfeðraðar tilvitn-
anir. Bókin er ansi nákvæm og sagt frá
ýmsum augljósum líkingum á ljóðum
Steins Steinarr við ljóð Jensens og fleira
slíkt sem ekki hefur komið áður fram.
Ég vil taka það fram að það gerir Stein
ekki að síðra skáldi þótt hann hafi verið
undir áhrifum frá öðrum.“
Ólíkir vinir
Kolbrún og Hannes eru góðir vinir og
aðspurð hvernig þau hafi kynnst eru
þau ekki með það á hreinu. „Ég held
samt að við höfum hist fyrst þegar ég
var að frumsýna sjónvarpsmynd sem ég
hafði gert í tilefni af 50 ára afmæli
NATO,“ segir Hannes. Kolbrún tekur
undir það en síðar áttu þau eftir að
starfa saman að þáttunum Maður er
nefndur þar sem Kolbrún var spyrill í
þáttunum sem Hannes stýrði. „Það
kemur kannski fólki á óvart að við höf-
um aldrei rifist,“ segir Kolbrún. „En ég
held að við hefðum ekki getað orðið
vinir nema af því að mér er frekar hlýtt
til Davíðs Oddssonar,“ segir hún og
hlær. „Já, það er rétt,“ segir Hannes.
„Það eina sem hefur komið uppá er að
hún hefur stundum varið menn sem ég
hef deilt á.“
Speki árþúsunda safnað í bók
Tvær ólíkar manneskjur eru með tvær líkar
bækur á markaði fyrir jólin. Tilvitnanabækur eru
eins og kistur fullar af gullmolum
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Við erum kannski
glæpamenn, en við
erum allavega ekki
óheiðarlegir.
Kenneth Máni í sjónvarps-
þáttunum Fangavaktinni
Það eru einungis um tuttugu
morð framin á ári í London
og þau eru ekki öll alvarleg - í
sumum tilvikum eru bara eigin-
menn að drepa eiginkonur sínar.
G. H. Hatherill yfirmaður hjá Scotland Yard
Það mega hvítir menn
eiga að sjálfstraust
þeirra er takmarkalaust.
Hverjir aðrir myndu fara
til lítillar eyju í Suður-
höfum, þar sem er engin
fátækt, engir glæpir,
ekkert atvinnuleysi,
ekkert stríð og engar
áhyggjur – og kalla það
„frumstætt þjóðfélag“.
Dick Gregory
Þegar ég var háttuð hér
um kvöldið spann ég upp
langa sögu um kálf sem
kunni að knippla blúndur
og klifra í trjám, og hugs-
aðu þér, ég trúði hverju
einasta orði! Þetta kalla
ég nú að ljúga af list.
Astrid Lindgren - Lína langsokkur ætlar til sjós
- Lína langsokkur- þýðing: Sigrún Árnadóttir
Fólk verður
leiðinlegt ef
það trúir ekki
á neitt
skemmtilegt.
Einar Már Guðmundsson
- Fótspor á himnum
Maður sér ekki vel nema með
hjartanu. Það mikilvægasta er
ósýnilegt augunum.
Antoine de Saint-Exupéry - Litli prinsinn
- þýðing: Þórarinn Björnsson
Þú lítur út eins og þú sért búinn að eignast svarinn
fjandmann - það gerir lífið þess vert að lifa því.
Tove Jansson - Eyjan hans múmínpabba - Mía litla - þýðing: Steinunn Briem
Enginn getur fengið þig til að finnast þú vera minnimáttar án samþykkis þíns.
Eleanor Roosevelt
Ást byggist svo mikið á
þakklæti og hégóma-
skap að hún þolir ekki
afskiptaleysi.
Jane Austen - Hroki og hleypidómar
- þýðing: Silja Aðalsteinsdóttir
Ég er hrifinn af
svínum. Hundar
líta upp til okkar.
Kettir líta niður á
okkur. Svín koma
fram við okkur
eins og jafningja.
Winston Churchill
Allir mínir sigrar felast í uppgjöf. Þetta
er mjög einfalt. Uppgjöf fær þig oftar en
ekki til að bregðast við og gera eitthvað í
málum. Það er ákveðin skynsemi í uppgjöf.
Bubbi Morthens
Blaðamaður: Herra Gandhi, hvað finnst yður um nútíma siðmenningu?
Gandhi: Það væri góð hugmynd.
Ég er alveg sannfærð um það að á 21. öld
munu konur, með skynsemi og menntun
að vopni, verða bjargvættir heimsins.
Vigdís Finnbogadóttir
Davíð Oddsson
Mér finnst að allar sjálfs-ævisögur
stjórnmálamanna ættu að heita:
Sjálfsánægður segir frá.
Margaret Thatcher
Eins og Guð sagði
eitt sinn - og að
mínu mati réttilega.
Úr Tilvitnanabókinni eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
Leitin að ástinni er í
reynd leitin að guði. Eða
er það á hinn veginn?
Hrafn Jökulsson - Þar sem vegurinn endar
Jólabækurnar