SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Page 34
34 10. apríl 2011
V
erksmiðjuhúsnæðið við
Skúlagötu 28 þar sem Kex-
verksmiðjan Frón var til húsa
áratugum saman varð Pétri
Marteinssyni og félögum hans að inn-
blæstri. Þá langaði að gera eitthvað með
þetta húsnæði og fannst staðsetningin
skemmtileg og varð niðurstaðan sú að
opna hostel. Það hefur fengið nafnið Kex
og verður opnað í maí. Húsnæðið er bjart
og það er vítt til veggja. Iðnaðarmenn eru
hvarvetna að störfum til að gera allt klárt
fyrir opnunina. Eftir skoðunarferð reyn-
ist nauðsynlegt að færa spjallið yfir í hlið-
arherbergi vegna hávaða.
Til að byrja með voru þeir þrír í þessu,
Pétur, Kristinn Vilbergsson og Dagur
Sigurðsson. „Við erum gamlir félagar úr
Versló. Dagur er líka félagi úr sportinu,“
segir Pétur en Dagur er handboltaþjálfari
og Pétur fyrrverandi landsliðsmaður í
knattspyrnu. „Út af því hvernig húsið
var skipulagt var ljóst að það væri dýrt að
breyta þessu í hótel. Hostel er önnur hlið
á sama pening. Okkur fannst sú hug-
mynd skemmtileg. Við erum búin að
ganga í gegnum góðæri og erum í miðri
lægð. Okkur fannst eðlilegt á þessum
tímapunkti að bjóða uppá gistimöguleika
sem allir hefðu ráð á. Þú átt að geta kom-
ið hingað og haft það huggulegt og um-
fram allt skemmtilegt,“ segir hann og
höfðu þeir samband við húseigendur sem
leist vel á að hýsa svona starfsemi. Húsið
var í niðurníðslu og búið að leyfa bygg-
ingu háhýsis og til stóð að rífa húsið.
Til að láta drauminn verða að veruleika
þurfti fleira fólk í hópinn. „Ég fæ Eið
Smára og Hermann Hreiðarsson til liðs
við okkur en við erum gamlir félagar úr
landsliðinu. Við höfum oft talað um að
gera eitthvað saman,“ segir hann en
þarna kom tækifærið.
Kunnum að búa til stemningu
Pétur segir að þar sem þeir hafi ekki mik-
ið vit á ferðamannabransanum hafi þeir
fengið frænda Kristins til liðs við sig, sá
heitir Ásberg Jónsson og rekur ferða-
skrifstofu. „Það þurfti einn slíkan. Við
hinir kunnum bara að búa til stemn-
ingu,“ grínast Pétur og bætir við að þeir
hafi samt mikla þekkingu á ferðalögum
enda gist á mörgum hótelum í kringum
boltann.
Frá upphafi var takmarkið hjá þeim að
hafa hostelið skemmtilegt og öðruvísi.
„Fyrst þetta var mögulegt var ennþá
skemmtilegra að gera eitthvað upp-
byggilegt. Það er lagt upp með að hafa
þetta skemmtilegt. Út af því að við
ákváðum að hafa þetta skemmtilegt, er
búið að vera rosalega skemmtilegt. Allir
sem hafa komið að þessu hafa náð þessari
stemningu og lagt sig fram við að hafa
þetta gaman. Þetta er búið að vera ferli
sem hófst í júlí, ágúst á síðasta ári og
núna erum við að fara að sjá afrakst-
urinn,“ segir Pétur sem segir skemmti-
lega hliðarverkun af því að koma að
svona stóru og miklu verkefni vera þá að
hann missi af fréttunum um Icesave og
skattahækkanir.
Sköpunarkraftur allra hefur verið
virkjaður. „Það hafa allir lagt sitt í púkkið
og komið með hugmyndir hvort sem þú
ert málari, rafvirki, smiður eða pípari. Ef
hugmyndin er góð er hún framkvæmd og
það skiptir engu máli hver á hana.“
Stéttlaust hótel
Kex er víðsýnt hostel og er ekki upptekið
af því hvort það sé hótel, gistiheimili eða
hostel. „Við höfum oft verið á fimm
stjörnu hótelum eins og í kringum bolt-
ann en aldrei á skemmtilegum hótelum,“
segir Pétur og útskýrir að slík hótel sæki
sama týpan af fólki og það sama megi
segja um hostel. „Af hverju þarf að vera
svona mikil stéttaskipting á hótelum?“
segir hann en þessu ætla þeir að breyta.
„Við erum með sextán manna herbergi
með átta kojum en líka með tveggja
manna herbergi með hjónarúmi, sjáv-
arútsýni, sjónvarpi, baði og öllu tilheyr-
andi,“ segir hann en Kex verður með 38
herbergi fyrir 140 gesti. Líka verður hægt
að fara einhvern milliveg en þarna verða
einnig 2-4 manna gistiheimilisherbergi
og sex, átta og tíu manna herbergi. Von-
ast þeir til þess að með þessu skapist
skemmtilegt og fjölbreytilegt mannlíf í
húsinu.
Hönnun hússins er kapítuli út af fyrir
sig. „Listamaðurinn Magnús Jensson er
arkitekt breytinganna. Hann hefur
hannað frábært skipulag í húsinu og er
flæðið er mjög gott,“ segir hann en inn-
anhússhönnuðirnir eru Sara Jónsdóttir
og Hálfdán Pedersen. „Sara kemur úr
auglýsingabransanum og Hálfdán er leik-
myndahönnuður,“ segir hann en mikið
er lagt upp úr því að búa til stemningu á
hostelinu.
„Við viljum ekki fela að þetta hafi verið
verksmiðjuhúsnæði, ekki fela að þetta
hafi verið kexverksmiðja og heldur ekki
fela að þetta hafi verið gamalt hús. Það
voru fyrstu stikkorðin. Okkur fannst því
eðlilegt að vera með gamla hluti hérna
inni.“
Fjársjóðsleit í Bandaríkjunum
Sara og Hálfdán fóru til Bandaríkjanna í
tvær vikur fyrir jól til að leita að gömlum
munum. Þau fóru á markaði í New York
en þar var allt svo dýrt. Þau enduðu því í
Pittsburg, Ohio og West Virginia. „Þau
þræddu markaði, skansölur og ekki síst
yfirgefin iðnaðarhúsnæði. Þau voru
þarna í ískulda og snjóbyl með lugt á
enninu að gramsa í yfirgefnum bygg-
ingum og fundu fjársjóði.
Meðal þess sem prýðir nú Kex er
kirkjubekkir úr Amish-kirkju, borð úr
eldgömlu bakaríi, rakarastóll frá Chicago
Sköpunar-
gleði og
skemmtun
Fordómalaust og lýðræðislegt hostel verður opn-
að í maí í húsnæði við Skúlagötu sem áður hýsti
Kexverksmiðjuna Frón. Þar eru gamlir munir í
fyrirrúmi og sköpunargleði og skemmtun ekki
langt undan.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Sigurgeir Sigurðsson sigurgeir@mbl.is
Gamlir hlutir eru í fyrirrúmi.