SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 10
10 10. júlí 2011
F
jórða málsgrein í 17 síðna langri samstarfsyfirlýsingu
Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs frá því 10. maí 2009 er svohljóðandi:
„Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir opinni stjórnsýslu,
auknu gagnsæi og lýðræðisumbótum. Ríkisstjórnin mun kapp-
kosta að byggja upp á Íslandi opið og skapandi umhverfi sem
stenst samanburð við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar
í Evrópu, bæði að því er varðar efnahag og lífsgæði. Í þeim efnum
horfum við sérstaklega til frændþjóða okkar á Norðurlöndum.“
Þetta hefur ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur ekki
gert, alls ekki og fremst í flokki
pukrara, leynimakkara og
ógegnsæis fer sjálfur oddviti
ríkisstjórnarinnar, Jóhanna
Sigurðardóttir.
Hún velur sér við hverja hún
talar, hverjum hún svarar og
hvort hún yfirhöfuð svarar.
Jóhanna Sigurðardóttir, for-
sætisráðherra Íslands, sker sig
úr með áberandi hætti, hvað
þetta varðar, því hún dvelur
beinlínis langdvölum í felum.
Hún svarar ekki í síma, þegar
reynt er að hafa samband við
hana símleiðis; hún svarar ekki
skilaboðum; hún stendur sig
mjög vel í því að láta alls ekki
ná í sig og þá er það upptalið
sem ég man eftir í fljótu bragði
að hún standi sig vel í.
Það var fimmtudaginn 30.
júní sl. sem ég hóf eina ferðina enn tilraunir mínar til þess að fá
samband við forsætisráðherrann. Ég hringdi í ráðuneytið og bað
um samband við ritara forsætisráðherra. Sú elskulega kona sagði
mér að Jóhanna væri upptekin. Ég bað fyrir skilaboð til hennar og
sagði að ég myndi ekki tefja hana lengi. Væri bara með eina fyrir-
spurn. Hún lofaði að koma boðunum til skila, sem ég efast ekki
eitt andartak um að hún hafi gert. En allt kom fyrir ekki. Ítrekaðar
hringingar mínar allan fimmtudaginn og föstudaginn og svo dag-
lega alla þessa viku, og næstum þriggja tíma bið í forsætisráðu-
neytinu á fimmtudag, ásamt öðrum blaða- og fréttamönnum,
báru engan árangur. Aldrei bólaði á forsætisráðherra, sem þó sást
hlaupa á milli herbergja í gegnum læstu glerdyrnar í ráðuneytinu
um hádegisbilið. Hún vissi vel af veru okkar fjölmiðlamanna og
óskum um viðtöl. En hún sá sér ekki fært að veita fimm mínútur af
sínum dýrmæta tíma. Okkar tími er augljóslega ekki dýrmætur í
augum forsætisráðherra.
Og ekki lét aðstoðarmaður forsætisráðherra, Hrannar B. Arn-
arson, heldur svo lítið að svara, hvorki smáskilaboðum, né skila-
boðum sem voru látin liggja hjá honum í ráðuneytinu. En hann
hefur hins vegar tíma til þess að tala við DV og Stöð 2 og segja þeim
ósatt. Hrannar veit ósköp vel að það var sendiráðunautur kín-
verska sendiráðsins sem sagði mér í símtali í síðustu viku að Jó-
hanna Sigurðardóttir hefði verið upptekin á þeim tíma sem Wen
Jiabao forsætisráðherra hugðist koma hingað til lands í opinbera
heimsókn. Orðrétt var vitnað í sendiráðunautinn í fréttinni í laug-
ardagsblaði Morgunblaðsins fyrir viku, þar sem hann greindi frá
því að enn hefði Kínverjum og Íslendingum ekki tekist að finna
tíma sem hentaði báðum forsætisráðherrunum. Hrannar getur
haldið áfram ófrægingarherferð sinni á hendur mér og Morg-
unblaðinu, en hann situr í súpunni og virðist una dvöl sinni þar
vel. Kínverjar ákváðu einfaldlega að hlýða ekki „boðvaldi aðstoð-
armannsins“. Þeir ákváðu að gerast ekki þátttakendur í lyganeti
Hrannars og Jóhönnu, sem mátti ekki vera að því að taka á móti
forsætisráðherra Kína.
Merkilegt að Angela Merkel, kanslari Þýskalands, David Came-
ron, forsætisráðherra Breta, og Viktor Orban, forsætisráðherra
Ungverjalands, máttu öll vera að því að taka á móti forsætisráð-
herra Kína og ganga frá stórum viðskiptasamningum við hann og
sendinefnd hans. En vitaskuld eru þau ekki jafn önnum kafin og
forsætisráðherra Íslands!
Tvíeykið
Jóhanna og
Hrannar
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Hrannar B.
Arnarsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
’
Kínverjar
ákváðu ein-
faldlega að
hlýða ekki „boðvaldi
aðstoðarmannsins“.
Þeir ákváðu að gerast
ekki þátttakendur í
lyganeti Hrannars.
7:30 Ég vakna við það að
mamma mín eða pabbi koma
inn til mín og vekja mig. Ég er
með FM957 í gangi frá kvöldinu
áður þar sem ég sofnaði út frá
því. Strákarnir í Villta vestrinu á
FM gera allt vitlaust á morgn-
ana! Síðan fer ég og fæ mér að
borða morgunmat, að því loknu
fer ég og geri mig kláran fyrir
vinnu.
