Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 15

Skólablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 15
mér snarl. Þá tók ég til kaffi og bakkelsi og gerði mig kláran fyrir heimsókn, en ákvað að kæmi enginn færi ég í sund. Það stóð heima að bjallan hringdi á slaginu tíu. Ég fór til dyra og þar stóð ung stúlka klædd svartri slá. Fyrir utan stóð stórt, svart mótorhjól. ,,Sæll, ert þú Eiríkur?“ Hún brosti mjög fallega og ég hugsaði með mér að þetta væri einhver brand- ari, þá hefði háðfuglinn að minnsta kosti góðan smekk á kvenfólki. ,,Já, það er ég, hver ert þú?“ „Ég heiti Sólveig og er frá skrifstofu Dauðans, þú átt að deyja núna á eftir, er það ekki?“ ,,Jú, eða svo var mér sagt. Rétt fyrir tólf.“ „Svo snemma? Heyrðu, þá er líklegast best að ég verði fylgdar- maður þinn, það er svo lítill tími eftir.“ „Whatever you say, honey.“ Hún byrjaði að yfirheyra mig um allar staðreyndir og persónuupplýsingar, en virtist reyndar vita öll svörin fyrir. Hún spurði mig út í hagfræðiprófið mitt, um hvað ég hefði skrifað rit- gerðirnar mínar, spurði mig svolítið út í doktorsgráðuefnið mitt og þar fram eftir götum. Loks kom hún sér að efninu: „Trúir þú á Guð?“ „Nei og hef aldrei gert, hefur reyndar aldrei líkað við manninn. Hugsaðu þér: nokkrir hommar reyna við umboðs- mennina hans og allt verður vitlaust. Sódóma og Gómorra horfnar á einu bretti!“ „Það var ágætt.“ „Ágætt? Sódóma og Gómorra? Þetta er álíka og þú varpaðir kjarnorkusprengjum á Las Vegas og Atlantic City bara af því að þú spilar ekki bridge!“ „Nei, vin- ur, ég meinti nú það að þú tryðir ekki á Guð. Það væri ekki sniðugt ef þú tengdist honum of náið.“ „Já - já, heyrðu, ég er búinn að fá nóg af þessu sjitti, hver er meiningin?“ „Það er von þú spyrjir, mér var farið að finn- ast þú grunsamlega samvinnuþýður. Málið er það, að það er heilt sýstem sem gengur út á það að koma fólki á áfangastað, til Guðs, Lúsífers, í Nírvana og alla þá áfangastaði sem hugurinn girnist. En svona á það heila litið eru þetta bara þrír staðir, Himnaríki, Hreinsunareldurinn og Helvíti, en þeir eru með margar deildir fyrir hin ýmsu trúarbrögð.“ „Meinarðu að maður geti valið hvert maður fer?“ „Nei, en hafir þú verið næs í lífinu þá ferð þú til himna eða þess staðar sem þú hefur gert þér í hugarlund sem betri staðinn. Eða Helvítis, hafir þú til þess unnið.“ „En Hreinsunareldurinn?" „Það erstaður fyrir þá sem ekki er hægt að meta til vistar á öðrum hvorum staðnum.“ „Einmitt og hvar kem ég inn í dæmið?“ „Þú virðist vera einn af hreinsunareldskandídötunum og okkur vantar sárlega hagfræðing í toppklassa og okkur virtist þú vera fínn í djobbið.“ „En ánægjulegt!“ Hún brosti. „Láttu ekki svona, það er ágætt að vinna þarna. Eilíft líf og flest það sem hugurinn girnist. Líttu á mig. Fyrir átta árum var ég skrifstofupía hjá Hafskip og var ekki á leiðinni neitt nema til efri ára. Síðan dó ég, er orðin starfsmannastjóri hjá Dauðan- um og búin að vera tuttugu og níu ára síðan. Ég á fallegt hús, nálægt Himna- ríki, ræð eigin vinnutíma mjög mikið, er að læra á píanó, á tvo ketti og veit að ég er að gera gagn. Getur þú hugs- að þér betra líf — eða öllu heldur betri dauða?“ „Jah, varla. En segðu mér, er Dauðinn, þú veist, beinagrind í svörtum kufli, á ljósum hesti, sveifl- andi ljánum ...? „Gamli maðurinn? Nei - nei, hann er besta skinn, svona um sextíu og fimm ára gamall, alltaf æðislega fínn í tauinu. Það er hann sem er að kenna mér á píanó!“ „En þú? Svört slá og svart mótorhjól, hvað á það að fyrirstilla? Einkennisbún- ingur?“ Hún hló og sagði: „Bíddu fyrir þér, nei. Ég geri það nú bara að gamni mínu, út af djobbinu. Annars væri nú ekki slæm hugmynd að fá sér ljá!“ Og hún veltist um af hlátri. „En hvað í ósköpunum hafið þið við hag- fræðing að gera?“ „Guð, ef ég veit það! En í alvöru talað held ég að þú eigir að endurskipuleggja sjoppuna og standa í samningsgerð við Guð og Skólablaðið 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.