SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Blaðsíða 45
19. desember 2010 45 Lífsstíll J óla, jóla, jóla þetta og hitt. Já, jólin eru að koma og jólastressið eykst. Það er nefnilega þannig að á þess- um árstíma þegar við eigum að vera sæl saman og hafa það náðugt finna líka margir fyrir hinu hroll- vekjandi jólastressi. Það á eftir að taka til í forstofuskápn- um, ryksuga og skúra, kaupa ilmvatn handa tengdó og gera jólaísinn. Svo margt er eftir að gera að þig langar helst að fleygja þér upp í sófa, draga teppi yfir haus og sofa fram að áramótum. Það er einmitt það sem má alveg. Kannski ekki að sofa fram að ára- mótum, en mjög þarft er að slappa svo- lítið af inn á milli til að maður verði ekki alveg búinn á því á jólunum sjálfum. Enda er ekkert skemmtilegt að sofna of- an í jólamatinn eða jólagjafirnar. Jólaundirbúningurinn breytist þannig með árunum að á meðan maður er lítill og vitlaus þarf maður í raun ekkert að gera fyrir jólin nema sitja fyrir á jóla- kortamyndum og föndra dálítið í leikskólanum eða skól- anum. Þetta breytist dálítið eftir því sem maður eldist og byrjar að bera meiri ábyrgð á jólagjafainnkaupum og öðru slíku. Nú undir þrítugt með eigið heimili bætast síðan við þrif, þó ekki með neinum sérstökum ósköpum og skreyt- ingum, sem einnig er haldið í lágmarki því annars er of mikið verk að pakka öllu saman aftur. Ég get eiginlega ekki ímyndað mér hvernig þetta væri allt saman með börn og mann líka, en ímynda mér að undirbúningur með slíku stóði myndi kalla fram nokkuð fleiri svitaperlur á enni mínu. Fyrir þá sem eru ekki jafn heppnir og ég að geta bara farið á barinn rétt fyrir jól og pakkað inn jólagjöfunum í rólgheitunum, en samt á síðustu stundu á Þorláks- messukvöld, ímynda ég mér að gott skipulag skipti einna mestu máli. Eins og t.d. að taka sér einn góðan dag í að æða um bæinn í útréttingum og annan eða tvo til að þrífa og þvo eins og vit- leysingur. Þannig reyni ég alla vega að haga þessu svona nokkurn veginn og mér finnst líka ágætt að nota kvöldin til að grípa með mér eins og tvær gjafir. Inn á milli búðaráps, baksturs og und- irbúnings er svo hægt að gefa sér dag- part eða kvöldstund til að hitta vini og ættingja, fá sér kakó og smákökur, spila, skrifa á jólakortin í rólegheitum eða rölta um miðbæinn. Nú ef allt klikkar, skipulagið geng- ur ekki fullkomnlega upp, forstofuskápurinn er enn í rúst og gangurinn óskúraður, þá er bara að yppa öxlum, slökkva ljósin og kveikja á kertum. Jólin koma nefnilega alltaf, alveg sama hvað gengur á, og þá er mikilvægast að njóta samverunnar og ekki að hafa áhyggjur af eins tíu ryk- kornum til. Bless jólastress Jólin eru alveg að koma og nú er um að gera að láta jólastressið ekki hlaupa með sig algjörlega í gönur! Slöppum dálítið af og njótum þess að vera til. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Gott er að geta slappað dálítið af líka fyrir jólin og láta jólastressið ekki hlaupa algjörlega með sig í gönur. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Ég get eiginlega ekki ímyndað mér hvernig þetta væri allt saman með börn og mann líka en ímynda mér að undirbúningur með slíku stóði myndi kalla fram meira stress. Það er mjög notalegt að hóa saman vinum og fjöl- skyldu í jólaglögg á aðventunni. Þetta þarf ekki að vera svo ýkja flókið, bara einn góður pottur af ilmandi glöggi og heimabakaðar piparkökur eða aðrar smákökur með. Svo geta þeir sem vilja komið við, kannski á leið sinni úr verslunarleiðangri eða öðru jólaamstri, og fengið sér hressingu. Þetta er tilvalin leið til að eiga notalega og jólalega stund með þeim sem okkur þykir vænt um og slappa svolítið af í öllu jólaannríkinu. Góð- ar uppskriftir að glöggi, bæði áfengu og óáfengu, má finna víða á netinu. Ilmandi gott glögg Jólaglögg og piparkökur með er gott og jólalegt. Morgunblaðið/Golli Notaðu aðventuna til að gera eitthvað notalegt fyrir sjálfa/n þig. Farðu í klippingu, nudd eða eitthvað slíkt sem þér finnst notalegt og njóttu þess að hlakka til jólanna í ró og næði. Sumir gefa líka sjálfum sér jólagjöf, kannski fallega flík eða einhvern hlut sem þá hefur langað í lengi. Heima fyr- ir má líka gera ýmislegt nota- legt. Liggja í leti yfir skemmti- legum jólamyndum og borða eitthvað gott með því, lesa jólabækurnar sem maður náði ekki að klára að lesa um síðustu jól eða bara fara í langt og gott bað. Ým- islegt notalegt má sannarlega finna sér að gera á að- ventunni og þarf það hvorki að vera mikið vesen né kosta mikið. Kyrrlát jólastund Mörgum finnst nota- legt að fara í and- litsbað eða nudd. Jólastressið skapast ekki bara af öllu því sem þarf að gera fyrir hátíðarnar. Það getur líka tekið á að vera fullkom- inn maki eða að halda brosinu í árlegu jólaboði þegar þú myndir frekar vilja vera kúrandi uppi í sófa. Jú, það er ynd- islegt að vera með fjölskyldunni yfir jól- in en of miklar væntingar í kringum jólahátíðina skapa stundum stress- andi aðstæður þegar allt fer ekki ná- kvæmlega eftir áætlun. Haltu þínu striki Til að vera í ágætu jafnvægi yfir jólin og missa sig ekki í stresskasti yfir jóla- steikinni eða uppáhaldskonfektmol- anum sem Gunna frænka náði á undan þér, er ráð að hafa nokkur gömul og góð ráð í huga. Reyndu að fá nógan svefn og snúa sólarhringnum ekki al- gjörlega við. Jólafríið er ekki langt hjá flestum í ár og því ómögulegt að ætla að vinna sig til baka á nokkrum dögum. Ef þú ferð reglulega í líkamsrækt skaltu halda því áfram og ekki nota jól- in sem afsökun til að hætta. Enda hressandi bæði fyrir líkama og sál að svitna svolítið. Þú getur líka farið út að ganga til að fá ferskt loft og tæma hug- ann ef andrúmsloftið heima fyrir er orð- ið þrúgandi. Svo er upplagt að gera vel við sig í mat og drykk en samt að feta sig gætilega eftir skemmtanastíg jólanna. Það vill enginn elda jólamatinn ofan í alla fjölskylduna með velgju í maganum eða stein í hausnum. Njóttu frekar fljótandi lystisemda jólanna í hófi. Allir í góðu jafnvægi Jólin geta orðið hinn mesti hausverkur en það er algjör óþarfi að svo sé.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.