SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 36

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 36
36 19. desember 2010 K aflar bókarinnar eru skrifaðir af íslenskum fræðimönnum af ýmsum sviðum, líffræði, vís- indasagnfræði og trúar- bragðafræði svo nokkur séu nefnd. Bókin er gefin út af Hinu íslenska bókmennta- félagi. Darwin endurspeglaður Meðal þeirra sem skrifar kafla í bókina er Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræð- ingur. Kafli Steindórs kallast Landnám þróunarkenningarinnar á Íslandi, 1871- 1910. „Við reyndum að leggja áherslu á að kaflarnir að einhverju leyti endurspegluðu það sem Darwin fjallaði um í Uppruna tegundanna, steintegunda svo sem stein- gervingafræði, líflandafræði og fleira. Í gegnum bæði meistara- og doktorsnám mitt hefur Darwin verið beint eða óbeint umfjöllunarefni. Greinin sem þarna birtist er að hluta til byggð á rannsókn sem var hluti af meistaranámi mínu en líka rann- sóknum sem ég hef gert síðar, sérstaklega á Þorvaldi Thoroddsen. Hans saga er mjög sérstök því að hann skipti algjörlega um skoðun á mjög stuttum tíma. Á tímabilinu 1906-1910 umbreyttist hann frá því að vera þróunarsinni og hóflegur stuðnings- maður lýðræðis yfir í að hafna þróun- arkenningunni og lýðræðinu sem stjórn- skipulagi. En eins og segir í greininni hafa rannsóknir mínar sýnt að þetta voru skilj- anleg umskipti þegar tekið var tillit til alls þess sem gerðist í lífi hans á þessum ár- um,“ segir Steindór. Endurspeglar hugsanagang Þorvaldur fæddist 6. júní 1855 í Flatey á Breiðafirði. Hann var frumburður foreldra sinna, Jóns Thoroddsens skálds, höfundar Pilts og stúlku og Manns og konu, og Kristínar Þorvaldsdóttur. Þorvaldur gekk í Lærða skólann í Reykjavík og lauk stúd- entsprófi 1875, tvítugur að aldri, og hélt sama sumar til háskólanáms í Kaup- mannahöfn. Í fyrstu hugðist hann leggja stund á dýrafræði en á öðru námsári sneri hann sér að jarðfræði og landafræði. Steindór segir að Þorvaldur endurspegli ágætlega hugsanagang fræðimanna á tímabilinu 1880 til 1930. Sá tími hafi verið mjög skemmtilegur hugmyndasögulega þar sem þá voru að takast á nokkrar grundvallarkenningar um hvernig við getum skilið heiminn. Þær voru hin klass- íska, efnishyggja, mark- eða lífhyggja, þar sem fólk fór aftur að sjá tilgang í lífinu, og svo einhver millileið til að samhæfa þetta tvennt. Steindór segir það líka hafa haft sín áhrif á Þorvald að hann umgekkst á þessum tíma í Danmörku, þar sem hann bjó, öfl sem voru ekkert sérlega hlynnt lýðræði. Einkalífið hafði líka sín áhrif en Þorvaldur missti bæði dóttur sína og kjör- dóttur í upphafi 20. aldarinnar. Huga ber að samhenginu „Það er því ýmislegt sem skýrir stefnu- breytingu hans. En hann fór úr því að vera líklegast dei-isti sem hélt kannski að guð hefði sett allt af stað en aðhylltist að öðru leyti grimma efnishyggju og fór síðan yfir í að hafna því öllu. Ég man að þegar ég fór að sjá þetta í skrifum hans og segja mönn- um frá því þá héldu menn að hann hefði orðið geðveikur og líktu honum við þýska heimspekinginn Ludwig Wittgenstein sem kenndi við Cambridge. Hann varð fyrir svipuðum umskiptingum svo mér var bent á að Þorvaldur hlyti að hafa orðið klikkaður eins og hann. En í báðum tilfell- unum eru eðlilegar skýringar á þessu. Þetta er einmitt stundum galli við vísinda- söguna, hún er tiltölulega ný fræðigrein og lyktaði allt of lengi af því að menn voru að skrifa söguna án þess að huga að sam- henginu. Menn litu í vísindagreinarnar en hugsuðu ekkert um hvað var undirliggj- andi. Doktorsritgerðin mín byggist til að mynda að mestu á bréfaskrifum manna því það er þar sem maður fær bakgrunn- inn sem er nauðsynlegur til að segja af hverju menn voru að segja og gera það sem þeir gerðu. Eins var með Þorvald að það var ekki fyrr en ég fór inn í sendibréf- in að ég fór að skilja þetta af alvöru,“ segir Steindór. Íslendingar samþykkja Aðspurður hvort enn skiptist menn í jafn- ar fylkingar með og á móti