Skólablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 41
M.R.—Samvinnuskólinn
Keppni þessi var einnig haldin í Há-
tíðarsal Menntaskólans í Hamrahlíð
- „heimavelli“ okkar M.R.-inga.
Umræðuefnið var: „Á að leyfa yfir-
burði?“. Samvinnuskólinn var því
fylgjandi. Þetta efni bauð varla upp á
skemmtilega vörn en einhvern veginn
tókst okkar mönnum að sigra „uppá-
dressaða SÍS-gaura“. Dómarar
kvöldsins virtust því sammála, að
bæði þessi lið ættu heima í úrslitum en
aðeins annað endaði þar - lið M.R.
Við sigruðum 1406-1346 og ræðu-
maður kvöldsins varð Jóhann Frið-
geir Haraldsson. Eftir úrslitakeppn-
ina lýsti Jóhann Friðgeir því yfir, að
þessi keppni hefði verið sú erfiðasta
af öllum, en víkjum nú að úrslita-
keppninni.
„Jóhann Friðgeir Haraldsson, betur þekktur sem ræðumað-
ur kvöldsins.“
Háskólabíó: M.R.-M.K.
Það er miðvikudagur 6. mars 1985.
Eg er staddur í kjallara Casa Nova.
Klukkan er 4 og ég er að setja inn á
tölvu eina af greinum mínum. Það er
mikið um að vera, borðar eru málað-
ir, slagorð samin fyrir kvöldið og em-
bættismenn Framtíðarinnar á þönum
út um allt. Klukkan er nú skyndilega
orðin sex. Ég er á leið heim en Skóflu-
menn eru að leggja síðustu hönd á
borðana. Kvöldið er framundan,
stórviðburður ársins - úrslit Morfís-
keppninnar. Er ég kem í Háskólabíó
er þar hópur manna fyrir utan. Ég er
kominn inn rétt fyrir 20.30 og kem
mér fyrir í sæti mínu. Það er nú hálf-
tími þangað til keppnin hefst.
Smám saman .fyllist Háskólabíó.
M.R. er vinstra, M.K. hægra megin.
Spjöld eru komin á loft og mikið
öskrað. M.K.-ingur nokkur ber húðir
okkur til hrellingar. Klukkan er nú
rúmlega níu og fundarstjóri gengur í
salinn. Hann segir fund settan og býð-
ur heiðursgest kvöldsins velkominn
og inn gengur forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir. Menn rísa úr sætum
og fagna henni innilega. Fundarstjóri
biður menn einnig að minnast Þórs
Sandholts, er keppti í úrslitum
mælskukeppni framhal3sskólanna
hér í fyrra.
Skólablaðið 41