SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Síða 16

SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Síða 16
16 10. apríl 2011 Á tónleikum fiðlusnillingsins Söru Chang í Walt Disney-tónlistarhöllinni í Los Angeles í mars varð ekki komist hjá því að veita því athygli að þar eru þakkir fyrir fjárhagsstuðning uppi um alla veggi. Því er forvitnilegt að spyrja Helga hvort þessi hefð, að auðmenn styrki listir, skipti öllu máli í Bandaríkj- unum? „Við fáum eiginlega ekki neitt frá rík- inu sjálfu. Það sem við fáum er í gegn- um miðasöluna. Svo bætist við það sem kemur frá velunnurum okkar, hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar. Það er mikið um slíka styrki.“ – Hvert er hlutfallið? „Ég sé ekki um fjárhagshliðina en síðast þegar ég vissi var hlutur miðasöl- unnar á bilinu 55%-65%.“ – Salurinn tekur 3.200 manns í sæti. Hvernig er nýtingarhlutfallið? „Það fer dálítið eftir því hvað er á dagskránni. Það selst alltaf upp á Hnetubrjótinn, Svanavatnið eða Rómeó og Júlíu. Á hinum ballettunum, sér- staklega þegar það eru þrír ballettar á efnisskránni um kvöldið, er meðalnýt- ingin um 85-90% sem þykir afskaplega gott.“ Ekki eins og í óperunni – Ég sat á efstu svölunum á ballettinum Coppéliu hjá þér í síðustu viku. Þar mátti sjá skjá sem færði ballettinn nær áhorfendum. Það munaði þó ekki miklu. Kemur til greina að setja upp fleiri en eina myndavél eins og dæmi eru um að gert sé á óperutónleikum? „Notkun einnar myndavélar stafar af því að filmuvélin sjálf er ekki nógu góð fyrir dansinn. Ef maður horfir á óperu er mikið meira um að aðalpersónurnar séu kyrrstæðar. Söngvari syngur á ein- um stað og svo færist þungamiðjan annað. Hér eru dansarar á stöðugri hreyfingu fram og til baka um sviðið. Kvikmyndavélin í leikhúsinu er ekki nógu góð til að ná því. Það er þess vegna sem við notum aðeins eina upp- tökuvél. Það er sama vél og við notum á bak við sviðið til að sjá hvað er að ger- ast á sviðinu. Það væri gífurlega dýrt að fá slíkar kvikmyndavélar og setja upp í sýningarsalnum. Kostnaðurinn gæti hlaupið á hundruðum milljóna, ef ekki meira. Dans krefst allt annarrar upp- tökutækni en óperan.“ Bestu miðarnir í miðjunni – Þannig að maður þarf að venja sig á að koma með kíki? „Já. Ég verð að viðurkenna að mið- arnir sem eru efst uppi eru þeir sem seljast síðast. Það eru ekki dýrustu mið- arnir sem gera það. Ef fólk hefur áhuga á dansi vill það vera nær. En það er mjög gott fyrir ungt fólk eða nemendur að eiga kost á ódýrari miðum svo það komist inn.“ – Þú veist hvernig gengið er? „Já, já. Ég skil það alveg. Þegar ég var unglingur og var að fara á sýningar í New York þá sat ég þar líka,“ segir Helgi en bestu miðarnir í salnum þykja vera í miðjunni, þar sem fótahreyfingar og mynstur þeirra í dansinum sjást best. Reiða sig á velunnara Eftirvænting ríkti í anddyrinu í War Memorial Opera House skömmu fyrir sýningu á ballett- inum Coppéliu laugardaginn 19. mars í útgáfu Alexöndru Danilova og George Balanchine. Morgunblaðið/Zoë Robert Augnabliki fyrir sýningu. Efst á myndinni má greina svartan sívalning sem er áfastur loftinu. Hann geymir sýningartjald sem sýnir ballettinn í beinni útsendingu í gegnum upptökuvél. Morgunblaðið/Zoë Robert Efnisskráin hjá San Francisco-ballettinum sameinar klassíska hefð og framsækni. Á efnisskránni eru verk á borð við Copp- éliu í útgáfu Alexöndru Danilovu og George Balanchine, en í efnisskrá verksins segir að það krefjist framúrskarandi klassískrar tækni, næmis fyrir tónlist og kómískrar tíma- setningar. Kemur jafnframt fram í efnis- skránni að um 70 hljómlistarmenn séu í hljómsveit ballettsins, sem Martin West fer fyrir. Af öðrum verkum má nefna Litlu haf- meyjuna, en það var John Neumeier sem samdi dansinn við tónlist Leru Auerbach. Þá er hið klassíska verk Hnetubrjóturinn sett upp í ár sem og verkið Giselle en báðir eru ballettarnir í fullri lengd. Þá er verk Helga Tómassonar, 7 for Eight, sýnt sama kvöld og ballettarnir Ghosts