SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Qupperneq 6

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Qupperneq 6
6 10. apríl 2011 Leslie Ash hefur víða komið við á löngum leikferli. Hún vakti fyrst at- hygli í gamanþáttunum Rosie Dixon – Night Nurse árið 1978 en fyrsta kvik- myndahlutverkið var í Quadrophenia ári síðar. Af öðrum merkum myndum sem hún hefur leikið í má nefna Curse of the Pink Panther. Árið 1980 gerði Ash svo garðinn frægan í mynd- bandi bárujárnssveitarinnar Iron Mai- den, Women in Uniform. Frægust er Leslie Ash þó fyrir hlut- verk sitt sem Debs í gamanþáttunum Men Behaving Badly sem nutu mik- illa vinsælda. Því hlutverki gegndi hún í sex ár á tíunda áratugnum. Árið 1996 sendi Ash í félagi við vinkonu sína Caroline Quentin frá sér lagið Tell Him sem fór alla leið í 25. sæti breska vinsældalistans. Meðal nýjustu verkefna hennar eru heimildarmynd um varablásturinn voðalega, Leslie Ash: Face to Face, og hlutverk í þáttunum Holby City á BBC. Sparkelskir muna eflaust vel eftir bónda hennar, Lee Chap- man, sem varð Englandsmeistari með Leeds United 1992. Hann kom víða við, var meðal annars hjá Arsenal til skamms tíma, að- allega sem varamaður. Fjölbreyttur leikferill Leslie Ash á góðri stundu ásamt bónda sínum, gamla knattspyrnu- manninum Lee Chapman. É g var alin upp við að treysta lögreglunni en nú veit ég ekki hvað ég á að halda,“ sagði breska leikkonan Leslie Ash við dagblaðið The Guardian í vikunni. Til- efni ummælanna er sú staðreynd að breska lög- reglan sá ekki ástæðu til þess árið 2006 að gera Ash viðvart enda þótt hún hefði áreiðanlegar heimildir fyrir því að einkaspæjari nokkur hefði brotist inn í farsíma leikkonunnar, eiginmanns hennar og tveggja sona að undirlagi götublaðsins News of the World og stolið þaðan skilaboðum sem blaðið gerði sér síðan mat úr. Grunur lög- reglu var staðfestur við húsleit hjá spæjaranum. „Mér finnst lögreglan hafa brugðist mér. Ég botna hvorki upp né niður í þessu. Svo virðist sem lögreglan hafi hreinlega stungið sönn- unargögnum undir stól,“ sagði Ash sem ekki hef- ur tjáð sig um málið í annan tíma. Það var ekki fyrr en í janúar síðastliðnum að lögreglan viður- kenndi að hafa fundið upplýsingar á heimili spæj- arans, Glenns Mulcaires, fyrir fimm árum sem bentu til þess að hann hefði hlerað síma Ash og fjölskyldu hennar án þess að gera þeim viðvart. Leikkonan og eiginmaður hennar, knatt- spyrnumaðurinn fyrrverandi Lee Chapman, ákváðu í kjölfarið að stefna News of the World fyrir rof á friðhelgi einkalífsins. Það gerðu einnig af sömu ástæðu um tveir tugir annarra þjóð- kunnra Breta, svo sem leikararnir Sienna Miller og Steve Coogan og fyrrverandi sparkskýrandi Sky Sports, Andy Gray. Það vakti mikla athygli meðan á upprunalegu rannsókninni stóð árið 2006 að lögregla neitaði að gefa upp nöfn hundraða mögulegra fórnar- lamba Mulraines en spæjarinn var tekinn hönd- um og dæmdur í kjölfarið ásamt Clive Goodman, þáverandi ritstjóra News of the World. Í máli Ash í vikunni kom fram að henni sárnaði sérstaklega vegna þess að hún glímdi við erfið veikindi á þessum tíma og var fyrir vikið við- kvæmari fyrir öllu áreiti. „Það er ömurlegt til þess að hugsa að einhver hafi haft aðgang að mínum prívat og persónulegu símaskilaboðum.“ Fórna peði fyrir biskup Ný rannsókn er nú hafin á málinu og í vikunni handtók lögregla blaðamann og fyrrverandi að- stoðarritstjóra News of the World en sleppti þeim síðar án ákæru. Báðir neita sök. Sjálfri þykir Ash lítið til þessa brölts lögreglu koma. „Þetta skiptir ekki nokkru máli. Þessir tveir menn eru bara blórabögglar. News of the World ætlar greinilega að fórna peði fyrir biskup. Þeir verða hæstánægðir með að ljúka málinu með þessum handtökum – og lögreglan líka.“ Synd væri að segja að líf Leslie Ash hafi verið dans á rósum undanfarin ár. Ósköpin byrjuðu ár- ið 2003 þegar hún lét stækka varirnar á sér. Að- gerðin misheppnaðist með þeim afleiðingum að varir leikkonunnar blésu út. Vakti þetta að von- um mikla athygli í Bretlandi og víðar og mikil þórðargleði braust út á fjölmiðlum sem veltu sér aftur á bak og áfram upp úr óförum Ash og hinu breytta útliti. „Hefði ég misst fótlegg í bílslysi hefði fólk ekki gert svona miskunnarlaust gys að mér. Það hlær enginn að Heather Mills vegna þess að hún missti fótlegg,“ sagði Ash síðar. Ári síðar var Ash lögð inn á spítala með tvö brotin rifbein eftir að ástarleikur þeirra hjóna hafði farið úr böndum. Að sögn flaug hún fram úr rúminu og hafnaði á borðræfli í grenndinni. Ash var brautskráð nokkrum dögum síðar en lögð fljótlega inn aftur eftir að hafa misst allan mátt í fótum. Eftir dúk og disk kom í ljós svæsin sýking sem hefði hæglega getað komið í veg fyrir að leik- konan gengi á ný. Meðferðin gekk hins vegar vel og fjórum mánuðum síðar var Ash farin að staul- ast um á hækjum. Hún var þó mun lengur að ná sér að fullu og hóf ekki störf að nýju fyrr en 2009. Ash var afar ósátt við vinnubrögð spítalans, taldi sig hafa sýkst þar, og höfðaði mál á hendur honum snemma árs 2007. Spítalinn gekkst að hluta til við mistökum og lauk málinu með sátt árið 2008. Komu fimm milljónir punda í hlut Ash, metfé í máli sem þessu. Sennilega ætti lögreglan að krossleggja fingur og vona Ash dragi hana ekki líka fyrir dómstóla! Öskureið lögreglu Breska leikkonan Leslie Ash ósátt við aðgerðaleysi vegna símnjósna Breska leikkonan Leslie Ash er ekki allskostar sátt við vinnubrögð lögreglu í heimalandi sínu. Það er betra að vara sig. Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Leslie Ash er 51 árs að aldri, fædd í Lund- únum 19. febrúar 1960. Hún kom fyrst fram í sjónvarpi aðeins fjög- urra ára gömul til að auglýsa uppþvottalög og starfaði sem fyr- irsæta á unglings- árum, sat fyrir í ýms- um blöðum og var ljósmynduð af ekki ómerkari mönnum en David Bailey. Fjögurra ára í sjónvarpi Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn 11. apríl, kl. 18 SvavarG uðnason Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd laugard. kl. 11–17, sunnud. kl. 12–17 og mánud. kl. 10–17

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.