SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 2

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 2
2 10. júlí 2011 8 Djókur á móti bragði Novak Djoković er nýja stjarnan í tennisheimum. 21 Dularfullt og drungalegt Dökk og drungaleg stórborgarstemning ríkti á hátískusýningu Chanel. 26 Fetað í hófför Maurers Niðjar Konrads Maurers heimsækja Ísland. 31 Les íþróttasíðurnar fyrst Óskar Þór Halldórsson á Akureyri opnar fjölskyldualbúmið. 32 Barátta upp á líf og dauða Guðrún Margrét Pálsdóttir stofnaði ABC-barnahjálp fyrir rúmum tveim- ur áratugum og eru samtökin með 12.000 börn í sinni umsjá. 36 Matur er samvera Krökkum finnst matseld jafn skemmtileg og tölvuleikir, að mati Guðmundar Finn- bogasonar, heimilisfræðikennara í Laug- arnesskóla. 40 Ætar tilraunir Tilraunamennska í eldhúsinu er skemmtileg. Spennandi er að sjá hvernig útkoman verður en ætíð er vonast eftir góðu bragði. Lesbók 42 Samhljómar líðandi … Kolumba nefnist safn erkibiskupsdæmis Kölnar, stofnað 1853. Því var reist nýtt aðsetur í rústum gotneskrar kirkju heilags Kolumba. 43 Að fanga samtímann Þankar Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar. 34 Við mælum með 10. júlí Í tilefni af safnadeginum verður sérstök dagskrá í Lækningaminja- og lyfjafræðisafninu á Seltjarnar- nesi. Birgir Jóhann Jóhannsson tannlæknir verður með leiðsögn um tannheilsu og tannlækna- minjar. Leiðsögn verður um Urta- garðinn í Nesi og þá verður „þrautaganga“ um söfnin fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Dagskrá er á vefsíðu Lækningaminjasafnsins. Leiðsögn á Nesi Efnisyfirlit Forsíðumyndina er af Björk eftir Inez van Lamsweerde og Vinoodh Matadin. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson. 24 Augnablikið Í öllum þeim hraða og látum sem fylgja því að vera nútímamaður er mikilvægt að gæta þess að hverfa reglubundið inn í fagran lista- heim. Og þegar maður kveður þann heim tímabundið til að snúa aftur inn í hávaðaheiminn þá býr maður ennþá að þeirri gleði og sátt sem listin færði manni. Sennilega eru sannir listamenn eitt það allrabesta sem til er á þessu jarðríki því þeir auðga líf okkar hinna svo rækilega. Víkingur Heiðar Ólafsson og Kristinn Sig- mundsson héldu tónleika í Hörpu fyrir nokkru þar sem þeir fluttu Vetrarferðina eftir Schubert. Þeir félagar héldu reyndar ekki bara tónleika, heldur fengu tónleikagestir að mæta á opna æfingu og hlusta á listamennina útskýra verkið og flytja tón- dæmi. Stundum hafa listamenn ekki mikið að segja um eigin list og þau verk sem þeir fást við. Þetta eru kannski frábærir listamenn, en það á ekki við þá að tjá sig mikið um það sem þeir eru að gera. Víkingur Heiðar og Kristinn höfðu hins vegar nóg að segja. Þeir voru eins og innblásnir af Vetr- arferð Schuberts, sem þeir telja með sanni vera mikið snilldarverk og höfðu greinilega lagst í all- nokkra rannsókn á því. Þeir höfðu nægilegt sjálfs- traust og greind til að túlka verkið á sinn hátt og miðluðu sýn sinni til áheyrenda á skemmtilega kumpánlegan hátt, enda hafa þeir góðan húmor. Þessi opna æfing átti að standa í klukkutíma en tímarnir urðu tveir, enda lá listamönnunum ekk- ert á og áheyrendur vildu ekki sleppa þeim. Undir lokin var manni farið að þykja undurvænt um Schubert, en hugsaði líka með sér hversu heppið tónskáldið væri að eiga umboðsmenn eins og þessa, sem miðluðu snilld hans á svo sannfærandi hátt, bæði í tali og tónum. Þarna voru reyndar samankomnir þrír snill- ingar: Höfundurinn Schubert, sem er löngu látinn en lifir kraftmiklu lífi í tónlist sinni, söngvarinn Kristinn og pínaóleikarinn Víkingur Heiðar. Þegar allir þessi snillingar lögðu saman var útkoman slík að nokkrum sinnum mátti heyra áheyrendur kalla í hrifningu: Vá! Vá! Bravó! Bravó! heyrðist svo hvað eftir annað í lok sjálfra tónleikanna í Hörpu sem voru mikil upp- lifun fyrir alla þá sem þar voru. Vetrarferðin er verk þar sem maður gerir ráð fyrir að einsöngv- arinn eigi sviðið og píanóleikarinn sé auðmjúkur undirleikari sem þjóni söngvaranum. Þetta fór ekki alveg þannig. Túlkun Kristins á vegferð hins þjáða manns var einstaklega sterk og áhrifamikil. En það sama má segja um leik Víkings Heiðars á píanóið. Hvað eftir annað fann maður áheyrendur taka andköf af hrifningu vegna þeirra tóna sem honum tókst að skapa. Þarna var á ferð hrífandi samspil. Það verður brunað í næstu plötubúð þegar disk- ur með flutningi þeirra félaga á Vetrarferðinni verður settur á markað. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Víkingur Heiðar og Kristinn Sigmundsson fluttu Vetrarferð Schuberts á ógleymanlegan hátt. Morgunblaðið/Ernir Hrífandi samspil 9. júlí Árleg djasshátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, Jazz undir fjöllum, haldin í áttunda sinn. Alls verða haldnir 5 tónleikar á hátíðinni í ár en þema hennar verður sunnlenskur djass. 10. júlí Íslenski safn- adagurinn hald- inn hátíðlegur. Frítt er inn á söfn landsins og sérstakir við- burðir á sumum söfnum. Það er Safnaráð sem stendur fyrir deg- inum. 13. júlí Bjarni Arason syngur trúarlega söngva Elvis Presley ásamt hópi söngvara og tónlistarmanna í Guð- ríðarkirkju í Grafarholti.     www.jonogoskar.is laugavegur / Smáralind / Kringlan trúlofunarhringar falleg minning á fingur

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.