SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 22

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 22
22 10. júlí 2011 S umir íslenskir stjórnmálamenn virðast sannfærðir um að nú þurfi þeir helst að komast undan þeirri ímynd að þeir séu deilugjarnir atvinnuþrasarar. Nú eigi stjórnmálamenn helst að vinna sem hópur, hvað- an sem þeir eru runnir.Allir eiga að hafa „að- komu“ að ákvörðunum. Allir eiga að sameinast um að koma málum í „farveg“ sem mótaður sé af sameiginlegri „framtíðarsýn“ stjórnmálamanna, sem allir „sitja við borðið“ og nái þannig að skila fullbúnum kosti til ákvörðunar. Aðrir líta á allt það tal sem lítt skiljanlegt froðusnakk bullukolla, sem helst feli þó í sér dulbúið samsæri stjórn- málastéttarinnar gegn almenningi, sem stundum er kallaður kjósendur. Með þessari aðferð fær hann aldrei að vita hvaða kostir voru fyrir hendi. Skal hann þannig jafnan látinn standa frammi fyrir gerðum hlut stjórnmálastéttarinnar sem starfi í raun í einum flokki nema örfáa daga fyrir kosningar. Enginn getur metið hvort þær ákvarð- anir sem hópeflið ungar út séu að einhverju leyti byggðar á þeim lífsskoðunum sem væntanlega hafa ráðið mestu um hvar menn hafa skipað sér í flokka. Vítin til að varast Þetta minnir vissulega á þróunina í Evrópusam- bandinu. Það verður ekki séð að neinu skipti fyrir þróun þess sambands hvaða flokkar vinni í kosn- ingum í einstökum þjóðríkjum. Kjósendur átta sig æ betur á þessu og það er ein af ástæðum snar- minnkandi þátttöku í kosningum til Evrópu- þingsins, sem er reyndar málamyndasamkoma. Að vísu er í sumum löndum Evrópu lögskipað að kjósendur mæti eins og sauðfé til slátrunar á kjör- stað þegar eftir því er kallað og liggur við sekt eða fangelsi ef út af er brugðið. Þannig lög eru til að mynda í Belgíu. Sú mikla „lýðræðisregla“ hefur ekki borið meiri árangur en svo, að nú ári eftir síðustu þingkosningar þar í landi hefur ekki enn tekist að mynda ríkisstjórn í samræmi við kosn- ingaúrslitin. En hin nýja stjórnmálatíska sem nefnd var í upphafi bréfsins og gengur út á að kjörnir fulltrúar gleymi því í 1400 daga af hverj- um 1460 hver kaus þá til starfa er undarleg. Ekki síst vegna þess að stjórnmálamenn hafa einmitt um hríð átt í erfiðleikum með að sannfæra kjós- endur um að það skipti máli hver sé kosinn og hver ekki og að kenningin um að stjórnmálamenn séu hvort sem er „sami grautur í sömu skál“ sé ekki rétt. Verklagsreglan um að stjórnmála- mönnum beri beinlínis að haga sér eins og þeir séu sami grautur í sömu skál er ekki líkleg til að sannfæra kjósendur um hið gagnstæða. Og sumt lýtur sínum eigin lögmálum Og auðvitað er það svo að raunsæir kjósendur hafa þóst gera sér grein fyrir því að vel er hugs- anlegt að til að mynda í sveitarstjórnum hafi kosningaúrslit ekkert með það að gera hvernig sveitarfélagið sér um sín mál í stórum dráttum. Snjómokstur haldi áfram. Þrif gatna og gangstétta sé ekki háð því hvort D-listi eða V skipi topp- stöður í borgarstjórninni. Malbikunarfram- kvæmdir verði í svipuðum dúr, barnaheimili séu í gangi og skólahald og stætisvagnar muni þjóta á milli hverfa álíka tómir og vant er og þar fram eftir götunum. Og svo vilja stjórnmálamenn bæta um betur og sannfæra almenning um að einnig að öðru leyti skipti ekki máli úr hvaða röðum stjórn- málamenn komi. Og til að mynda gerist það í Reykjavík þegar stjórnmálamenn ákveða að breyta leikreglum í miðju spili og segja að nú skuli þeim refsað sem hafi ruslatunnur sínar meira en 15 metra frá öskubílnum, þá virðist borgarstjórn- in allt í einu skipuð eineggja 15-burum sem öllum þyki þetta jafngott. Hvernig í ósköpunum stend- ur á því? Voru þeir allir með „aðkomu“ þegar málið var sett í „farveg“ út frá sérstakri sorp- hirðulegri „framtíðarsýn“ þar sem allir komu „að borðinu“? Nú má auðvitað halda því fram að fjar- lægð öskutunna frá sorpbifreiðum geti varla lotið pólitískum grundvallarlögmálum eða lífsskoðun. Þar fari best á því að hin nýja pólitíska stétt með stétt standi saman sem einn maður að ákvarð- anatöku. En það er hins vegar grundvallarspurn- ing hvort leikreglum skuli breytt í miðju spili. Hvort grunnþjónusta sem í áratugi hefur verið greidd með þjónustugjöldum fasteigna verði felld þar undan eftir tifandi réttlæti tommustokksins Reykjavíkurbréf 08.07.11 Kjósendur þurfa að eiga val – raunverulegt val

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.