SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Síða 39

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Síða 39
19. desember 2010 39 V ínin með jólamatnum geta valdið heilabrot- um. Við leggjum mikið í matargerðina á þessum árstíma og ef borið er fram borðvín með máltíðinni er mikilvægt að það sé matnum samboðið og spili með honum. Ef síld er fyrirferðarmikil á borð- inu og t.d. reyktur áll og lax er ís- lenskur jólabjór og Álaborgari auð- vitað málið. Íslensku brugghúsin hafa náð mikilli færni við fram- leiðslu sína og í sjálfu sér engin þörf að leita út fyrir landsteinana þar. Humar, hvort sem er grillaður, steiktur eða í súpu, kallar á virki- lega gott hvítvín. Hér hefur Frakk- land upp á margt að bjóða. Góður Chablis frá vönduðum framleið- anda á borð við Chablisienne, La- roche eða Drouhin er alla jafna mjög öruggur kostur. Einnig kæmi til greina Riesling frá Alsace og svo er auðvitað hægt að halda til Ítalíu og velja Soave í háum gæðaflokki frá annaðhvort Pieropan eða C‘a Rugate. Það eru vín sem gefa mikið fyrir peninginn. Auðvitað má fara á framandi slóðir og þeir sem ekki hafa bragð- að á nýsjálensku Spy Valley- vínunum ættu að ráða bót á því. Hvort sem Sauvignon Blanc eða Chardonnay verður fyrir valinu þá eru þetta vín sem ekki er hægt annað en að dást að. Önd er sömuleiðis eitthvað sem beinlínis kallar á klassík í vínmálum. Hér eru Bordeaux-vínin á heimavelli. Það er hægt að velja margt gott þar, til dæmis vínið Tourelles de Longueville sem er annað vín hins magnaða vínhúss Chateau Pichon de Longueville og ekki spillir fyrir að það er ofurárgangurinn 2005 sem nú vermir hillurnar. Pomerol-vínið La Fleur Maillet er aðeins ódýrara, þar njótum við góðs af birgðum sem keyptar voru inn á „gamla genginu“ og ef við förum enn neðar í verðskalann er hægt að finna einföld en virkilega góð og ódýr Bordeaux-vín á borð við Chateau Grossombre eða Lamothe-Vincent, hvort tveggja rétt yfir tvöþús- undkallinum. Nautasteikur eru einfaldar að því leytinu til að flest góð rauðvín falla vel að þeim en flóknar vegna þess að þá kemur svo margt til greina. Hér mætti velja öflugan Spánverja á borð við Finca Monasterio eða Coto Imaz frá Rioja eða bregða sér yfir til Katalóníu, nánar tiltekið til Empordá alveg við frönsku landamærin og velja vínið Finca Malaveina frá Perelada. Ítalía kemur líka sterk inn og þar er úr nógu að moða. Ég myndi ekki síst horfa til Toskana og vil benda á vínhúsið Isole e Olena. Árgang- urinn 2007 af Chianti Classico-víninu þeirra er með þeim betri sem komið hefur frá Paolo di Marchi og toppvínið hans Cepparello 2005 er hreinasta afbragð. Villibráðin kallar á kröftug og mikil vín. Bordeaux er áfram góður kostur, ekki síst með hreindýri, en ekki má gleyma Rhone. Í vínbúðunum er t.d. hægt að fá al- veg hreint magnaðan Gigondas frá Saint Cosme en síðan er líka hægt að halda sig við einfaldari Cotes-du-Rhone ef menn vilja ekki íþyngja buddunni of mikið en velja þá einhvern af bestu framleiðendunum, t.d. Guigal, Vidal-Fleury eða Cha- poutier. Hér kemur Nýi heimurinn líka sterkur inn. Ástralskur Shiraz, t.d. Miamba Shiraz frá Grant Burge eða The Futures eða Stonewell Shiraz frá Peter Lehmann. Slík vín eiga ekki síst oft betur við en Frakkarnir ef einhver sæta er í sósunni. Þá komum við að höfuðverknum: Hamborgarhryggnum, hangikjötinu og öllu hinu hefðbundna meðlæti sem sligar íslensku jólaborðin. Það er ekki óalgengt að á disknum endi matur sem er í senn mjög saltur, reyktur, sætur og súr. Slík samsetn- ing er ekki beinlínis vínvæn og þótt margir hafi reynt að finna „silfurkúluna“ sem nær að vinna á þessu öllu í senn þá er hún líklega ekki til. Það sem myndi falla best að t.d. hamborgarhrygg eða hangikjöti er þannig oft þykkt og arómatískt hvítvín frá Alsace úr þrúgunum Pinot Gris eða Gewurztraminer. Besta ráðið sem ég get gef- ið, vilji menn rekar rautt, er að velja vín sem er gott, ágætlega kröftugt og þykkt en ekki of dýrt. Það er synd að fórna bestu flöskunum þegar aðrar gera sama gagn og jafnvel meira. Rioja Reserva eða jafnvel Merlot frá Nýja heiminum. Kröftug Shiraz- vín frá Ástralíu ráða svo við flestallt. Regla númer eitt er hins vegar: Veldu það sem þér þykir gott. Næst: Áramótin Rauð jól eða hvít? Vín 101 Þrítugasti og áttundi hluti Steingrímur Sigurgeirsson Smjörinu og púðursykrinum er hrært saman og síðan er egginu og sírópinu bætt við. Morgunblaðið/Kristinn Þurrefnablöndunni er smám saman bætt við deigið en það er best að gera með stífri sleif. 400 g hveiti ¾ tsk. matarsódi 1 tsk. kanill 2 tsk. engiferduft ½ tsk. negull ¼ tsk. salt 170 g smjör, lint 110 g púðursykur 1 egg 110 g dökkt síróp (þú getur líka notað ljóst síróp) Piparkökur

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.