og Chroma, en sá síðari er nýr, að því er vefur ballettsins greinir frá. Á öðru þriggja balletta kvöldi er boðið upp á Underskin, Number Nine og Petrouchka. Var ballettinn Number Nine raunar heims- frumsýndur í gærkvöldi. Annað slíkt kvöld samanstendur af Symphonic Variations, RAkU og Symphony in C en RAkU er nýr. Fjórða kvöldið þar sem þrír ballettar eru á efnisskránni samanstendur svo af Classical Symphony, Nanna’s Lied og Artifact Suite. Áhugasömum er bent á að sýningar á Litlu hafmeyjunni eru í gangi, líkt og áðurnefndir ballettar, 7 for Eight og Underskin. Má geta þess að Litla hafmeyjan var aug- lýst um alla borg, líkt og tónleikar Lady Gaga og U2. Var nafn Helga sérstaklega auglýst. Af einkahögum Helga er það að segja að hann á afdrep í sveitasetri í Napa Valley þangað sem hann leitar með konu sinni, Marlene, þegar færi gefst. Á Helgi þar litla vínekru en í setrinu er að finna íslenska list, að sögn San Francisco Chronicle. Hjónin eiga tvo syni, Kris (43 ára) og Erik (39 ára). Kris er hönnuður en Erik ljósmyndari. Klassík í bland við tilraunamennsku Yuan Yuan Tan í Litlu hafmeyjunni eftir John Neu- meier. Ballettinn byggir á ævintýri H.C. Andersen. Ljósmynd/Erik Tomasson Á síðustu tveimur árum hafa tvær vin- sælar kvikmyndir þar sem ballett kemur við sögu litið dagsins ljós, ástralska kvikmyndin Mao’s last dancer og verð- launamyndin Black Swan. Talið berst að myndunum á skrifstofunni hjá Helga og staldrar ballettmeistarinn við Mao’s last dancer, áhrifaríka kvikmynd um dans- arann Li Cunxin sem sló í gegn í Banda- ríkjunum eftir að hafa yfirgefið fóstur- jörðina við mikla vanþóknun kínverska kommúnistaflokksins. „Ég þekkti þann dansara. Ég samdi fyrir hann ballett í Houston þegar hann var þar. Þetta var yndislegur maður og frábær dansari,“ segir Helgi og vísar til ballettsins Beads of Memory sem settur var upp í Texas árið 1985. – Hafa þessar tvær myndir, sér- staklega Black Swan, aukið áhuga á ballett með því að höfða til breiðari hóps en sótt hefur ballett hingað til? „Ég veit það ekki. Það er gífurlega mikill áhugi, sérstaklega í þessari borg, fyrir dansinum. Ég veit ekki hvort það hefur aukið áhugann,“ segir Helgi og hugsar sig um. Víkur svo að myndunum tveimur. „Myndin um Li sýnir vel hvað hann þurfti að ganga í gegnum til þess að komast áfram. Black Swan er ekki raunsæ lýsing á ballett. Hin myndin var um dansara og hvernig hann komst upp á toppinn. Black Swan var sálfræðitryll- ir. Hún er í raun ekki mynd um dans.“ Hló að atriðum í Black Swan – Í Black Swan beitir franskur ballett- meistari öllum brögðum til að laða það besta út úr dansaranum sem Natalia Portman leikur. Er þetta raunsæ lýsing á sambandi dansara og þjálfara? „Nei.“ – Af hverju ekki? „Við í ballettheiminum teljum að myndin hafi ekki gefið rétta mynd af því hvernig ballettfyrirtæki starfa í dag. Myndin er fantasía. Ég get satt að segja sagt þér að á stundum gat ég ekki stillt mig um að hlæja í kvikmyndasalnum. Mér þóttu mörg atriðin svo fáranleg.“ – Hvaða atriði þá? Myndin lýsir þeirri gríðarlegu samkeppni sem er um að hreppa helstu hlutverkin. Hvað í lýsing- unni var út í hött? „Samkeppnin er mikil. Því er ekki að neita. Hins vegar er hún ekki jafn grimmileg hjá bandarískum ballett- hópum og skilja mætti af myndinni. Ballettkennarinn í myndinni er sérkapí- tuli út af fyrir sig. Ég hef aldrei séð kennara haga sér svona.“ – Það er mikið dansað í þessum myndum. Hversu góðir eru dansararnir miðað við atvinnudansara? „Dansararnir í myndinni um Li eru einstaklega góðir, sérstaklega sá sem fer með hlutverk hans. Það er alveg stór- kostlegur dansari. Í kvikmyndinni Black Swan er það ekki Portman sem dansar. Það er annar leikari sem kemur inn fyrir hana. Þetta sást á fótahreyfingunum. Þegar maður sá Portman í mynd var hún sjálf að „dansa“,“ segir Helgi og gerir gæsalappir með fingrunum. Brosir þó ekki. Lítt hrifinn af Black Swan OSCARS/

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.