SunnudagsMogginn - 10.04.2011, Blaðsíða 40
40 10. apríl 2011
Lífsstíll
Þ
egar búið er í Englandi er ekki hægt að
komast algjörlega hjá því að rekast á bresku
konungsfjölskylduna einhvers staðar. Nei,
nú er alger óþarfi að missa andann. Mér
hefur ekki tekist að komast í te hjá drottningunni
eða stefnumót með Villa prins. Því miður og nú er
það of seint. Ég á við að víða skjóta
þau upp kollinum, þessi blessaða
fjölskylda sem er ein sú frægasta í
heimi. Þau má t.d. finna á bollum í
ferðamannabúðum, örugglega dúk-
um og diskamottum líka og auðvit-
að kortum. Ég man að ég fékk eitt
slíkt frá útlöndum þegar ég var lítil,
frá mömmu og pabba. Þá horfði
maður stóreygður á yfirskreytta
hattana og skartið. Þessi fjölskylda
átti greinilega sæmilegan fataskáp.
Svo gleymir jú enginn Díönu og
þeim sorgardegi þegar hún dó. Hún
var alvöru prinsessa. Ljúf, sæt og
falleg. Sífellt á þönum í góðgerðarstörfum og alandi
upp pottormana sína tvo sem síðan urðu að óstýri-
látum unglingum. Í það minnsta Harry, ég trúi engu
slæmu upp á hann Villa minn. Svo má nú ekki
gleyma blaðinu góða sem alltaf er fullt af löfðum og
lávörðum, prinsessum og prinsum og öllu því slekti.
Hér á ég að sjálfsögðu við tímaritið góða Hello. Ég
fékk eitt gefins áður en ég lagði af stað í fyrsta sinn
ein til útlanda. Nýorðin 18 ára og í hendur fékk ég
Hello með mynd af Villa sjálfum hinum myndarlega
framan á. Ég sá vonarblikið í augum móður minnar
þegar hún rétti mér blaðið. Þau eru nú mannleg eftir
allt saman og borða meira að segja
morgunkornið sitt úr Tupperware.
Svo það gat alveg verið að frum-
burður hennar sjálfur yrði heppin
og myndi fanga hjarta prinsins.
Enda jú ekki lítið fagrar konur hér á
Íslandi. En Villi litli var örugglega
bara önnum kafinn í Eton þegar
mig bar að garði. Nema hann hafi
verið á hestbaki eða í póló. Mér
tókst að minnsta kosti ekki að hitta
á hann og gaf með árunum smám
saman upp vonina um að eitthvað
yrði af þessu hjá okkur. Nú í lok
apríl lýkur draumi mínum end-
anlega þegar prinsinn gengur að eiga heitmey sína
Kate Middleton. Jæja, ég verð þá bara að halla mér að
Hello-blaðinu góða með gott te í hönd, fagurlega
skreytt með mynd af þeim hjónum og líma mynd af
hausnum af mér inn á myndir af henni. Maður gefst
náttúrulega ekki upp fyrr en í fulla hnefana ...
Kátt er
í höllu
Enska konungsfjölskyldan er
örugglega ein sú vinsælasta í
heimi. Nú stefnir í konunglegt
brúðkaup og nóg að gera hjá
drottningu og co.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Það er allt að verða klárt fyrir hið konunglega brúðkaup og meira að segja búið að brugga bjórinn Kiss me Kate.
Reuters
’
Nýorðin 18 ára
og í hendur fékk
ég Hello með
mynd af Villa sjálfum
hinum myndarlega
framan á. Ég sá von-
arblikið í augum móð-
ur minnar þegar hún
rétti mér blaðið. Það er auðvitað ekki hægt að halda úti heilu konung-
dæmi án þess að það eigi sína eigin vefsíðu. Fyrir al-
vöru aðdáendur bresku konungsfjölskyldunnar er vert
að skoða vefinn royal.gov.uk. Ef þeir eru þá ekki búnir
að því nú þegar. Þar má nálgast allar helstu upplýs-
ingar um meðlimi fjölskyldunnar og það sem fram-
undan er hjá henni. Nú er hið konunglega brúðkaup
auðvitað fyrirferðarmikið á vefsíðunni. Þarna eru líka
auglýst störf, svona ef einhver hefði hug á að hella te í
bolla í höllu drottningar…
Konungleg vefsíða
Drottningin drekkur líklegast ekki hvaða te sem er.
Reuters
Ekki er óalgengt að
frægt fólk eigi sér tvífara
og jafnvel fleiri en einn
eða tvo. Er þá átt við
fólk sem sent er út af
örkinni þegar fræga fólk-
ið vill vera í friði. Þá má
draga athygli aðdáenda
að bíl með þeim sem all-
ir bíða eftir. En sjá, í bíln-
um er í raun bara allt
önnur Ella með hárkollu
í anda frægrar söng-
konu eða karlkyns leik-
ari með svipað húðflúr og frægur fótboltamaður. Mörg-
um Lundúnabúum hefur sjálfsagt brugðið í brún við að
sjá Vilhjálm prins og verðandi eiginkonu hans Kate
Middleton spranga í gegnum miðbæinn á dögunum,
þangað til í ljós kom að um var að ræða eins konar
kynningarviðburð fyrir brúðkaupið. Auk þess fór gang-
an fram þann fyrsta apríl svo þetta var í raun einstak-
lega vel útfært aprílgabb, enda hefði nokkur maður trú-
að því í raun og veru að Kate og Vilhjálmur létu sjá sig í
brúðkaupsfötum á skyndibitastað. Eða er það nokk-
uð?
Konunglegur skyndibiti
Allt í plati, eða eru þetta
kannski þau í raun og veru?
Reuters
Sú ímynd lifir í ævintýrunum að allar
stúlkur vilji verða prinsessur. Klæðast
glæsilega skreyttum prinsessukjól
með kórónu á höfði og prins sér við
hlið. Þannig geti þau svo lifað ham-
ingjusöm til æviloka. Oftast eftir að
vonda stjúpan hefur aðeins reynt að
eyðileggja fyrir þeim en ekki tekist og
hlotið makleg málagjöld.
Læra að hneigja sig
Hamingju til æviloka er líklegast ekki
lofað í prinsessuskólanum Princess
Prep en þar geta litlar stúlkur á aldr-
inum 8 til 11 ára sótt námskeið til að
læra að hegða sér eins og alvöru prins-
essur. Stofnandi skólans er hin banda-
ríska Jerramy Fine. Hún hefur löngum
verið gjörsamlega heilluð af bresku
konungsfjölskyldunni og er skólinn
settur upp samkvæmt hennar æsku-
draumi. Námskeiðið er sett þannig upp
að stúlkurnar dvelja saman í litlum hóp
í lúxusíbúð í Kensington og Chelsea í
London í heila viku. Á þeirri viku sækja
þær daglega tíma í borðsiðum og kurt-
eisi. Þar læra þær meðal annars hvern-
ig borða skuli sushi og smárétti án
þess að sulla niður á sig og hvernig
sitja skuli rétt við matarborðið. Síðan
er farið í teboð í Kensington Palace og
ýmsir mikilvægir staðir í lífi konungs-
fjölskyldunnar heimsóttir. Sjón er
sannarlega sögu ríkari á vefsíðu skól-
ans, princess-prep.com.
Prinsessufræði
kennd í London
Nemar í prinsessufræðum æfa sig í að hneigja sig á réttan hátt.
Reuters