SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 38
38 19. desember 2010
M
eðal þeirra fjöldamörgu mat-
reiðslubóka sem leyndust í
jólabókaflóðinu þetta árið,
var bókin Þú getur eldað!
eftir Annabel Karmel í þýðingu Nönnu
Rögnvaldardóttur. Í bókinni eru börn-
unum kennd réttu vinnubrögðin í eldhús-
inu, þau frædd um hráefni, áhöld og bök-
unar- og matreiðsluaðferðir og hún
inniheldur fjölda uppskrifta fyrir þau að
spreyta sig á.
Þau Ásdís, Jóhanna, Einar Elís og Kol-
finna prófuðu piparökuuppskriftina í bók-
inni nú fyrir skömmu og skemmtu sér
konunglega við jólabaksturinn. Að sjálf-
sögðu var alveg farið eftir leiðbeiningunum
í bókinni en þar stendur meðal annars að
það eigi alltaf að hafa einhvern fullorðin
nálægan við eldhússtörfin og það er heilla-
ráð!
Að gæða sér á afrakstrinum er að sjálfsögðu besti partur eldamennskunnar. Krakkarnir buðu upp á heitt kakó og piparkökur með kaffinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Barnaleikur
Þú getur eldað! er ný og skemmtileg matreiðslu-
bók fyrir börn sem inniheldur bæði gagnlegan
fróðleik og einfaldar uppskriftir.
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is
Vel skreytt og gómsæt listaverk.
Fyrst er að blanda þurrefnunum saman og það er verkefni sem yngri börnin ráða vel við.
Það er gott ráð að skreyta á bökunarpappír. Það er um að gera að leyfa börnunum að leika sér og nota ímyndunaraflið. Það þarf t.d. ekkert endilega að nota mót til að búa til kökurnar.
Þegar deigið er tilbúið er það látið bíða í ísskáp í a.m.k. klukkustund þannig að það verði
stíft og þægilegra að fletja og skera út. Kökurnar eru bakaðar við 170 gráður í 12-15 mín.
Matur