SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 22

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 22
22 19. desember 2010 H in sögulega sveit Spilverk þjóðanna ætlar að koma sam- an aftur. Meðlimirnir eru fjór- ir líkt og höfuðáttirnar, frum- efnin og efnin sem þarf til að brugga ekta þýskan bjór. Sveitin hefur ávallt verið byggð upp á vinskap og vináttu og eru greinilegir góðir straumar á milli Egils, Valgeirs, Sigurðar Bjólu og Diddúar. Aug- ljóst er að fjórmenningarnir koma aftur saman út af öllum réttu ástæðunum. Hér er engin þegnskylduvinna á ferð. Eftir- vænting er eftir hinu nýja en Spilverkið ætlar að gera nýja plötu og verður með tónleika í Hörpu næsta haust. Þau eru samt aðallega mætt í spjall til að rifja upp fortíðina en það var að koma út á vegum Senu heildarútgáfa verka Spilverks þjóð- anna, askja með öllum sex plötum sveit- arinnar auk sjöundu plötunnar sem er með áður óútgefnum hljómleika- upptökum, upptökum úr sjónvarpsþátt- um og leikritinu Grænjöxlum en alls eru 18 lög á aukaplötunni. Með útgáfunni fylgir 100 síðna bæklingur með öllum textum Spilverksins, myndum og blaða- úrklippum. Fara vel með hroka Hvernig tilfinning er þetta? „Mjög notaleg tilfinning og mikil til- hlökkun,“ segir Diddú. Plötuumslag öskjunnar prýðir mynd sem Hjördís Frímann teiknaði á bréf til sveitarinnar frá júní 1977 en í því varar þáverandi sambýlismaður hennar, Karl J. Sighvatsson, Spilverkið við hroka og yf- irlæti. Í bæklingnum segir: „… ósagt skal látið hvort það breytti einhverju.“ Valgeir botnar þessa hugsun: „Það er engin hljómsveit sem hefur farið jafn vel með hroka eins og Spilverk þjóðanna.“ Egill líkir útgáfunni við „þjappaða end- urminningu.“ Hugmyndin um heildarútgáfu hefur lengi verið til en tónlistarhúsið Harpa var púðrið sem tókst að kveikja í Spilverkinu. „Bjólan er innanríkisráðherra Spil- verksins. Hann gerir bara það sem er rétt og við tökum alltaf mark á því. Hann setti á oddinn að við skyldum gera nýja plötu og gefa út allt efnið aftur. Við gerum allt sem Bjólan segir,“ segir Valgeir. „Það er eins og það sé bara liðinn hálfur mánuður síðan síðast. Við vorum svo ná- inn hópur og unnum svo þétt saman. Við lærðum að hjóla saman og nú getum við ennþá hjólað saman,“ segir Valgeir en Spilverkið var iðin sveit eins og sést á tímalínunni hér til hliðar. „Við vorum mikið við,“ samsinnir Diddú. Ekki átaksíþrótt „Þetta var stuttur tími þegar maður lítur til baka en á meðan hann varði var hann langur og seigur,“ segir Egill. „Manni finnst oft þegar fólk kemur saman, svona gamalt, að einhverju sé stillt upp en það er ekki innistæða fyrir því. Menn koma glaðbeittir til leiks og góðir með sig en við viljum ekki gera það. „Það var einhver kemía þarna,“ segir Egill. „Spilverkið var mjög heppið með tíma til að fæðast á. Við ólumst upp við tónlist áður en brestur á með Bítli,“ segir Valgeir og er tónlistaruppeldi Spilverkara því víðfeðmt. „Það gefur okkur eitthvert umburðarlyndi en við leituðum víða í okkar stílbrögðum. Svo þegar við verðum kynþroska koma Bítlarnir og allt sem þeim fylgdi. Við vorum á réttum tíma til að taka inn þá sprengingu,“ segir Valgeir en samhliða því varð hljómplatan al- menningseign. Hlutirnir gerðust ekki hratt hjá Spil- verkinu til að byrja með. Þau tala um að þau hafi ekki hist, stofnað hljómsveit og byrjað að spila eftir hálfan mánuð. „Misserum saman vorum við að prófa okkur áfram, spila saman í unglinga- herbergjunum sem við vorum að vaxa upp úr,“ segir Valgeir og var því upptakt- urinn langur. Talið berst að textagerð enda margir góðir textarnir til við Spilverkslög. „Texti í lagi er helmingurinn af laginu hið minnsta. Gott lag þolir vondan texta en það þolir ennþá betur góðan texta. Við nuddum í textum þangað til við erum orðin ánægð með þá,“ segir Valgeir. „Textinn verður oft til samhliða því að við vinnum lögin. Eitt erindi búið til strax með laginu,“ segir Sigurður Bjóla en stundum koma textarnir löngu síðar. Þau eru allavega sammála um að textinn sé mikilvægur og stór hluti af laginu. Búið að gengisfella þögnina „Það er bara til góð tónlist og vond tón- list. Tónlist er góð vegna þess að hún snertir, ferðast til hjartans. Ef það gerist ekki, skiptir tónlistin engu máli,“ segir Egill. „Það ætti að útdeila kvóta á tónlist. Þetta er ekki ótæmandi auðlind,“ segir Valgeir. „Ertu viss um að við fengjum kvóta?