SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 53

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 53
19. desember 2010 53 Verið velkomin LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar KARL KVARAN 17.11. 2010 - 13.2. 2011 ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 19. desember kl. 14 Rakel Pétursdóttir safnafræðingur. SAFNBÚÐ Listasafns Íslands LAGERÚTSALA á listaverkabókum og gjafakortum. Allt að 70% afsláttur. Ókeypis aðgangur í safnið alla miðvikudaga. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar. Sýningin Guðmundur og Samarnir. Málverk Guðmundar Einarssonar frá Miðdal úr ferðum hans um lönd Sama í Finnlandi og munir tengdir menningu þeirra. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is NÝLISTASAFNIÐ Bjarni H. Þórarinsson Sjónþing: Upprifjun og yfirlit Sýningin á verkum Bjarna H. Þórarinssonar stendur til 5. des. 2010 Sunnudaginn 28. nóvember kl. 15 verða Bjarni H. Þórarinsson og Jón Proppé, listheimspekingur, með spjall og leiðsögn um sýninguna. Föstudaginn 10. desember kl. 17 opnar stuttsýningin TÍMI; sýning átta lokaársnema í Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Sýningin er einnig opin laugardaginn 11. desember kl.15-18. Nýlistasafnið er lokað frá 12. desember 2010 til 8. janúar 2011. Opið þriðjudag - sunnudags kl. 12-17 og eftir samkomulagi Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. www.nylo.is, nylo@nylo.is, Skúlagötu 28, 101 Reykjavík „SIGGA HEIMIS“ 11.9.2010 - 30.1. 2011 Falleg íslensk hönnun í Kraum, nýjar jólavörur og margt spennandi Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Verslunin Kraum í anddyri og kaffiveitingar. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is TRÉKARLAR Leiðsögn um sýningu Guðmundar Sigurðssonar laugardaginn 11. desember kl. 14. Síðasta sýningarhelgi. Opið mán.–fim. kl. 10–19, fös. 11-17 og lau. 13-17. Ókeypis aðgangur www.natkop.is Listasafn Kópavogs Gerðarsafn Veiðimenn Norðursins Andlit Aldanna Ljósmyndir Ragnars Axelssonar Sýningin stendur til 30.12.2010 Ókeypis aðgangur Safnið er opið kl. 11-17 alla daga nema mánudaga www.gerdasafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ASÍ Síðasta sýningarhelgi Þar spretta laukar Áslaug Thorlacius, Finnur Arnar Arnarson, Salvör, Kristján, Hallgerður og Helga Thorlacius Finnsbörn búa í safninu Safnið er opið 13-17 alla daga nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Skemmtilegur sunnudagur 19. desember: Kl. 11: Skyrgámur kemur í safnið Kl. 12: Iðunn Steinsdóttir les upp úr bókinni sinni Jólasveinarnir Kl. 13: The Icelandic Yule - Dr. Terry Gunnell heldur erindi um íslenska jólasiði á ensku. Kl. 14: Einar Falur Ingólfsson veitir leiðsögn um sýninguna Sögustaðir – í fótspor W.G. Collingwoods. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir! Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is 30. október – 2. janúar 2011 Gjörningaklúbburinn - TIGHT Eggert Pétursson - Málverk Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Nýverið kom út mynddiskurinn Hljómfagra Ísland þar sem er að finna stuttmyndina „Hljómfagra Ísland“ og ljósmyndasýninguna „Hljómfagra Ísland – Í nær- mynd“ eftir náttúruljósmynd- arann Friðþjóf Helgason. Eins og nöfnin gefa til kynna er Hljóm- fagra Ísland myndrænn óður til íslenskrar náttúru, dýralífs og þjóðlegrar tónlistar sem hefur fest sig í hjörtum okkar Íslend- inga undanfarin ár og áratugi. Í stuttmyndinni „Hljómfagra Ísland“ er ofið saman myndefni frá Friðþjófi og Ómari Ragn- arsyni af íslenskri náttúru í sínu fínasta pússi í bland við tónlist í flutningi nokkurra af helstu dægurlagasöngvurum landsins. Myndskeið frá öllum lands- hornum, árstímum og tímum sólarhringsins fara með áhorf- endur yfir landið þvert og endi- langt og gefa áhorfendum aðra sýn á margar af þekktustu nátt- úruperlum landsins. Í myndinni er tekið á mikilvægi náttúru- verndar þar sem myndskeiðum af Alþingi og stjórnarráðinu eru skeytt saman við myndir af stórvirkum vinnuvélum og ám sem flæða niður gljúfur og stór- brotnu umhverfi þeirra, sem minna þannig þá sem eru að horfa á að yfirvöldum ber að sjá til þess að náttúruperlur lands- ins verði áfram til fyrir komandi kynslóðir. Myndin endar svo á myndasyrpu af því náttúruundri sem Íslendingar stæra sig gjarn- an af, sjálfum norðurljósunum og undir flytur söngkonan Ragnheiður Gröndal fallegt lag eftir Magnús Þór Sigmundsson við texta Jóhannesar úr Kötlum. Tónlistin í myndinni er ekki af verri endanum og eru lögin samin af sumum af þekktustu lagasmiðum þjóðarinnar á borð við KK og Magga Eiríks, Gunnar Þórðarson, Bubba Morthens, Jón Múla og Magnús Þór Sig- mundsson svo fáeinir séu nefndir. En það var enginn ann- ar en Steinar Berg sem sá um að velja tónlistina á Hljómfagra Ís- land. Á mynddisknum er einnig að finna ljósmyndasýninguna „Hljómfagra Ísland – Í nær- mynd“ sem sett hefur verið saman úr 175 stórgóðum ljós- myndum af íslensku landslagi og mannlífi í íslenskri náttúru eftir Friðþjóf í bland við tónlist sem ósjaldan er sungin á mannamótum hér á landi. Hljómfagra Ísland er skemmtileg viðbót við þann fjölda sem er fáanlegur af ljós- myndabókum um íslenska nátt- úru og mannlíf, þar sem dægur- lagatónlist er ofin saman við á nýstárlegan máta. Ekki má svo gleyma að hægt er að velja um texta á sex tungumálum og Hljómfagra Ísland er því frábær gjöf fyrir ferðamenn sem og unnendur íslenskrar náttúru. Ísland í spari- fötunum BÆKUR Hljómfagra Ísland bbbmn Myndir eftir Friðþjóf Helgason, tónlist eftir ýmsa. Fossatún 2010. Hestar í vetrarsól í Borgarfirði - ein mynda Friðþjófs Helgasonar á mynddisknum Hljómfagra Ísland. Matthías Árni Ingimarsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.