Skólablaðið - 01.03.1985, Side 6
Afmælisgrein
Guðni Guðmundsson
egar menn heyra minnst á
Menntaskólann í Reykjavík
kemur mörgum fyrst í hug Guðni
Guðmundsson. Hann hefur nú starf-
að við skólann í 34 ár, og í hugum
margra er hann svo nátengdur skól-
anum, að án hans væri skólinn sem
maður án andlits. Guðni er fyrir
löngu orðinn landsþekktur maður
fyrir staðfestu og röggsemi í skóla-
stjórn sinni og síðast en ekki síst, fyrir
mergjuð tilsvör sín og hefur af þeim
sökum fengið á sig viðurnefnið
„kjaftur".
Guðni fæddist þann 14. febrúar
1925 og ólst upp hjá foreldrum sínum
að Óðinsgötu 8. Faðir Guðna var
Guðmundur Guðnason, sem starfaði
sem gull- og silfursmiður og var
Arnesingur að ætt. Móðir Guðna var
hins vegar borinn og barnfæddur
Reykvíkingur af gamalli ætt hér í bæ,
skyld Jóni Sigurðssyni, forseta; hún
hét Nikólína Sigurðardóttir. Guðni er
yngstur systkina sinna, en þau voru:
Bjarni, sem lengi var blaðafulltrúi
ríkisstjórnarinnar og áður fyrr einn
helsti höfundur revíanna svökölluðu;
Gunnar, sem var um skeið fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar-
innar, en dó um aldur fram; þriðji
bróðir Guðna er Kjartan og starfar
hann sem tannlæknir; eina systur á
Guðni og heitir hún Sigríður.
Eftir barnaskólanám í Æfingaskóla
Kennaraskóla Islands fór Guðni til
Akureyrar og stundaði menntaskóla-
nám sitt þar. Á Akureyri dvaldist
hann hjá systur sinni, Sigríði, og mági,
Halldóri Halldórssyni, sem þá var
aðalíslenskukennari við skólann þar.
Eftir stúdentspróf hélt Guðni utan
til Edinborgar til málanáms og las þar
aðallega enskar og franskar bók-
menntir. Hann dvaldist um skeið í
París.
Pegar Guðni hafði lokið prófum
sínum í Edinborg 1951, kom hann
heim aftur og byrjaði kennslu ung-
lingadeild Miðbæjarskólans. Sama ár
byrjaði hann svo að kenna í M.R. og
kenndi þá einnig í Miðbæjarskól-
anum næstu tvö árin, þar sem ekki var
mikla kennslu að fá í M.R. í byrjun.
Sumarið 1952 byrjaði Guðni sem
blaðamaður hjá Alþýðublaðinu og
var viðriðinn blaðamennskuna allt til
ársins 1968. Þegar Einar Magnússon
hætti störfum 1970, bauð Guðni sig
fram til rektors, og var hann eini inn-
anskólamaðurinn sem gaf kost á sér.
Guðni er tólfti rektorinn síðan skól-
inn var fluttur til Reykjavíkur.
Ungur gekk Guðni að eiga Katrínu
Ólafsdóttur og er hún Austfirðingur
að uppruna, sonardóttir Sveins í Firði
í Mjóafirði, alþingismanns. Börn
þeirra hjóna eru: Guðmundur, sem er
elstur, starfar nú sem rafvirki; Hildur,
sem er búsett í Los Angeles; Anna
Sigríður, sem stundar nám í bóka-
safnsfræði; Ólafur Bjarni, blaðamað-
ur hjá DV; Guðrún húsfreyja;
Sveinn, sem varð stúdent í fyrra; og
svo Sigurður, sem nú er í 6. bekk A.
Allmörg barnabörn á Guðni nú þeg-
ar, eða eins og hann segir sjálfur, þá
koma þau á færibandi. Guðni er tón-
elskur maður, enda söng- og gleði-
maður mikill, veitull og jafnframt
hrókur alls fagnaðar og sjálfkjörinn
forsöngvari á skemmtunum kennara.
Auk þess að spila á gítar hefur Guðni,
eins og áður segir, hina ágætustu
söngrödd og hefur í fjölda ára verið
félagi í karlakórnum Fóstbræðrum.
Guðni hlustar aðallega á klassíska
tónlist og þá helst gömlu meistarana,
svo sem Bach, Hándel og Beethoven
og óperuhöfundana Mozart og Verdi,
en hefur hins vegar litla ást á Wagner
að eigin sögn. Á hann plötusafn mikið
og fer á flesta sinfóníuhljómleika og
óperur, ef hann mögulega getur.
Dægurlagatónlist alls konar er hins
vegar í litlu áliti hjá honum og kallar
hann allt slíkt einu nafni graðhesta-
hrinur.
En áhugamál Guðna eru mörg og
margvísleg og fyrir utan tónlistina er
fótbolti í miklum metum hjá honum.
Ef enska knattspyrnan er í sjónvarp-
inu má heita fullvíst að Guðni sé
negldur fyrir framan kassann með
penna í hendi, merkjandi inn á get-
raunaseðilinn sinn. Guðni er mikill
lestrarhestur, Ies enska reyfara sér til
hvíldar, en önnur rit af alvöru, eink-
um sagnfræði lengi vel, og er þar vel
að sér, hvar sem borið er niður.
Guðni er skapstór maður, og er það
ekki neinum til lasts ef menn kunna
að stjórna skapi sínu. Og það gerir
Guðni áreiðanlega miklu oftar en
flesta nemendur mun óra fyrir, jafn-
oft og ástæða væri til að stökkva upp á
nef sér fyrir mann, sem stjórnar af
skörungsskap jafnstórum hópi og
hann, bæði misjöfnum nemendum og
enn ódælli kennarastofu.
Á þessum merku tímamótum æv-
innar árnar Skólablaðið, jafnaldri
hans, honum og fjölskyldu hans allra
heilla og lætur í ljós þá von og ósk
sína, að honum megi auðnast að
stjórna okkar gamla skóla enn um
mörg ár í góðu gengi.
6 Skólablaðið