SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Page 23
10. apríl 2011 23
Þ
að er mikið brautryðjandastarf unnið hjá Hinu íslenska fornritafélagi, sem hef-
ur nú gefið út Morkinskinnu í vandaðri útgáfu fyrir almenning.
„Næst á eftir Heimskringlu er Morkinskinna merkilegasta konungasagna-
safnið,“ segir Jóhannes Nordal, forseti félagsins, í samtali sem Pétur Blöndal á
við hann í Sunnudagsmogganum í dag. „Þetta er samfelld saga Noregskonunga frá Magn-
úsi góða og fram undir Sverri konung.“
Það fer vel á því að Jóhannes fari fyrir starfi Fornritafélagsins, sem stofnað var árið 1928,
því faðir hans, Sigurður Nordal prófessor, var fyrsti útgáfustjóri félagsins og gaf út fyrstu
söguna, Egils sögu. Jóhannes byrjaði snemma að lesa Íslendingasögurnar, kannski ellefu,
tólf ára gamall.
Hann segist ekki geta dæmt um það, hvort þjóðin hafi fjarlægst sagnaarfinn, þó að hon-
um þyki það líklegt. „Sögurnar voru alls staðar og ég held það sé óhjákvæmilegt, að þær
séu minna lesnar og öðruvísi en á þeim tíma. En ég er viss um að þeir sem lesa þær í dag
hafa jafngaman af þeim og þá. Ekkert hefur breyst að því leyti. Það er bara að komast á
bragðið.“
Það skyldi þó aldrei vera, að yngri kynslóðir geti vel hugsað sér að lesa Íslendingasög-
urnar, bara ef bækurnar eru til á heimilinu og þær ber á góma hjá foreldrunum. Og það
hlýtur að teljast mikils vert, að börnin komist á bragðið og fari ekki á mis við sögur og
lærdóm kynslóðanna.
Aðdráttarafl Hörpunnar
Helgi Tómasson hefur um langt árabil verið í hópi fremstu listamanna þjóðarinnar. Á
næsta ári verða 60 ár liðin frá því hann tók þátt í ballettsýningu í Þjóðleikhúsinu. Og það
eru mikilsverð tíðindi að hann sýni því áhuga að koma hingað til lands og setja upp sýn-
ingu með San Francisco-ballettinum í Hörpunni. Það á að vera vettvangur okkar fremstu
listamanna.
„Það væri afskaplega gaman að geta komið einu sinni enn með dansflokkinn heim,“
segir hann í samtali í Sunnudagsmogganum. „Nú veit ég ekki hvernig tónlistarhúsið
Harpan er eða hvort ballettinn geti fengið tækifæri til að komast þangað inn. Það væri
gaman að skoða Hörpuna og kynna sér hvernig aðstæður væru fyrir því að koma heim
aftur.“
Mikið hefur verið skeggrætt um ærinn kostnað við Hörpuna, en vonandi er áhuginn
sem Helgi sýnir aðeins forsmekkurinn af því aðdráttarafli sem Harpan hefur, að toga
listamenn á heimsmælikvarða til Íslands.
Það er fróðlegt að skyggnast yfir feril Helga í úttekt Baldurs Arnarsonar, sem tók viðtal
við hann í San Francisco í byrjun vikunnar. Helgi hefur verið listrænn stjórnandi dans-
flokksins frá árinu 1985 og hefur hann tekið stórstígum framförum síðan þá, svo mjög að
hann er almennt viðurkenndur sem einn fremsti ballett Bandaríkjanna. Og lykillinn að
framförunum er lífið sem skapast hefur í kringum dansflokkinn, ekki síst að tekist hefur
að vekja áhuga unga fólksins. Listin þrífst á samfélaginu og samfélagið á listinni.
Brautryðjendur í bókum
„Ég æpti upp yfir mig af gleði.“
Priyanka Thapa um að Útlendingastofnun ætlaði
að endurskoða umsókn hennar um dvalarleyfi.
