SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Síða 21
19. desember 2010 21
Skömmu áður en Magnús átti að fara í brautina fékk
klárinn nefnilega þá flugu í höfuðið að rölta í burtu.
„Hann var kominn upp í brekku þegar ég náði loksins
valdi á honum aftur. Þetta rétt slapp áður en ég var
dæmdur úr leik.“
Í annað skipti komst hann nálægt því að vera dæmdur
úr leik. Það var í sundinu. Magnúsi skrikaði fótur á rás-
pallinum og var hér um bil dottinn út í laugina sem hefði
þýtt þjófstart. „Það var frekar vandræðalegt augnablik
en sem betur fer náði ég jafnvæginu aftur.“
Greinin sem kom Magnúsi einna mest á óvart var
skylmingar. „Ég átti ekki von á miklu þar en það er
þrælgaman að skylmast. Skylmingar eru mikil tækni-
íþrótt. Ég var frekar passífur framan af móti en færðist
allur í aukana í lokaleiknum. Hóf mikinn sóknarleik og
sýndi sannkallaða Zorro-takta,“ segir hann glottandi.
Fimleikarnir komu honum líka þægilega á óvart en
hann datt þar inn í „þrælskemmtilegan hóp“, Fim-
leikahóp Þóris, þar sem yngsti iðkandinn er um tvítugt
en sá elsti 82 ára. „Ég lærði margt af þessu fólki. Hafði til
dæmis ekki hugmynd um að til væru svona margar upp-
hitunaræfingar. Annars hef ég haft mjög gaman af öllum
þessum íþróttum og erfitt að gera upp á milli þeirra.“
Vill stofna íþróttahóp
Íþróttaárinu mikla er að ljúka en ekki er þar með sagt að
afskiptum Magnúsar af hinum ýmsu greinum, sem hann
hefur nú kynnst, sé lokið. Hann viðrar raunar þá hug-
mynd að setja á laggirnar íþróttahóp fólks á hans reki,
sem hittast myndi reglulega til að stunda hinar ýmsu
greinar. „Ég er svo sem ekki búinn að útfæra þetta en vel
má hugsa sér að hópurinn hittist einu sinni í viku til að
skylmast, synda eða fara í fimleika, svo dæmi séu tekin.
Fólk á mínum aldrei hittist oft til að ganga eða hlaupa
saman sem er upplagt en hvers vegna ekki að hittast til
að stunda fleiri greinar? Styrkja sig eða liðka.“
Magnús eggjar ÍSÍ raunar til að koma að þessum mál-
um, hvetja fólk eldra en fjörutíu ára til að taka þátt í hin-
um ýmsu greinum. „Það þarf að opna þennan heim fyrir
eldri iðkendum. Hvers vegna má fólk yfir þrítugu ekki
vera á skautum? Það eru engir almennir tímar fyrir
þennan hóp. Fyrir því eru engin haldbær rök.“
Engin grein var svo ógeðfelld að Magnús gæti ekki
hugsað sér að taka þátt í henni aftur. „Ég kem kannski
ekki til með að keppa aftur í mótókrossi en ég gæti vel
hugsað mér að leigja hjól við tækifæri. Það er þræl-
skemmtilegt.“
Magnús var í þokkalegu formi „af fimmtugum karli að
vera“ þegar hann lagði upp í þessa metnaðarfullu ferð í
byrjun árs og er sannarlega ekki verr á sig kominn nú.
„Þetta hefur gengið vonum framar og núna þegar árinu
er að ljúka er mér efst í huga þakklæti til allra þeirra sem
greitt hafa götu mína. Menn hafa keppst við að lána mér
búnað og búninga, leiðbeina mér og hjálpa í hvívetna.
Kynni mín af íþróttahreyfingunni eru sannarlega já-
kvæð. Það hafa verið forréttindi að kynnast öllu þessu
skemmtilega fólki og ég sé ekki eftir að hafa tekið þá fífl-
djörfu ákvörðun að halda upp á afmæli mitt með þessum
hætti.“
Hafandi sagt það er Magnús líka ánægður að árið sé að
verða búið. „Það hefur farið gríðarlegur tími í þetta, að
ekki sé talað um krafta. Eigum við ekki að segja að ég sé
feginn að næsta ár verði ekki eins!“
Federer hvað? Magnús rétt búinn að smassa í tennisnum.
Kraftajötunninn Magnús í essinu sínu. Kraftlyftingar eru að baki en ólymp-
ískar lyftingar eftir. Það verður síðasta greinin af 28 á þessu almanaksári.
Fimleikar komu Magnúsi skemmtilega á óvart enda þótt hann hafi verið hálf-umkomulaus í hringjunum.
Magnús
bar sig
fagmannlega
að í karate.
Magnús og klárinn góði sem reyndi að strjúka rétt fyrir
keppni. Hér hefur gróið um heilt milli þeirra félaga.
Magnús telur sig hafa verið í mestri lífshættu í mótókrossi.
Hann reiknar ekki með keppa aftur í þeirri ágætu grein.
Magnús fór varlega á ísnum
til að haldast uppistandandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Kristinn
Mikilvægt er að hafa augun á kúlunni í borðtennis.
mbl.is |Sjónvarp
Íþrótta(f)árið.