Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 30

Skólablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 30
Ingvar Sverrisson s Astarsaga Það kostaði miklar fortölur ritnefndar að fá þessa sögu birta, þar sem ábyrgðarmað ur blaðsins var því mjög svo mótfallinn, og er sagan birt á ábyrgð höfundar. Umluktir myrkri, eins og tveir fiskar í djúpu vatni, höfðum við hlaupið eftir nafnlausum götum, skotist í gegnum þröng húsasund, gengið hönd í hönd yfir auð svæði á milli hverfa og síðan aftur tekið á sprett eftir nafnlausum götum, enda- lausum götum, þar til ég var búinn að tapa öllum áttum og vissi ekki einu sinni í hvaða hluta borgarinnar ég var staddur. En það skipti mig engu máli, - aðeins fótatak hlaupandi manns, ís- kalt andlit mitt og það, sem farið hafði á milli mín og hans fyrr um kvöldið, skipti máli og knúði mig um leið áfram. Lengst af hljóp hann á undan mér og vísaði þannig leiðina, en stundum nam hann staðar, þegar hann sá að ég hafði dregist aftur úr, og leyfði mér að kasta mæðinni. Þegar hann vildi síðan hlaupa af stað aftur bað ég hann að staldra aðeins lengur við, en þá brosti hann einungis ögrandi upp í kolsvart- an himininn og sagði: „Nei, við verð- um að halda áfram, annars mun þessi kuldi smjúga í gegnum okkur eins og eiturörvar og utan um hjartað í okkur mun setjast grá klakabrynja. Augun munu breytast í svarta steina, blóðið í sand og fæturnir munu molna í sund- ur eins og fúnar spýtur við minnstu snertingu.“ ,,Komdu,“ hrópaði hann síðan hvetjandi er hann hafði hlaupið spöl- korn frá mér og til að missa ekki sjón- ar af honum elti ég. Út undan ,mér sá ég hvernig gult skin götuljósanna smitaði frá sér, en þegar ég leit hærra upp blasti aðeins við mér víðfeðmt svartnætti, — yfir- þyrmandi í einkennilegri nálægð sinni. Ég fékk það á tilfinninguna að næmi ég staðar einii sinni enn myndi ég hverfa inn í það, leysast upp og verða að hvítu ryki sem síðan fél.li á kalda og gráa götuna. En von bráðar var þetta ferðalag á enda. Hann beygði inn einhverja hliðargötu og beið mín fyrir framan eitt húsið. Ég hægði á mér og gekk síðustu skrefin til hans með kuldagjóstinn í bakið. Þegar ég hafði faðmað hann að mér opnaði hann garðshliðið og við gengum upp að húsinu. Um leið og hann hafði lokað hurðinni á eftir okkur kveikti hann ljósið í forstof- unni og ég fann hvernig blóðið tók að streyma örar í æðum mínum. í stigan- um upp á efri hæð hússins tók ég um öxl hans og spurði: „Af hverju hljópstu svona hratt?“ Hann leit við brosandi og svaraði: „Það elti mig einhver í myrkrinu.“ í fyrsta skipti — og kannski í síðasta skipti — ligg ég við hlið hans undir hvítri og mjúkri sæng. í fyrsta skipti - og kannski í síðasta skipti - hlusta ég á þýðan andafdrátt hans sem líður með jöfnu millibili út í dimmt her- bergið. Stundum færi ég mig nær honum og hvísla þá einhverju í sofandi eyra hans og um leið hverfur allur ótti úr huga mínum. Stundum strýk ég líka fingr- unum yfir dökkt andlitið og legg höfuð mitt varlega á brjóst hans, -ég heyri mjúk höggin og öll orð verða einskis nýt. Enginn sér eða gæti vitað að hér ligg ég grímulaus í ókunnum faðmi og þó að einhverjar efasemdir leiti á huga minn, minning eða eitt nafn, þá er það alltaf þessi ást, ef til vill örlítil hamingja, sem sigrar að lokum. Allt er allt í þessari kyrrð, látlaus umgjörð fallegrar sögu. Ég reis snemma á fætur morguninn eftir, klæddi mig í skyndi og lokaði glugganum sem hafði staðið opinn alla nóttina. Síðan settist ég niður á stól við rúmendann, virti andlit hans fyrir mér og beið. Vangar hans voru þaktir örfínum skeggbroddum og þykkt, svart hár hans stóð út í loftið, en augun voru lokuð og virtust jafnvel vera límd 30 Skólablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.