SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 10
10 10. apríl 2011 J æja, lesendur mínir góðir. Þá er stóra stundin runnin upp. Í dag er þjóðaratkvæðagreiðsla númer tvö um Ice- save og enginn veit hvernig hún fer. Sannarlega vona ég að það verði mikil þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslunni og sannarlega vona ég líka að meirihluti þeirra sem taka þátt í henni segi nei og hafni hinum nýju ólögum, sem Alþingi sam- þykkti, en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, góðu heilli ákvað að synja staðfestingar og skjóta til þjóðarinnar. Ég er viss um að hótanirnar frá SA og ASÍ í garð launþega þessa lands í vikunni hafa haft þveröfug áhrif miðað við það sem þeir ætluðu sér, fóstbræðurnir Vilhjálmur Egilsson og Gylfi Arnbjörnsson. Þeir taka sér það vald að hóta launþegum lands- ins á þann veg að kjósi þeir ekki eins og þeim er sagt, þ.e. „já“ við Icesave, fái þeir bara engar kjarabætur. Er hægt að leggjast lægra? Þar sem ég er gallhörð í þeirri afstöðu minni að það séu mun meiri hagsmunir fólgnir í því fyrir Íslendinga í nútíð og framtíð að segja nei get ég varla skoðast sem hlutlaus, enda geri ég mér ekkert far um að vera álitin hlutlaus í þessu stóra máli. En þótt vissulega hafi ákveðnir talsmenn þess að samþykkja lögin um Ice- save staðið sig þokkalega í málflutningi sínum og sumir jafnvel ágætlega, þá verð ég að halda því til haga, að ég tel að þeir sem tala máli þeirra sem vilja hafna lögunum hafi mun meira til síns máls og mun sterkari málstað að verja. Bendi ég í því sambandi á frábæra grein Evu Joly í Morgunblaðinu á föstudag. Þeir sem vilja segja nei eru einfaldlega ekki tilbúnir til þess að samþykkja að Íslendingar sitji uppi með alla áhættuna af samn- ingnum. Lee Buchheit, formaður íslensku samninganefndarinnar, benti á, í málefnalegu og ágætu viðtali við Egil Helgason í Silfr- inu síðasta sunnudag, að allar þjóðirnar þrjár, þ.e. Bretar, Hol- lendingar og Íslendingar, bæru ábyrgð á Icesave og ættu í sam- ræmi við það að skipta áhættunni á milli sín. Það var ekki gert. Við sitjum ein uppi með áhættuna af samn- ingnum; okkar er gengisáhættan; okkar er áhættan af því að endurheimtur eignasafns Landsbankans verði ekki jafngóðar og gert er ráð fyrir nú að þær verði. Þessir áhættuþættir gætu hljóðað upp á hundruð milljarða króna, ef allt færi á versta veg. Bretar og Hollendingar fengju sitt og töpuðu ekki krónu, en skuldir okkar Íslendinga yrðu óbærilegar og við yrðum að ákveða að sú framtíð, sem við höfum í hyggju að bjóða börnum okkar og barnabörnum, verður ekki. Við þurfum að sætta okkur við, að til þess að geta staðið í skil- um við Breta og Hollendinga á skuld sem við stofnuðum aldrei til og enginn heldur fram lengur að okkur beri lagaleg skylda til að borga þurfum við að stórhækka skatta, við þurfum að skera niður í menntamálum, heilbrigðismálum, draga úr opinberum framkvæmdum, láta gamla fólkið sjá um sig sjálft, hvort sem það er fært um það eða ekki, og fleira og fleira. Nafnleysingjarnir í öfugmælahópnum „Áfram“, sem ætti í raun ekki bara að heita „Aftur á bak“ heldur miklu fremur „Fyrir björg“, hafa haft úr miklum fjármunum að spila til þess að reyna að kaupa sér atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni, án þess nokkurn tíma að gera grein fyrir hvaðan þeir fá allt þetta fjármagn. Það hefur aldrei kunnað góðri lukku að stýra að reyna að kaupa sér atkvæði og því ætla ég að leyfa mér að trúa því, þar til annað reynist sannara, að Íslendingar muni hvorki láta ógeðslega hákarla-auglýsingu í blöðum hinn 1. apríl sl. né aðra heilsíðuauglýsingu með 20 tannlausum hákörlum villa sér sýn, því eins og góður maður benti á, þá verða það ekki þessir 20 tannlausu hákarlar og fyrrverandi ráðherrar sem borga brús- ann, þegar og ef við fáum Icesave í hausinn. Eða ætla ráðherr- arnir fyrrverandi að leggja til að verðtryggð ofurlífeyrisréttindi þeirra verði skert, til þess að axla sinn hluta af byrðunum?! Nei eða já! Af eða á? Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is ’ Það verða ekki þessir 20 tann- lausu hákarlar og fyrrverandi ráð- herrar sem borga brúsann, þegar og ef við fáum Icesave í hausinn 6.30 Ég vakna alltaf korter yfir sex til hálfsjö á morgnana og fer á fætur. Þetta er bara inn- byggð klukka í mér, sama hvort ég er í sveitinni á sumrin í fríi eða í vinnu á veturna. Þá fer ég bara að dunda mér og gera eitt- hvað. 9.00 Svo mæti ég í vinnuna. Það er opið frá níu á daginn og ég er yfirleitt kominn hálftíma áður. Ég er að vinna í málning- arvöruversluninni Litaveri á Grensásvegi 18, sel málningu og veggfóður og skrautlista í loftið. 12.00 Stundvíslega klukkan hálftólf fer ég á út á kaffistofu Hreyfils og fæ mér að borða. Þar er fínn heimilismatur á góðu verði. Við teflum þar oft í há- deginu og svo í kaffinu líka, tökum alltaf eina til þrjár skákir. 18.00 Vinnudeginum lýkur alltaf klukkan sex, þá fer maður að gera upp og ganga frá. Síðan fer maður beint út á Seltjarn- arnes, hvort sem það er æfing eða leikur hjá Gróttu old boys, en í vikunni spiluðum við gegn Létti frá Breiðholti. 18.30 Þegar maður kemur út á Nes, það er alltaf mæting hálftíma fyrir leik, þá byrjar maður á því setja vatn í brúsana og hafa allt til fyrir leikmennina. Það er ekki svo gott að búning- arnir hangi á snaga eins og hjá stóru liðunum, en boltinn þarf að vera í lagi og skeiðklukkan og flautan á sínum stað. 19.00 Flautað til leiks. Ég kalla mig aldrei þjálfara, heldur liðsstjóra og eiganda, en ég er kallaður afi Gróttu eða pabbi, því ég hóf starfið árið 1965 og stóð í því algjörlega einn fyrstu tvö árin. Og svo var félagið lög- lega stofnað árið 1967. Fransi og Óli eru einu strákarnir sem eftir eru úr fyrsta fótboltahópi Gróttu, sem ég byrjaði að þjálfa sjö átta ára gamla. Ég fylgi þeim ennþá, segir Garðar og hlær. Ég get nú ekki sagt neitt gott um þennan æfingaleik í sjálfu sér, því 80% af sendingunum voru ekki nákvæm, eins og liðið getur spilað skemmtilegan bolta. Þetta var vorleikur, það verður að segjast eins og er. En ég segi það aftur, að við áttum að vinna leikinn 4-0 ef allt hefði gengið upp, miðað við færin sem við fengum. Það er kjána- legt að segja að markaskorarinn okkar hefði átt að skora þrjú! En hann skoraði þó mark, var alveg eins og Giggs þegar hann tók við boltanum. 21.30 Kom heim til mín eftir leikinn og þá fór ég í verkefni heima, sem ég vil nú ekkert gefa upp núna, segir hann og hlær. Ég kíki samt alltaf á Facebook þegar ég kem heim á kvöldin. Þar skoða ég hvað vinir mínir eru að gera, hlusta á myndbönd, skoða myndir – það er endalaus gleði. 24.00 Það er misjafnt hve- nær ég fer í háttinn á kvöldin. Á ég nú að fara að segja hvað ég geri með konunni? Hann þagnar. Þú ert ekkert að spyrja um músíkina, ég er búinn að vera á kafi í henni í hundrað ár! En ef þú ferð að spyrja um hana, þá verður þetta viðtal alltof langt. Ég er enn að garfa í henni. Og hann klykkir út með: Jæja, það verður leikur á mánudaginn. Þú mætir! pebl@mbl.is Dagur í lífi Garðars Guðmundssonar Garðar Guðmundsson stofnaði Gróttu og stýrir strákunum ennþá, sem nú eru komnir í old boys. Morgunblaðið/Ómar Kallaður afi Gróttu Ferðafélag íslands • www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533 Ferð í Fjörður með Valgarði Egilssyni Ferðafélag Íslands og Fjörðungar í Grenivík hafa bætt við á sumardagskrána ferð í Fjörður, fjögurra daga gönguferð dagana 12.–15. júlí. Undir stjórn hins margreynda fararstjóra Valgarðs Egilssonar læknis. Nánari upplýsingar á skrifstofu FÍ í síma 568-2533 eða fi@fi.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.