SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 4
4 10. júlí 2011 Bannhelgin hefur verið rofin, þing- menn og virtir fjölmiðlar í Frakk- landi fjalla nú opinskátt um fram- ferði Strauss-Kahns gegnum árin. Franskir femínistar eru gjarnan vinstra megin í pólitíska litrófinu en það hefur ekki fengið þær til að þegja þótt Strauss-Kahn sé sósí- alisti. Nýlega efndu yfir 40 fem- ínistahópar í Frakklandi til ráð- stefnu með um 600 þátttakendum og var umfjöllunar- efnið réttindi kvenna. Konurnar benda á að þótt meint fórnarlamb Strauss-Kahns í New York þyki ekki lengur trú- verðugt vitni að afbroti þar sem aðeins eru tveir til frásagnar af- sanni það ekki fullyrðingar hennar um kynferðislegt ofbeldi. Aðrar konur segja ófagra sögu af samskiptum sínum við Strauss- Kahn og styrkja þannig frásögn þernunnar. Sumar þeirra segja hann hafa sýnt ofbeldishneigð í rúminu. Ungversk kona, Piroska Nagy, sem var starfsmaður AGS, lét loks undan stanslausri ásókn Strauss-Kahns og eyddi með hon- um nótt í Sviss á ráðstefnu í Da- vos. Hún segir nú að í raun hafi hann misnotað aðstöðu sína sem yfirmaður til að fleka sig. Engin miskunn og fleiri konur segja sögu sína Franskir femínistar, prýddir myndarlegu skeggi, mótmæla þeim sem verja Strauss-Kahn. „Við erum allar herbergisþernur“ stendur á tveim skiltanna, á því þriðja er sagt að karlremban verði slegin af. F ranskar konur hafa lengi sýnt mikla þjóð- hollustu og sætt sig við karlrembu af hálfu helstu ráðamanna landsins sem varla á sinn líka í öðrum ríkjum Evrópu. Þeir mega allt. Hreykja sér leynt og ljóst af hjákonum sínum, ástarævintýrum og launbörnum en eig- inkonan átti að „halda kjafti og vera sæt“, svo að vitnað sé í bókmenntir. Og fjölmiðlar áttu að þegja; þetta var bara einkamál. Það yrði kaldhæðnislegt ef mál Dominique Strauss-Kahns í New York yrði til að binda enda á þetta gamla, opinbera leyndarmál. Konur víða um heim hafa velt því fyrir sér hvort fátæk kona frá Afríku eigi mikla möguleika gegn öðrum eins valdamanni og Dominique Strauss- Kahn, fyrrverandi yfirmanni Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Sporin hræða. Vellauðugur körfubolta- snillingur, Kobe Bryant, var ákærður fyrir nauðgun árið 2003 í Colorado en fórnarlambið, 19 ára skrif- stofustúlka, neitaði að bera vitni eftir að hafa verið svert af verjendum hans. Ákæran var felld niður. Stúlkan fór síðar í einkamál og var þá samið um að Bryant bæði hana opinberlega afsökunar og greiddi henni nokkra fjárhæð. Heimildarmenn segja ekki útilokað að mál þernunnar gegn Strauss-Kahn fái svipaðan enda. En margir velta líka fyrir sé hvort vörn hans standist skoðun. Verjendur hans hafa í reynd við- urkennt að kynmök hafi átt sér stað en með sam- þykki beggja, engu ofbeldi hafi verið beitt. Þernan (nafni hennar er enn leynt) hafi þjónustað hann með munnmökum. En um leið hefur verið tekið skýrt fram að hann hafi ekki greitt henni fyrir við- vikið, hafi því ekki keypt sér vændi. Sandy Banks, dálkahöfundur hjá L.A. Times, er hugsi yfir atburðarásinni. „Hún á víst að hafa fyllst óstjórnlegri girnd við að sjá skvapið á allsberum líkama hans,“ segir Banks. „Er ég ein um að finnast erfitt að trúa þessu?“ Menn velta líka fyrir sér hvort 62 ára gamall, kvæntur maður sem stöðugt skiptir um viðhöld, montar sig af því að engar konur standist hann og efnir til kynferðislegra skyndikynna með herberg- isþernu rétt áður en hann sest að miðdegisverði með dóttur sinni, sé leiðtogaefni. Fyrst eftir handtökuna voru margir Frakkar á því að um ofsóknir hræsnisfullra Bandaríkjamanna gegn Strauss-Kahn væri að ræða, aðrir að pólitískir andstæðingar hans í Frakklandi væru á bak við „gildruna“. Þegar þernan reyndist vera ótrúverðug jókst enn stuðningur við hann og farið var að ræða á ný í fullri alvöru um hann sem forsetaefni. En samúðin hefur dvínað á ný. Síðustu kannanir sýna að meira en helmingur landsmanna er á móti fram- boði hans þótt um 60% kjósenda Sósíalistaflokks- ins vilji enn að hann fái tækifæri. „Þú ert bara öfundsjúkur“ Helstu ráðamenn flokksins eru í klípu og reyna sumir að drepa málinu á dreif, forystan er greini- lega klofin í málinu. Enginn efast um skarpa greind, pólitíska hæfileika og hagfræðikunnáttu Strauss- Kahns sem sagður er geta verið afar heillandi. En dómgreindin virðist stundum yfirgefa hann og grunurinn um ofbeldishneigð á eftir að loða við hann. Nánir ráðgjafar segja hann stöðugt vilja tefla á tæpasta vað, tilgangslaust hafi verið að vara hann við því að tryllt kvennafar og slark gætu komið honum í koll. „Þú ert bara öfundsjúkur,“ var svarið sem einn þeirra fékk. Bent er á að jafnvel þótt nauðgunarmálið í New York verði fellt niður þarf Strauss-Kahn að takast á við annað mál. Guðdóttir hans, Tristane Banon, hyggst kæra hann fyrir ruddalega kynferðisárás á sig 2003 er hún var 19 ára blaðakona. Banon er dóttir konu sem gegnir trúnaðarstöðu fyrir sósíal- ista. Móðirin segist nú iðrast þess að hafa á sínum tíma talið dótturina á að kæra ekki Strauss-Kahn. Fullyrt er að 75.000 nauðganir séu framdar í Frakklandi ár hvert, andrúmsloftið geri ofbeldis- fullum körlum auðvelt um vik. Fáar konur þori að kæra. Frægt er að fyrrverandi ráðherra sagði nýlega að hún þyrði ekki að mæta í pilsi á fundi í þinginu, svo mikið væri um alls kyns ruddaskap af hálfu karlanna á löggjafarsamkundunni í París. Kynóðir valda- menn í gapastokk Franskar konur hafna gömlum karlrembuhefðum Nauðgunarákæran gegn Strauss-Kahn hefur verið eitt helsta umfjöllunar- efni fjölmiðla um allan heim frá því að málið kom upp í maí. Reuters Vikuspegill Kristján Jónsson kjon@mbl.is Strauss-Kahn er sonur efnaðs lögfræðings, fjölskyldan bjó í Marokkó þar til sonurinn var 12 ára. Hann er þrígiftur, eig- inkona hans er Anne Sinclair, þekkt sjónvarpskona í Frakk- landi, bandarísk að uppruna. Hún er erfingi mikilla auðæfa. Hjónin eiga bústaði í Frakk- landi og Bandaríkjunum, einn- ig glæsivillu í Marokkó. Trygg og forrík eiginkona Lambalæri hvítlauks- og rósmarín marinerað 1398kr.kg FRÁB ÆRT Á GRIL LIÐ fyrst og fremst ódýrt

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.