Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 25

Skólablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 25
má svo gleyma M.R.-Versló hlaup- inu en þar var aldrei nein spurning um yfirburði okkar manna. Annað ball fyrra misseris var árs- hátíð Skólafélagsins og er henni rétti- lega lýst sem stórfljóti sem er að fara úr klakaböndunum. Hömlulaus í allri sinni dýrð! Er þó mál manna að eng- inn hafi slegið betur í gegn en questor vor, þó honum hafi fylgt fast á hæla h. u. b. helmingur skólans! Þykir það bara með þokkalegasta móti. 3. ball vetrarins var svo jólaballið sem Listafélagið hélt ásamt Versló. Þótti ballið takast vel utan ansi hreint kostnaðarsamra skemmdarverka. T. d. var heilt klósett mölvað svo að allra huggulegasti vökvi flæddi um gólf karlasnyrtingar staðarins. Hurð var brotin, og tvöfalt einangrunargler í neyðarútgangi var mölvað og hlýtur sá er þar á hlut að máli að vera sund- urskorinn ef ekki dauður! Svona mætti áfram telja og er þetta með ólíkindum. Öldungis makalaus and- skoti þetta! Listafélagið stóð að einum jasstón- leikum á seinna misseri og voru það Jassgaukarnir sem spiluðu. „Húsfyllir var.“ í Iok janúar hélt skólafélagið sitt fræga bítlaball og var stemmningin stórkostleg. Allur ágóði af ballinu rann í Selið okkar sem nú er unnið við af hinu mesta kappi. Er myndbands- nefnd búin að vera ein aðal driffjöð- urin í því máli og á þakkir skilið. Myndbandsnefnd sá einnig til þess að sá stórviðburður átti sér stað, að keypt var sjónvarp til notkunar í fé- lagslífi skólans. Olli það miklum breytingum til batnaðar og er byrjun- arstig í hreint ótrúlegum framförum sem vel gætu átt sér stað í náinni framtíð, hvað varðar tæknivæðingu skólans. Einir nemendatónleikar voru haldnir á sal í janúarmánuði og var þátttaka góð. Kom í ljós að í skólan- um er mikill fjöldi góðra hljóðfæra- leikara sem alltof sjaldan láta frá sér heyra. Annað bókmenntakvöld var svo haldið í febrúar, eínnig á sal. Var kvöldið tileinkað skólaskáldum fyrr og nú, og var Þórarinn Eldjárn gestur kvöldsins. Segir þá sögum næst frá árshátíð Framtíðarinnar. Var skemmtun hald- in í Gamla bíói um daginn og vakti þá óneitanlega mesta athygli leikþáttur eftir einn nemanda skólans, Arnór Gísla Ólafsson. Ballið var haldið í Þórskaffi og voru flestir vel við skál. Ástin blómstraði og voru öll skúma- skot nýtt til hins ýtrasta, þar sem menn tóku lífinu létt og fötum var flett. Og þannig var nú það! í febrúar var haldið skemmtikvöld í Cösu á vegum Listafélagsins og er talið að u. þ. b. 300 manns hafi sótt skemmtunina. Lesið var upp úr bók- unum „Kyneðli og kynmök" og „Hvernig elska á konu“. Meðal les- ara var Inspector vor og fyrirmynd og þótti hann bara komast vel frá lestr- inum. Davíð nokkur Skúlason hafði þó yfirhöndina, en honum tókst nær því að næla sér í viðurnefnið „stuna“, þ. e. Daddi stuna, en slíkir voru leik- hæfileikar piltsins. Var einnig sýnd kvikmynd sem tekin var í M.R. fyrir u. þ. b. 20 árum, sem auk þess að vera skondin mjög er mjög góð heimild. Seinni hluti kvöldsins var svo í hönd- um stuðmannsins Valgeirs Guðjóns- sonar og hélt hann uppi frábæru stuði íh. u. b.3tíma_eðatilklukkan01.15. En nú er mál að linni. Hafa hér verið til umfjöllunar helstu viðburðir félagslífsins í vetur en ónefnt er íþróttaballið, tónleikar með Hinum íslenska Þursaflokki og vonandi eitt- hvað fleira. Allt á þetta eftir að gerast þegar þetta blað fer í prentun, en nú slæ ég botninn og læt þessu lokið. Kjarabot til skolanema. Japis hf. veitir 20% afslátt af öllum hljómkassetum gegn framvisun skólaskírteina JAPIS hf BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133 viöurkend gæði um allan heim. Skólablaðið 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.