“ skýtur Sigurður Bjóla inn í og Valgeir er með svarið: „Við fengjum hann út á veiðireynslu.“ Og þá er mikið hlegið líkt og oft fyrr í viðtalinu. „Músík er misnotuð í dag, eins og þegar verið er að leika músík í kjörbúðum. Mér er sagt að hún kyndi undir kaupum,“ segir Egill. „Og á öldurhúsunum, þannig að ekki er hægt að tala saman,“ segir Diddú og Valgeir kemur með dóminn: „Það er búið að gengisfella þögnina.“ Þau hafa metnað fyrir eigin tónlistar- sköpun. „Ég held að við séum öll kverúl- antar þegar kemur að því að búa til þessa tónlist. Þetta er eins og brauðgerð. Við viljum ná fram gamla bragðinu en engu að síður þarf brauðið að bragðast eins og nýtt og nýbakað,“ segir Egill. „Það þarf að vera eitthvað splunkunýtt,“ segir Sig- urður Bjóla sem lýkur síðan spjallinu með því að spá í kaffibollann sinn. Niðurstaða? „Það er bjart yfir fjórum mann- eskjum,“ og verður ekki deilt um það hér, fortíðin er ljós og framtíðin björt. Við viljum eiga innistæðu fyrir því sem við ætlum að gera,“ segir Sigurður Bjóla. „Við erum að tala um einfalda gleði,“ segir Val- geir. Egill fer í saumana á gangverki Spil- verksins. „Við vorum ekki í stangarstökki, hástökki eða að hlaupa skemmri vega- lengdir. Við vorum í 5000 metra hlaupi með frjálsum hvíldartímum. Þetta var ekki átaksíþrótt, meira eins og innhverft hlaup. Og þá skiptir aldurinn ekki máli. Ég held að við höfum öll dýpkað, sálirnar dýpka með aldrinum.“ Valgeir grípur þessa hugsun á lofti: „Og sum okkar hafa gildn- að.“ „Við getum sótt þetta aftur án þess að hálsbrjóta okkur á því,“ segir Egill. „Við komumst að því um daginn að það eru einhverjar síðari tíma hljómsveitir sem hafa orðið fyrir áhrifum af okkur,“ segir Valgeir en sem dæmi hefur Moses Highto- wer verið nefnd í því sambandi. „Við erum því í þeirri óskaaðstöðu að við getum orðið fyrir áhrifum af hljómsveitum, sem hafa orðið fyrir áhrifum af okkur.“ Tónlist Spilverksins hefur verið langlíf. „Það er vegna þess að þessi tónlist fór aldrei eftir tískustraumum,“ segir Valgeir. „Þetta er bara einlæg tónlist,“ segir Sig- urður Bjóla og tekur Diddú undir þessa hugsun: „Það var ekkert mikill rembingur í okkur, einlægnin var höfð að leiðarljósi.“ Af tímamótum og góðum tímum Egill víkur líka að því að þessir tímar upp úr 1970 hafi verið miklir umbrotatímar og margt var að breytast. „Menn eru að end- urskoða gömul gildi, eru farnir að horfa inn á við og velta fyrir sér tilgangi lífsins. Við erum á þessum tímamótum þar sem sjálfskoðun þykir eðlilegur hlutur,“ segir Egill og vísar til undangenginnar hippa- menningar. „Þetta voru tímamót. Það mættist þarna gamla hippamenningin og diskóið var í burðarliðnum og pönkið ekki langt undan. Þetta var suðupottur á þessum tíma,“ seg- ir Sigurður Bjóla. Samtalið víkur að því að það hafi verið hentugt að vera með kassagítarinn á lofti því alltaf sé hægt að taka hann upp. Tón- list Spilverksins byggist ekki á mikilli tækni heldur góðum lagasmíðum og söng. „Við færðumst í annað veldi þegar við komum saman,“ segir Egill og rifjar upp fyrstu kynni. „Ég man alltaf eftir því þegar við Valli hittumst í fyrsta sinn,“ og Valgeir botnar: „1. desember 1970.“ Lærðum að hjóla saman Spilverk þjóðanna er sprelllifandi og hittist á ný og fagnar í spjalli heildarútgáfu á verkum sveitarinnar sem inniheldur líka nýtt en þó gamalt efni. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is ’ Það er bara til góð tón- list og vond tónlist. Tónlist er góð vegna þess að hún snertir, ferðast til hjartans. Ef það gerist ekki, skiptir tónlistin engu máli.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.