SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Blaðsíða 28
28 19. desember 2010
H
ún stóð við vegkantinn, hélt utan um hálsinn á
beljunni og reyndi að toga hana frá girðingunni
sem var öll sliguð eftir beljuna, staurarnir voru
hálflausir og stóðu eiginlega bara óvart upp í
loftið. Kýrin hafði brotið þá. Það eru fleiri en mannfólkið sem
halda að grasið sé grænna hinum megin. Hún brosti góðlega
til okkar þegar við stöðvuðum bílinn og virti okkur fyrir sér.
Ég náði að smella af tveimur myndum áður en Jón Kalman
rithöfundur bauð henni góðan daginn. „Já, góðan daginn.
Hverjir eru þið?“
„Við erum frá Morgunblaðinu að taka púlsinn á mannlífinu
hérna á Austurlandi og datt í hug að keyra hérna niður í
Mjóafjörð. Megum við spjalla aðeins við þig?“ spurði Jón Kal-
man Önnu Mörtu Guðmundsdóttur frá Hesteyri í Mjóafirði
kurteislega.
Anna Marta virti okkur fyrir sér smástund, hugsaði sig um
og skyndilega ljómaði andlitið eins og sól í heiði. „Jú, það
væri sko í lagi,“ svaraði hún glaðlega, „en getið þið hjálpað
mér aðeins fyrst? Svo förum við bara og fáum okkur kaffi og
spjöllum saman.“
Girt á Hesteyri
Síst átti ég von á að lenda í girðing-
arvinnu á ferð minni um Mjóafjörð fyrir
fimmtán árum en á móti kemur að sú
góða kona Anna Marta Guðmundsdóttir
á Hesteyri átti aldrei í vandræðum með
að finna verkefni handa gestum sínum.
Sagan bak
við myndina
Ragnar Axelsson
rax@mbl.is