8:15 Þá fæ ég mömmu til að
skutla mér í vinnuna, ég er að
vinna í Vinnuskóla Kópavogs og
er í hópi við Vatnsendaskóla og
það tekur smá-tíma fyrir mig að
koma mér uppí Vatnsendaskóla
þar sem ég bý í Smárahverfinu.
8:25/30 Mættur til vinnu,
hitti vinnuhópinn minn fyrir
utan skólann og við förum og
sækjum verkfæri í vinnuskúr
sem er fyrir utan skólann og
löbbum í beð sem Vinnuskólinn
er búinn að setja hópinn á.
8:40 Hópurinn kominn við
Álfkonuhvarf og við byrjum að
vinna í stóru beði þar.
10:00 Nestistími … þar fæ ég
mér stundum að borða eða þá
nota tímann til að hvíla mig og
leggst í grasið.
10:15/20 Byrjum aftur á
að vinna og spjalla …
11:30 Vinnudeginum okkar
er lokið og ég fer í strætóskýlið
hjá Vatnsendaskóla og tek
strætó heim.
11:50 Ég labba inn um dyrn-
ar heima, beinustu leið í sturtu
og fer síðan og fæ mér að borða
með mömmu og pabba. Síðan
kíkir maður oftar en ekki í tölv-
una og tekur þennan „basic“
internetrúnt … Facebook, Twit-
ter og þessar síður.
13:00 Á þessum tíma fer mig
oftar en ekki að langa að hitta
einhverja vini. Í dag fékk ég vin-
konu mína í heimsókn.
14:30 Vinkona mín kemur í
heimsókn og við ákváðum að
fara í sund. Árbæjarlaugin varð
fyrir valinu í þessu frábæra veðri
sem var þennan dag.
15:00 Við ákveðum að taka
strætó í sund í Árbænum … það
er svolítið mikið vesen að taka
strætó þangað uppeftir. Tók
strætó uppí Mjódd og svo í
Hólana í Breiðholtinu og þaðan
að labba í Árbæjarlaug.
Skemmtilegt umhverfi þarna í
kring.
15:30 Kominn ofan í sund-
laugina. Rosalega mikið af fólki,
en það var hægt að koma þarna
smá og „tana“ þó svo ég hafi
ekki fengið neinn lit, en þá er
alltaf gott að kíkja í sund.
18:00 Kominn úr sundinu.
Labba til baka uppí Hólana í
Breiðholti og þar er beðið eftir
strætó. Strætóferðin var mjög
löng, eins og strætóferðir verða
oft.
18:40 Kominn í Hamra-
borgina í Kópavogi og þar fórum
við vinkona mín í Nóatún og ég
fékk mér að drekka, og síðan var
labbað niður á Subway og hún
fékk sér kvöldmat þar og við
vorum þar á meðan við biðum
eftir strætóinum í Smárahverfið.
19:36 Strætó tekinn í
Smárahverfið í Kópavoginum og
við löbbuðum úr strætóskýlinu
og heim til mín.
20:00 Komin heim til mín og
þar tekur á móti okkur grjóna-
grautur og annað góðmeti sem
mamma mín er búin að vera að
elda … hún er snilldarkokkur
þessi kona!
20:30 Búinn að borða og
ganga frá eftir mig! Við förum í
herbergið mitt og förum í tölv-
una og svona, poppuðum,
hlustuðum á tónlist, sjónvarpið
var í gangi, spjölluðum og gerð-
um bara fullt af skemmtilegum
hlutum!
22:40 Vinkona mín labbar út
í strætóskýli frá mér og ég er
einn eftir heima í tölvunni
23:00 Fór og fékk mér smá-
kvöldsnarl (sem stundum verð-
ur að miðnætursnarli) og vask-
aði upp eftir poppið og herleg-
heitin sem fylgdu því. Síðan
komu mamma mín og pabbi
heim úr göngutúr en þau höfðu
verið í heimsókn hjá ömmu
minni.
23:15 Fór að gera mig kláran
fyrir svefninn, bursta tennur,
þvo mér í framan og allt þetta
sem maður gerir áður en maður
fer að sofa.
23:30/40 Leggst upp í
rúm með tölvuna mína, sem ég
fer með eins og barnið mitt, mér
þykir svo vænt um þessa elsku!
Spjalla við nokkra vini á Face-
book og Skype jafnvel, tékka á
nokkrum bloggsíðum frá Noregi
sem ég skoða daglega. Síðan
kíkir maður stundum á MBL
sjónvarp til dæmis og tékkar á
einhverju skemmtilegu efni sem
hefur komið inn um daginn og
hlæ oftar en ekki að því sem
fyndið er þar, gott svona fyrir
svefninn. Síðan loka ég tölvunni
svona í kringum 00:00, kannski
aðeins seinna og leggst á kodd-
ann, oftar en ekki með nætur-
vaktina á FM957 í gangi. Mjög
gott að sofna við það. Æðisleg-
um degi lokið!
Dagur í lífi Arnars Arnar Ingólfssonar, vinnuþjarks í Vinnuskólanum
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
„Tanar“ í lauginni