þróunarkenn- ingu Darwins segir Steindór að svo sé ekki. Í dag sé stuðningurinn við þróun- arkenninguna mjög almennur í Vestur- Evrópu. Þá sé athyglisvert að í grein sem birtist í Science fyrir nokkrum árum komi fram að Íslendingar voru í efsta sæti yfir þá sem samþykktu það að maðurinn væri af- urð þróunar. Næstminnstur var stuðning- urinn hins vegar í Bandaríkjunum og minnstur í Tyrklandi. „Bandaríkjamenn eru svolítið sér á báti hvað þetta varðar og ég held að það séu ekki nema 12 til 14% þeirra sem trúa því að lífið hafi þróast algjörlega á nátt- úrulegan hátt eins og Darwin heldur fram og þróunarfræðin. Kannski 20% í viðbót trúa að Guð hafi að einhverju leyti stýrt þessu en restin hafnar þessu algjörlega. Hér í Evrópu er þróunarkenningin al- mennt viðurkennd. Ég held að skýringin felist í því að við erum með mun frjálslegri viðhorf til trúarbragða heldur en í Banda- ríkjunum. Ýmsar skýringar hafa verið lagðar fram um af hverju Vestur- Evrópubúar virðast hafa miklu minni til- hneigingu til þess að trúa en kannanir í Svíþjóð sýna að allt að 75% af þjóðinni hafni eða efist um tilvist persónulegs guðs og í Bretlandi um 40-50%. Eitt af því sem við notum til að skýra þetta er hið sterka velferðarkerfi sem rekið er á Vest- urlöndum. Þannig að fólk hér hefur ekki sömu þörf fyrir að leita í trúna og í Banda- ríkjunum. Nokkrar rannsóknir hafa sýnt skýrt samhengi þarna á mili. Við getum leyft okkur að hafna Guði því við höfum ríkið til að styrkja okkur,“ segir Steindór. Hugmyndin um Guð Áður fyrr segir Steindór hafa verið eðlilegt að menn skiptust meira í hópa því trúin var hornsteinn í evrópskri menningu langt fram á 19. öld. En stuðningur við hana fór að dala með upplýsingu 18. aldar þegar menn fóru að narta í trúna bæði úr hug-, raun- og félagsvísindum. Steindór segir að fyrir utan þá sem hafni þróunarkenningunni alfarið, af þeim sem hann skrifar um, þá hafi flestir hinna ekki endilega talið hugmyndina um Guð í mót- sögn við þróunarkenninguna. En þetta sé spurning um hvernig fólk skilgreini Guð. Því flestir þeirra virðast hafa verið það sem kallast dei-isti. Það er að segja að- hyllst þá hugmynd að það sé Guð þarna fyrir utan sem sett hafi allt af stað en síðan ekki skipt sér meira af málunum. Steindór segir að í dag sé í raun alveg hægt að vera dei-isti og aðhyllast þróun. Þetta flækist hins vegar svolítið ef fólk trúi á Guð eins og kristnir menn sem trúa því Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur, skrifaði kafla í ritgerð- arsafni sem tileinkað er kenningum Darwin. Þróunarkenn- ingin barst fljótt til Íslands Arfleifð Darwins, Þróunarfræði, náttúra og menn- ing, er fyrsta ritgerðasafnið um þróunarkenn- inguna á íslensku sem ætlað er almenningi. María Ólafsdóttir maria@mbl.is 1818 Darwin hefur skólagöngu ásamt bróður sínum í Shrewsbury Grammar School. Áhersla var lögð á sögu Rómverja og Grikkja en á meðan á skólagöng- unni stóð fékk Darwin mikinn áhuga á skáldskap Shakespeare og Byron. Charles Robert Darwin 1809 Charles Robert Darwin fæðist í bænum Shropshire í Englandi. Hann var skírður eftir frænda sínum Charles og í höfuðið á föður sínum Robert. 1825 Faðir Darwin vill ekki að sonur sinn lendi á villigötum og skráði hann í læknisfræði við Edinborgar- háskóla. Darwin hreifst þó ekki sérlega af læknis- fræðinni. Bæði hræddist hann blóð og fannst námið afspyrnuleiðinlegt. 1836 Eyðir vetrinum í skriftir um það sem fyrir augu hans bar á ferðalagi um Suður-Ameríku og skipulagningu ýmiss konar sýna sem honum tókst að safna þar. 1839 Emma Wedgwood og Charles Darwin eru gift í St. Peter’s Church í bænum Maer á heima- slóðum Darwins. Þau eignuðust tíu börn en ekki komust öll á legg. 1831 Darwin hætti fljótlega í læknisfræðinni en lýkur guðfræðinámi frá Cambridge með góðum árangri. Í Cambridge kynntist Charles klerknum og grasa- fræðingnum John Stevens Henslow, sem hvatti Darwin til vísindaiðkunnar. Jólabækurnar

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.