„Ég keypti stærra sjónvarp og sé nú
allt sem ég vil sjá og stundum meira.“
Bjarni Erik Einarsson sem varð 100 ára sá text-
ann illa á sjónvarpinu og keypti því risaflatskjá.
„Hvað eru þau skrif annað en
ofbeldi og dónaskapur?“
Jón Gnarr í borgarstjórn um skrif
Agnesar Bragadóttur um hann í Morg-
unblaðinu.
„Lestu umsagnir for-
eldra, frekar en
Morgunblaðið.“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, við Jón.
„Það eru allar lík-
ur á því að bestu
pylsur í heimi sé að
finna á Íslandi.“
Bandaríski blaðamaðurinn
Victoria Haschka hreifst af
Bæjarins beztu.
„Timburmennirnir sem ég fékk
daginn eftir eru bestu timburmenn
sem ég hef nokkru sinni upplifað!“
Stefán Gíslason knattspyrnumaður drakk
kampavínsflösku ásamt konu sinni daginn
sem hann losnaði frá Bröndby í Danmörku.
„Við kynntumst í kælinum.“
Guðmundur Karl Tryggvason og Helga Árnadótt-
ir, nú eigendur Bautans á Akureyri, kynntust
þegar þau þrifu kælinn um áramót fyrir
margt löngu. Haldið var upp á 40 ára af-
mæli Bautans í vikunni.
„#%&##%&##%&#“
Fótboltamaðurinn Wayne Rooney fagn-
aði þriðja marki sínu fyrir Man. Utd.
gegn West Ham með því að blóta
hressilega beint í sjónvarpsvél.
„Þýðingin“ er Morgunblaðsins.
„Nýi framkvæmda-
stjórinn fær 4000 pund á
tímann. Ég fæ 7 pund. Er
það sanngjarnt?“
Aðstoðarkona í Lloyds Banking
Group á fésbókinni. Nýi yfir-
maðurinn lét segja henni
upp.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
bankamönnum og gestum þeirra: „Þegar við nú
fögnum fimmtíu ára afmæli Seðlabanka Íslands
búast því væntanlega margir við að ég segi bank-
anum til syndanna og lesi þungbrýndur upp af
löngu syndaregistri. Og víst er um það að fyrsti
áratugur þessarar aldar markaði ekki glæstustu
kaflana í sögu Seðlabankans eða sögu íslenskrar
hagstjórnar. Þessi ræða verður þó ekki í þeim dúr.
Þjóðin stendur frammi fyrir þeirri raunverulegu
ógn að umræðan í landinu stjórnist af heilögum
sakbendlum sem nærast á og næra hræsnisfulla
fortíðarsýn sem horfir framhjá framtíðinni, skilur
bara persónusögu, horfir framhjá samábyrgð og
hlífir sér við því að skilja í raun hvað gerðist og
þar með hvað fram undan er.
Málflutningur Seðlabanka Íslands til útskýr-
ingar á því sem aflaga fór að þessu leyti í aðdrag-
anda hrunsins er í fjötrum persónuvarnar þáver-
andi formanns bankastjórnar í tilraunum hans til
að koma sök á aðra. Skylda bankans er að skila
frjálsu og gagnrýnu fræðilegu mati á því af hverju
mælikvarðar Seðlabankans á fjármálastöðugleika
í landinu reyndust rangir. Meintar viðvaranir for-
manns bankastjórnar sem voru óskráðar og
ótengdar mati á fjármálastöðugleika eru nú
grunnur saksóknar gegn fyrrverandi forsætisráð-
herra. Getur slíkt verklag, jafnvel þótt það hafi
verið viðhaft, nokkurn tíma talist réttmætt, fag-
legt og stofnuninni samboðið?“
Menn hljóta að spyrja hvers vegna menn kjósa
að vega að Ragnari úr launsátri og með slíkum
samansúrruðum hrærigraut? Hætta er á því að
eftir þessi tilþrif þurfi Ragnar elsku karlinn minn
Reykás að bregðast við af afli vilji hann sjá til sól-
ar. Það er ekki spurningin.
Brim á Nesinu
Morgunblaðið/Ómar