Skólablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 21
Pax Vobis
Oft hefur verið fjallað um hljóm-
sveitir á síðum fyrri skólablaða, en þá
oftar um erlendar heldur en íslensk-
ar. Það var því kominn tími til að
breyta hér til og fór ég því á fund
hljómsveitarinnar Pax Vobis - þeirr-
ar hljómsveitar, er lýst hefur verið
sem einni af bestu hljómsveitum
landsins. AHir kannast við nafnið,
enda spilaði hljómsveitin t. d. í Laug-
ardagshöll þ. 17. júní síðastliðið sum-
ar. Meðlimir sveitarinnar eru allir
ungir að árum og meðalaldur með-
Iima rúm 18 ár. Hvers vegna hefur
hljómsveitin náð þá svona langt? Við
reynum m. a. að svara þeirri spurn-
ingu:
Meðlimir Pax Vobis eru þeir
Ásgeir Sæmundsson, hljómborðs-
leikari og söngvari; Skúli Sverrisson,
bassaleikari; Porsteinn Gunnarsson,
trommuleikari. og Porvaldur Þor-
valdsson, gítarleikari. Ég hitti þá
Ásgeir og Þorstein að máli.
Nú þýðir Pax Vobis friður okkar.
Eruð þið með einhvern friðarboð-
skap, t. d. þá í textum?
Ásgeir: „Við berjumst ekkert fyrir
honum þannig.“
Hvernig varð hljómsveitin til og
hvenær byrjuðuð þið?
Ásgeir: „Hún var stofnuð fyrir
tveimur og hálfu ári síðan, eða 23.
október 1982. Við erum þrír, sem
höfum starfað saman í 6 ár, þ. e. ég,
Skúli og Þorvaldur. Við vorum í
hljómsveitinni Exodus og var þar t. d.
Björk, sem nú er í Kuklinu. Við hætt-
um í því bandi, hvíldum okkur í eitt ár
og stofnuðum síðan Pax Vobis.
Trommarar hafa haldist illa hjá okkur
og byrjaði Þorsteinn í október.“
Hljómsveitin Pax Vobis. Talið frá vinstri eru: Þorsteinn Gunnarsson, Þorvaldur Þorvaldsson,
Skúli Sverrisson og Ásgeir Sæmundsson.
Skólablaðið 21