SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 44

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Page 44
44 19. desember 2010 Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Seríu 2 með Skúla Sverr- issyni. Frábær plata. Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið gerð að þínu mati? Það eru svo margar plötur sem mér finnst vera besta plata í heimi, verð því að fá að nefna a.m.k. fjórar: … and Justice for All með Metallicu, Komputer Welt með Kraft- werki, Söguna af Melodie Nelson eftir Serge Gainsbourg og Alina eftir Arvo Pärt – ég fór að skæla þegar ég heyrði þá tónlist í fyrsta skipti. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú hana? Animalize með Kiss, keypt í Steinum í Austurstræti. Eða var það ekki annars Steinar sem var með plötubúð þar? Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um? Mér þykir mjög vænt um plöt- ur Megasar sem ég hef hlustað á síðan ég var barn. Mesta nostalgían er í kringum smá- skífuna með „Spáðu í mig“ á annarri hliðinni en „Komdu og skoðaðu í kistuna mína“ á hinni. Man hvað mér fannst þetta skrítið og skemmtilegt þegar ég var lítill snáði. Í mínum eyrum Úlfur Eldjárn Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera? Ron Mael. Hvað syngur þú í sturtunni? „Born to be Alive“ með Patrick Hernand- enz. Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum? Ég kemst alltaf í tryllt stuð þegar ég heyri „Money for Nothing“ með Dire Straits og „Pínulítinn karl“ með Þursaflokknum. En hvað yljar þér svo á sunnu- dagsmorgnum? Margt, t.d. Genesis, kafli 1, 32. vers með Alan Parsons Project. Kemst í tryllt stuð við „Money for Nothing“ Carl Barat, liðsmaður Libertines, Matt Held- ers, trymbill Arctic Monkeys, Drew McCon- nell, bassaleikari Babyshambles, og Gruff Rhys úr Super Furry Animals hafa hrært saman í hljómsveit og hljóðritað góðgerð- arplötu. Kalla þeir sveit sína The Bottletop Band en aðrir tónlistarmenn sem tengjast verkefninu eru m.a. Get Cape. Wear Cape. Fly, VV Brown, Sam Sparro, Fink, Reverend And The Makers, Eliza Doolittle og Tim Burg- ess. Smáskífu má nú hala niður án endur- gjalds af heimasíðu sveitarinnar og breið- skífa, Dream Service, kemur út í apríl komandi. Allur ágóði rennur til menntunar- og atvinnuverkefna í Brasilíu, Afríku og Bret- landi. Ný bresk „súpergrúppa“ Carl Barat úr Libertines er á meðal þátttakenda. Beastie Boys láta ekki deigan síga. Margir bíða efalaust spenntir eftir næstu breiðskífu Beastie Boys, en hún var sett á ís þegar fréttist af því að MCA, einn þriggja meðlimanna, stríddi við krabbamein. Hann virðist þó vera kominn í sæmilegan bata, hefur a.m.k. næga orku til að skrifa og leik- stýra stuttmynd sem verður byggð á smell- inum sem kom sveitinni á kortið á sínum tíma, „(You Gotta) Fight For Your Right (To Party!)“. Lagið kom út 1987 en myndin, sem kallast Fight For Your Right Revisited, mun skarta þeim Will Ferrell, John C. Reilly, Seth Rogen, Jack Black og Elijah Wood í burðar- rullunum, hvorki meira né minna. Myndin verður frumsýnd á Sundance í janúar. Beastie Boys í stuttmynd J á, það á ekki af þeim Gallagher- bræðrum að ganga. Það er alltaf jafn- gaman að skrifa um og sökkva sér í æv- intýri þessara fúlmynntu Norður- Breta, það er eins og þeir búi yfir einhvers konar dýrslegu aðdráttarafli og þessi „salt jarðar“-ára í kringum þá er heillandi. Maður hefur litlar áhyggjur af því að Noel geti ekki dúndrað út einum og einum gull- mola á næstu árum, en þar sem hann samdi nærfellt allt efni Oasis, nema undir restina, grunar mann sterklega að sólóefni hans eigi eftir að minna þónokkuð á efni þeirrar ágætu sveitar. Eða hvað? Alltént er ég fyrir mína parta mun spenntari að heyra hvað Liam ætlar að gera, sem nú er í fyrsta skipti óskoraður leiðtogi hljómsveitar. Sveitin atarna kallast Beady Eye og fékk Li- am fyrrverandi Oasis-limi með sér í stuðið, þá Andy Bell, Gem Archer og Chris Sharrock. Fyrsta lagið er þegar komið út, en „Bring the light“ kom út í nóvember liðnum sem frítt niðurhal og sjötomma. Kinkslegt lag nokkuð, minnir óneitanlega á „David Watts“ þeirrar sveitar. Ódýrt nokk og hjakkandi en einhver sjarmi við það um leið. Fyrsta breiðskífan er þá komin með útgáfudag, 28. febrúar, og mun hún kallast Different Gear, Still Speeding. Er það enginn annar en Steve Lillywhite sem mun sjá um að upptökustýra. Þetta fyrsta lag heldur manni dálítið í óvissu, platan gæti orðið algjört drasl eða þá kæruleysislegt meistarastykki, borið uppi af magnaðri rödd Liams, en hann er að öðrum ólöstuðum einn frambærilegasti rokksöngvari sem fram hefur komið í árafjöld. Og ekki vantar upp á yfirlýsinarnar hjá honum bless- uðum, Beady Eye er að sjálfsögðu 1.000.000 sinnum betri en Oasis. En svo verður nottu- lega Oasis-endurkoma eftir ca. fimm ár. Já, poppbransinn er fyrirsjáanlegur … Hin risavaxna, ægibreska sveit Oasis splundraðist í fyrra og ástæðan, sem vonlegt var; þrætur þeirra bræðra Noels og Liams Gallaghers. Báðir eru nú að undirbúa sólóferil og er Liam lillibró með plötu í farvatninu sem er eignuð sveitinni Beady Eye. Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hvað er að frétta Liam? Saga þeirra Liams og Noels hvað Oasis varðar er þyrnum stráð, og menn eru í raun hissa á því að bandið skyldi ekki splundrast fyrir löngu. Handalögmál, eilíft rifrildi, rætin skot í fjölmiðlum og eitthvað sem mætti kalla hreint og beint hatur voru dag- legt brauð hjá þeim blessuðum, og það eina sem sameinaði þá var sameiginleg ást á tónlist og fótbolta. Það var svo í ágúst í fyrra sem allt sauð upp úr, bræðurnir höfðu verið að slást baksviðs og við svo búið rauk Noel í tölvuna og lýsti því yfir við netheima að hann væri hættur í sveitinni. Hann lýsti því yfir að hann væri í senn sorgmæddur og feginn, en hann hefði ekki getað unnið degi lengur með bróður sínum. Um tíma leit út fyrir að Liam myndi draga vagninn áfram sjálfur en ljóst er að þessi endurreisn- arsveit er öll. Bræðrabylta Tónlist Úlfur Eldjárn

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.