Skólablaðið - 01.03.1985, Side 5
Meirihlutinn tók ekki afstöðu. Súluritið sýnir þá sem
tóku afstöðu og töldu sig hægra megin.
10. Hvaða innlend persóna er í mestum metum hiá
þér? ________________________________________________
Þrennt var afgerandi vinsælast af innlendu fólki. í
fyrsta sæti varð Siggi Sigurjóns, og birtist viðtal við hann
hér aftar í blaðinu, það þarf bara að fletta til að finna það.
I öðru sæti hafnaði Kæra Vigga, forseti Islands, og í þriðja
og besta sætinu hafnaði ég. Nei, ég er bara að gantast, það
var ,,ég“!
11. Hvaða erlend persóna er í mestum metum hjá þér?
Af erlendum goðum urðu þessi hlutskörpust: elskvær-
legur Rónaldur Rígan, hann er nú meira holdskarpur en
hlutskarpur; járnklumpurinn Margrét Tatsjer. Aðrir
komust ekki í hálfkvisti við þau. En það er allt í lagi því að
þótt kvisturinn sé hátt uppi þá er þetta bara skítur á priki.
12. Hver er mesti stjórnmálamaðurinn á íslandi að þínu
mati?________________________________________________
Meðal MR-inga er Jón Baldvin vinsælastur. Það var áður
en hann fór að ,,finnlandisera“.
13. Hvað ferðu að meðaltali oft út að skemmta þér í
mánuði? □ 0-1 sinni □ 2-3 □ 4-5 □ Annars, hve
oft? ________________________________________________
Samkvæmt könnuninni fara flestir MR-ingar 2—3 í
mánuði út að skemmta sér eða yfir 40%. Næstfjölmenn-
asti hópurinn er sterkari í útþránni og vill helst ekki missa
úr helgi. Þetta eru um 25% aðspurðra. Næstir koma þeir
sem annað hvort hafa prófað að skemmta sér og finnst
það lítið eða ekkert gaman eða hafa aldrei prófað að
skemmta sér og vita ekki hvað er skemmtilegt að
skemmta sér. Þetta eru þeir sem segjast fara 0—1 sinni út á
lífið, í mánuði. Að síðustu er að geta um þá sem fara oftar
en 5 sinnum í mánuði út að skemmta sér, en þetta er að
vonum langþunnasti hópurinn.
14. Ef þú ert í vandræðum með að drepa tíma, hvaða
vopn notarðu? □ bók □ mat □ síma □ annað, hvað?___
Tíminn hefur ærna ástæðu til að óttast MR-inga. Þeir
eru vel vopnaðir af tímadrepandi morðtólum. Hér koma
þau vinsælustu í réttri röð: bækur, síminn, svefninn (wet
dreams), matur, tónlist, íþróttir, annað var ekki eins vin-
sælt. Nokkrir eru frumlegir: klámrit, day dreams og ein er
ekki í vandræðum.
15. Hvert er aðaltómstundagamanið þitt? (Gert er ráð
fyrir að skólinn sitji í fyrirrúmi)_______________
Þegar við erum ekki að drepa tímann notum við hann
auðvitað ekki í að læra, heldur verjum honum í tóm-
stundaiðkanir okkar. En þetta helst nú mikið til í hendur,
að drepa tímann og verja honum. Vinsældaröðin er
aðeins öðruvísi: íþróttir eru yfirgnæfandi vinsælastar,
lestur, tónlist og karlmenn, annað var ekki eins áberandi.
Alltaf eru einhverjir að reyna að vera spes. Og alltaf tekst
einhverjum það: Yoga og ástarleikir eru höfuðtómstund-
ir þeirra.
16. Tekur það tíma frá námi? □ Að miklu leyti □ Soldið
□ Að litlu leyti □ Nei
Hjá flestum taka tómstundirnar „soldið“ mikinn tíma
frá náminu, en maður bara spyr: Soldið? Er það ekki allt
of mikið? Sko, þiggið gott ráð: Skipuleggið tímann, gerist
virkir skóflumenn! Notið tímann í að læra og dauðan tíma
í mokstur. Það margborgar sig ekki að sóa tíma í þrosk-
andi og mannbætandi tómstundaiðkanir!
17. Þegar þú ferð út að skemmta þér, skemmtirðu þér þá:
□ Án víns □ Með víni □ Stundum með víni □ Annars,
hvernig? ____________________________________
,,Allt er best í hófi, nema síður sé“ gildir hér. Við erum
sem sagt mesta hófsemdarfólk, í hófi þó. Helmingur
þeirra sem spurðir voru segjast fara stundum með víni
út að skemmta sér. Stígandinn er þannig að fleiri og fleiri
fara ekki út að skemmta sér án tilheyrandi, eftir því sem
líður á árin. Hámarki nær þessi tilhneiging í 6. bekk, þar
sem41% stúlknaog45% piltaerumeð krónískan höfuð-
verk.
18. Hvað óttast þú mest í framtíðinni? □ kjarnorkustyrj-
öld □ Atvinnuleysi □ Að fá AIDS □ Hræðist ekki neitt.
Beware! Doomsday is near! En flestum MR-ingum er
alveg sama! Næstflestum er ekki sama en mér er alveg
sama.
19. Ertu á föstu? □ Já □ Nei □ Já og nei.
Þeir sem eru á föstu.
3. bekkur 4. bekkur 5. bekkur
20. Reykirðu? □ Já □ Nei
Þeir sem reykja.
6. bekkur
12%
29%
38%
25%
8%
25%
3. bekkur 4.bekkur 5. bekkur 6. bekkur
21. Telurðu þig □ bráð- □ meðal- □ ekki gáfaða(n)?
Sjálfsmat okkar er ekki beisið. Það er eiginlega stór-
skömm að birta það, að við teljum okkur MEÐALgáfuð!!
Nei, þetta verður að taka út! Uss!
GOSI.
Skólablaðið 5