Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1985, Síða 12

Skólablaðið - 01.03.1985, Síða 12
II. Martin komst burt frá Rússlandi. Hann barðist á götum Berlínar 1945. Stuttu síðar sat hann í rústum borgar- innar og sá langar raðir herbíla með bandaríska hermenn innan borðs. Eftir uppgjöfina var þýsku hermönn- unum safnað saman í fangabúðir. Martin var einn fárra sem töluðu góða ensku, því var hann notaður sem túlkur. Er hermönnunum var sleppt úr haldi hélt hann starfinu. Og þegar herdeildin, sem hann starfaði hjá, var send heim sótti hann um að fá að fylgja henni. Hvers vegna ekki? Ætt- ingjar hans og vinir höfðu verið sprengdir í burtu. Allan þennan tíma hafði honum liðið einkennilega. Martin áleit að það stafaði af því róti sem komið var á líf hans og myndi lagast er frá liði. III. 1950, haust Martin sat á litlu kjallaraveitingahúsi á vesturströnd Bandaríkjanna. Það var kvöld og kerti loguðu á rauðdúk- uðum borðum. Fimm ár höfðu liðið. Honum leið ennþá einkennilega. Martin vissi það fyrir löngu að eitt- hvað hafði gerst í huga hans þegar hann var vakinn af vopnabræðrum sínum í neðanjarðarhellinum 1944. Hann hafði ekki hugmynd um hvers vegna en vissi aðeins að það var þá sem hann losnaði úr tengslum við líf- ið. Það sem kom fyrir augu Martins þar, verkaði ekki á hann sem raun- veruleiki heldur fannst honum eins og hann væri að horfa á kvikmyndatjald sem næði umhverfis hann. Og honum fannst hann ekki tilheyra því frekar en fólki finnst það geta lifað í kvik- mynd sem það sér. Honum fannst jörðin undir fótum sér vera ótraust. Það var eins og hann gengi á strengdri línu einhvers staðar hátt uppi. Og línan dúaði við hvert skref. Martin sá borð fyrir framan sig. Hann lagði höndina á það. Örskamma stund varð tilvera hans raunveruleg og hann skynjaði hinn þrívíða heim. En brátt varð snertingin óraunveruleg og ver- öld hans varð einhvers. konar tvívíð mynd að nýju. Þannig liðu dagarnir í lífi Martins. Það var aðeins nokkrum sinnum á dag og þá í stutta stund í senn sem hann fann fyrir raunveru- leika vanalegs fólks. Það voru fáir gestir á veitingahús- inu. Skammt frá honum sat ung kona. Bæði höfðu þau lifað fjórðung aldar. Hún hafði setið lengi, ein, við tveggja manna borð. Þótt fólk vekti ekki áhuga Martins lengur frekar en annað þá vissi hann eftir hverjum hún beið. Hún bjó í sama hverfi og Martin og því hafði hann ekki komist hjá því að sjá hana ganga fram hjá glugga sínum í fylgd með manni á aldur við hana. Þótt Martin hefði séð hann margsinn- is gat hann ekki munað nema eitt varðandi útlit hans: Hann hafði há kollvik. Martin skildi ekki hvers vegna hann veitti þessari konu athygli ein- mitt nú. Hún gaf þjóninum bendingu og Martin heyrði hana segja: „Berðu fram matinn. Hann hlýtur að koma rétt strax.“ Tíu mínútum síðar sat hún enn fyrir framan autt sæti og horfði á tvo diska með ljúffengum kræsingum. Þjónn- inn leit á hana með svip sem Martin hafði aldrei séð fyrr. Þaö glampaði á augu hennar. Martin sá augnalok drúpa og tvö þung tár mynda glitrandi rákir niður kinnar hennar. Hann fékk kökk í hálsinn. Honum hafði ekki lið- ið svona síðan hann var ungur í Þýskalandi. Martin fann að hann varð að gera eitthvað og sá undrunarsvip- inn á andliti hennar er hann settist í auða sætiö. „Hafðu ekki áhyggjur af þessu," sagði hann. „Þetta var sveppur sem hefði orðiö hárlaus um þrítugt.“ Hún hló en tárin héldu samt áfram að renna. Síðan sagði hún með rödd sem brast við og við: „Hann gat ekki séð það hlægilega við lífið. Hann hringdi í mig og bauð mér út að borða eins og oft áður. Eg sagði við hann í fíflaskap: „Vertu með hatt, ég vilekki að fólk viti að ég fari út með manni sem er að missa hárið." Hann skellti á mig. Eg var viss um að hann myndi koma. Eg hélt hann væri orðinn vanur því hvernig ég læt. En hann sér ekki það hlægilega við allt í kringum okk- ur. Eg veit ekki hvað ég hefði gert ef þú hefðir ekki komið.“ Þau sátu yfir matnum þar til staðn- um var lokað. Daginn eftir sagði hann herbergi sínu lausu og fluttist í hús hennar. IV. En einungis þetta eina kvöld var Martin í sambandi við lífið. Strax morguninn eftir leið honum sem fyrr, að undanskildum þeim stundum er þau hlógu saman. Þau hlógu mikið og leið eins vel og einkennilegt hugar- ástand hans leyfði. Hún starfaði sem búningahönnuður við kvikmyndaver. Vinir hennar töldu hana hafa alger tök á lífi sínu. Og það hafði hún allt þar til hún grét á veitingahúsinu. Hún trúði Martin fyrir því að þá hefði hún gefist upp. „En það lagaðist," sagði hún oft brosandi. Leyndarmálin tengdu þau enn betur hvort öðru. Otal veislur voru haldnar á vegum kvikmyndavera borgarinnar. Þau Martin sóttu þær flestar. Honum leið best í veislum. í þess háttar andrúms- lofti nutu þau sín fyllilega. Þeim fannst einstaklega gaman að leika sér að og prófa annað fólk, komast að persónuleika þess með því að lokka það út í samtöl sem urðu sífellt flókn- ari, flækja það með margvíslegum að- ferðum í eigin mótsögnum þar til það var orðið gersamlega ráðþrota. Sjaldnast meintu þau neitt illt með þessu og gættu þess að gefa þeim, sem þau töluðu við, tækifæri til að fá upp- reisn æru að lokum. Þetta var einung- is þeirra aðferð við að eyða tímanum og geta hlegið. Og leikurinn varð meira spennandi eftir því sem sá, sem þau prófuðu, var gáfaðri. Ennþá höfðu þau þó ekki fundið nokkurn sem ekki var hægt að ringla gersam- lega. En með þessum leik kynntust þau fjölmörgum skemmtilegum per- sónum sem urðu vinir þeirra. V. 1952, nótt Martin vaknaði í húsi hennar eins og hann hafði gert síðastliðin tvö ár. Klæddur í buxur úr bláu silki og með teppi vafið um sig gekk hann út í bjart tunglskinið. Fyrst hugði hann sig vera staddan í draumi en vissi brátt að svo var ekki. Þó var allt breytt. Húsið hafði staðið við fjölfarna götu. Nú var það í djúpum dal umluktum snar- bröttum, dimmum fjöllum. Martin fylgdi döggvotum stíg niður að hyl- djúpu stöðuvatni. Hann stóð kyrr eitt 12 Skólablaðið

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.