SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 16

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 16
16 19. desember 2010 höfundinn Vytautas Narbutas, sem aug- ljóslega sækir innblástur til endurreisn- artíma Shakespeares með öllu því plussi, gyllingum og glæsileika sem fylgdi. „Kor- šunovas býr til stórar og flottar stemn- ingar og það er ótrúlega gaman að vera partur af þessu því maður verður svo áþreifanlega var við að það er að skapast eitthvað stórt,“ segir Ingvar. „Ég held því að áhorfendur eigi von á hughrifum í stærri kantinum.“ Hilmir Snær er á svip- uðum nótum. „Ég held að upplifun fólks verði stundum svolítið skrýtin – stundum líður langur tími í þögn og þess á milli er allt í gangi. Við vonum að okkur takist að búa til einhvers konar galdur.“ Öfgakarakterarnir spennandi Það má segja að Ofviðrið sé rúsínan í pylsuendanum fyrir Hilmi Snæ og Ingvar sem báðir hafa staðið í stórræðum á öðr- um sviðum á árinu. Fjölskyldan í leik- stjórn Hilmis Snæs gengur enn fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu en fyrir leikstjórn þeirrar sýningar hlaut hann Grímuna. Þá sló hann í gegn sem sjálfur Kölski í sýn- ingu Vesturports á Faust, bæði hér heima og í Lundúnum. Hann segir síður en svo erfitt að beygja sig undir vilja annarra leikstjóra, eftir að hafa haldið öllum þráð- um stórrar sýningar í eigin hendi. „Ég lít á þetta sem tvo ólíka hluti og hvor um sig er hvíld frá hinum. Ég er því ekkert að þykj- ast að vera leikstjóri þegar ég er í stöðu leikara, enda þýðir það ekki því þegar maður er uppi á sviði sér maður þá ekki utanfrá. Maður sér ekki heildina.“ Hann segir gaman að fást við hlutverk Kalíbans sem er ekki ólíkt hlutverki Mef- istós í Faust að því leyti að um mikla öfga- karaktera er að ræða, þótt ólíkir séu. „Ég er óskaplega feginn að vera að losna við „loverboyana“ núna þegar ég er aðeins farinn að þroskast enda meira spennandi að fara svolítið út fyrir sitt eigið sjálf. Það reynir meira á sköpunargáfuna. Fyrir Fást var ég mikið í hlutverkum sem stóðu mér svolítið nærri og mér fannst ég vera svo- lítið að festast í þeirri rullu. Ég fagna því innilega að geta farið í aðrar áttir og sýnt myrkari eða fjarlægari hliðar.“ Sömuleiðis er skammt stórra högga á milli hjá Ingvari, sem milli æfinga á Of- viðrinu í Borgarleikhúsinu stendur á stóra sviði Þjóðleikhússins í gervi Jóns Hregg- viðssonar í Íslandsklukkunni, hlutverki sem hlaut hann Grímuverðlaun fyrir fyrr á árinu. Hann viðurkennir að þetta kalli á töluvert púsl af sinni hálfu, auk þess sem hann þarf að setja sig í töluvert ólíkar stellingar fyrir hlutverkin tvö. „Hver ein- asta uppsetning er einstök – þess vegna hangir maður í þessu starfi, það er svo fjölbreytt. Nýr leikstjóri þarf alltaf að hlusta sig inn á nýjan leikhóp, jafnvel þótt hann þekki alla einstaklingana og það sama gildir um leikarana sem þurfa að læra inn á nýja leikstjóra. Það er alveg einstakt.“ Þeir eru sammála um að það sé ekki slæmt að enda svo viðburðaríkt ár á Of- viðrinu. „Það er alltaf svolítil hátíð í bæ þegar Shakespeare er settur á svið, ekki síst þegar hópurinn er svona stór og myndarlegur, svona flottur leikstjóri og jólafrumsýning,“ segir Hilmir Snær. „Þetta er svolítill konfektkassi fyrir okk- ur.“ Skylda að segja já Þótt það sé eiginlega að æra óstöðugan að spyrja í miðju æfingarferli hvað taki við þegar Ofviðrið lægir þá stenst blaðamaður ekki mátíð og Hilmir Snær verður fyrri til svars. „Ég er að fara að leika í stykki hér í Borgarleikhúsinu sem heitir Strýhærði Pétur í leikstjórn Jóns Páls Eyjólfssonar og verður frumsýnt með vorinu. Þetta er hryllingsópera sem Tiger Lilies bjuggu til og sömdu tónlist við, eins konar svört ævintýraópera um það hvernig á að ala upp börn og hvernig á að kenna þeim að gera rétta hluti en börnunum er refsað á mjög gróteskan hátt. Þetta er mjög svart- ur húmor.“ Ingvar er öllu óráðnari. „Þetta er búið að vera svo annríkt haust og vetur hjá mér að ég ætla nú ekki að taka að mér nein stór verkefni á næstunni Það er nóg að vera í Íslandsklukkunni og Ofviðrinu samtímis og eins er verið að biðja mig um að sýna Djúpið aftur, einleik eftir Jón Atla Jón- asson.“ Hilmir Snær hlær. „Svo kemur alltaf eitthvað upp á. Maður ætlar alltaf að taka sér frí og hafa það gott en þá kemur bara eitthvað sem ekki er hægt að segja nei við.“ Ingvar kannast við þetta. „Það er ekki hægt að hætta að vinna því maður verður að eiga fyrir salti í grautinn. Stundum er líka ekki hægt að segja nei, t.d. þegar leikstjóri eins og Koršunovas er að leikstýra eða þegar maður er beðinn um að leika Jón Hreggviðsson. Þá ber manni skylda til að segja já því maður sækist eftir því að kljást við eitthvað nýtt og ögrandi. Það er því yfirleitt ekki pen- ingurinn sem maður segir já við, heldur verkefnið sem er lærdóms- og gjöfult.“ Hilmir Snær kannast við þetta. „Ef maður gerir eitthvað sem maður kann of vel og reynir ekkert á sköpunina er hætt við því að maður verði þreyttur og jafnvel lélegur. En þegar verkefnið felur í sér áskorun og maður er svolítið hræddur og veltir því fyrir sér hvort þetta takist – þá er gaman því þá finnur maður fyrir því að vera á lífi.“ „Kalíban er náttúrubarnið sem heimspekingurinn og siðfræðingurinn Prospero ætlar að temja, en það gengur ekki upp því það eru dýrsleg element í honum sem eru ótemjanleg,“ segir Ingvar um samband persóna hans og Hilmis Snæs í Ofviðrinu. ’ Ég er óskaplega feg- inn að vera að losna við „loverboyana“ núna þegar ég er aðeins farinn að þroskast enda meira spennandi að fara svolítið út fyrir sitt eigið sjálf. Það reynir meira á sköpunargáfuna.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.