SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Blaðsíða 34
34 19. desember 2010 T vær merkilegar tilvitn- anabækur eru komnar út. Annarsvegar er það Tilvitn- anabókin sem Kolbrún Berg- þórsdóttir safnaði í og hinsvegar Kjarni málsins sem Hannes Hólmsteinn Giss- urarson tók saman. Bók Kolbrúnar er handhægari enda tæplega 400 síður á lengd meðan bók Hannesar er tæplega 1000 síður. Kolbrún er með þúsundir snjallyrða hvaðanæva úr heiminum og nýtir sér þónokkuð nútímaskáldskap og jafnvel barnabókahöfunda. Bók Hannesar er klassískari og er stofninn úr Íslenskum tilvitnunum sem hann gaf út fyrir fimmtán árum. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti höfundana saman á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur. „Já, ég notast við þessa bók sem ég gaf út fyrir fimmtán árum sem stofn en það lætur nærri að verkið hafi þrefaldast síðan þá. Ég reyndi að bæta við tilvitnunum í konur og í höfunda frá öðrum mál- svæðum en hinu enska,“ segir Hannes. Bæði Kolbrún og Hannes skoðuðu vel aðrar tilvitnanabækur sem komið hafa út einsog Oxford Dictionary of Quota- tions, New Dictionary of Quotations og fleiri þekktar bækur áður en þau settu sínar saman. „Þetta eru samt mjög ólíkar bækur,“ segir Kobrún. „þótt sumt sé eins. Til dæmis notumst við bæði mikið við snjalla menn einsog Jónas Hallgrímsson og Sigurð Nordal. En auk þess að nota gamla klassík reyndi ég mjög meðvitað að koma að sem mestu af nútímaskáldskap og huga að barnabókahöfundum. Ég vildi líka að bókin yrði skemmtileg. Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að vera innan- um skemmtilegt fólk. Ég held að það sé ein ástæðan fyrir því að dálæti mitt á Oscar Wilde hefur aldrei minnkað, al- veg frá unglingsárunum. Hnyttnar og skemmtilegar setningar hafa alltaf glatt mig,“ segir Kolbrún. „Já, ég einbeiti mér að þjóðlegum fróðleik og alþjóðlegum í bókinni,“ segir Hannes. „Ég hef unnið að þessu í fimmtán ár og það hafa margir komið að þessari vinnu. Mér fannst áhugavert við gerð bókarinnar hvað vandamál mannlegrar tilveru eru oftast lík, jafn- vel kynslóða á milli. Þjáning mannsins er svipuð, angist hans og gleði. Annað sem tók mikinn tíma hjá mér var að feðra tilvitnanir rétt en fyrir vikið er bókin miklu betri en internetið til að finna ummæli eða réttfeðraðar tilvitn- anir. Bókin er ansi nákvæm og sagt frá ýmsum augljósum líkingum á ljóðum Steins Steinarr við ljóð Jensens og fleira slíkt sem ekki hefur komið áður fram. Ég vil taka það fram að það gerir Stein ekki að síðra skáldi þótt hann hafi verið undir áhrifum frá öðrum.“ Ólíkir vinir Kolbrún og Hannes eru góðir vinir og aðspurð hvernig þau hafi kynnst eru þau ekki með það á hreinu. „Ég held samt að við höfum hist fyrst þegar ég var að frumsýna sjónvarpsmynd sem ég hafði gert í tilefni af 50 ára afmæli NATO,“ segir Hannes. Kolbrún tekur undir það en síðar áttu þau eftir að starfa saman að þáttunum Maður er nefndur þar sem Kolbrún var spyrill í þáttunum sem Hannes stýrði. „Það kemur kannski fólki á óvart að við höf- um aldrei rifist,“ segir Kolbrún. „En ég held að við hefðum ekki getað orðið vinir nema af því að mér er frekar hlýtt til Davíðs Oddssonar,“ segir hún og hlær. „Já, það er rétt,“ segir Hannes. „Það eina sem hefur komið uppá er að hún hefur stundum varið menn sem ég hef deilt á.“ Speki árþúsunda safnað í bók Tvær ólíkar manneskjur eru með tvær líkar bækur á markaði fyrir jólin. Tilvitnanabækur eru eins og kistur fullar af gullmolum Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Við erum kannski glæpamenn, en við erum allavega ekki óheiðarlegir. Kenneth Máni í sjónvarps- þáttunum Fangavaktinni Það eru einungis um tuttugu morð framin á ári í London og þau eru ekki öll alvarleg - í sumum tilvikum eru bara eigin- menn að drepa eiginkonur sínar. G. H. Hatherill yfirmaður hjá Scotland Yard Það mega hvítir menn eiga að sjálfstraust þeirra er takmarkalaust. Hverjir aðrir myndu fara til lítillar eyju í Suður- höfum, þar sem er engin fátækt, engir glæpir, ekkert atvinnuleysi, ekkert stríð og engar áhyggjur – og kalla það „frumstætt þjóðfélag“. Dick Gregory Þegar ég var háttuð hér um kvöldið spann ég upp langa sögu um kálf sem kunni að knippla blúndur og klifra í trjám, og hugs- aðu þér, ég trúði hverju einasta orði! Þetta kalla ég nú að ljúga af list. Astrid Lindgren - Lína langsokkur ætlar til sjós - Lína langsokkur- þýðing: Sigrún Árnadóttir Fólk verður leiðinlegt ef það trúir ekki á neitt skemmtilegt. Einar Már Guðmundsson - Fótspor á himnum Maður sér ekki vel nema með hjartanu. Það mikilvægasta er ósýnilegt augunum. Antoine de Saint-Exupéry - Litli prinsinn - þýðing: Þórarinn Björnsson Þú lítur út eins og þú sért búinn að eignast svarinn fjandmann - það gerir lífið þess vert að lifa því. Tove Jansson - Eyjan hans múmínpabba - Mía litla - þýðing: Steinunn Briem Enginn getur fengið þig til að finnast þú vera minnimáttar án samþykkis þíns. Eleanor Roosevelt Ást byggist svo mikið á þakklæti og hégóma- skap að hún þolir ekki afskiptaleysi. Jane Austen - Hroki og hleypidómar - þýðing: Silja Aðalsteinsdóttir Ég er hrifinn af svínum. Hundar líta upp til okkar. Kettir líta niður á okkur. Svín koma fram við okkur eins og jafningja. Winston Churchill Allir mínir sigrar felast í uppgjöf. Þetta er mjög einfalt. Uppgjöf fær þig oftar en ekki til að bregðast við og gera eitthvað í málum. Það er ákveðin skynsemi í uppgjöf. Bubbi Morthens Blaðamaður: Herra Gandhi, hvað finnst yður um nútíma siðmenningu? Gandhi: Það væri góð hugmynd. Ég er alveg sannfærð um það að á 21. öld munu konur, með skynsemi og menntun að vopni, verða bjargvættir heimsins. Vigdís Finnbogadóttir Davíð Oddsson Mér finnst að allar sjálfs-ævisögur stjórnmálamanna ættu að heita: Sjálfsánægður segir frá. Margaret Thatcher Eins og Guð sagði eitt sinn - og að mínu mati réttilega. Úr Tilvitnanabókinni eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur Leitin að ástinni er í reynd leitin að guði. Eða er það á hinn veginn? Hrafn Jökulsson - Þar sem vegurinn endar Jólabækurnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.