SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 24

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 24
24 10. júlí 2011 Á tta liða úrslit HM kvenna í knatt- spyrnu í Þýskalandi hefjast í dag, laugardag. Lið Brasilíu hefur þótt leika mjög vel eins og búist var við en eitt og annað hefur komið á óvart; Svíar unnu t.d. sögulegan sigur á Bandaríkjamönnum og í C-riðli og urðu efst- ir. Þetta var í fjórða skipti sem þjóðirnar mæt- ast á HM og fyrsti sigur Svía. Bandaríska liðið hafði raunar aldrei tapað leik í riðlakeppni HM en úrslitin gera það að verkum að Svíar mæta Áströlum í átta liða úrslitunum en Bandaríkja- menn takast á við Brasilíu. Það ætluðu þær sér ekki svo snemma í mótinu. Það eru einnig söguleg tíðindi að Norðmenn, sem löngum hafa átt eitt besta landslið heims, komust ekki upp úr riðlakeppninni; unnu Miðbaugs-Gíneu en töpuðu bæði fyrir Brasilíu og Ástralíu. Norðmenn urðu heimsmeistarar 1995 og hafa aldrei dottið svona snemma út á HM, en ekki er nóg með að norsku stúlkurnar komust ekki í átta liða úrslitin heldur misstu þær þar með af sæti á Ólympíuleikunum í London á næsta ári. Mikið er horft á HM í sjónvarpi; til dæmis fylgdust 1,9 milljónir manna í Bandaríkjunum með leik þjóðarinnar við Kólumbíu, fleiri en fylgdust með nokkrum leik á HM 2003 og 2007. Í Þýskalandi horfðu um 3,5 milljónir á leikinn í sjónvarpi, um 5% þýsku þjóðarinnar! skapti@mbl.is Venjulega skiptast leikmenn ekki á treyjum fyrr en að leik loknum en engu líkara er en Bandaríkja- maðurinn Stephanie Cox og Josefine Oqvist frá Svíþjóð vilji helst drífa í því. Ekkert var gefið eftir. Leikmenn Norður-Kóreu kyrja þjóðsöng landsins fyrir leikinn gegn Kólumbíu Inka Grings var að sjálfsögðu ljómandi glöð eftir að hún skoraði gegn Frökkum. Kerstin Garefrekes er til hægri. Andreia, markvörður Brasilíu, kýlir boltann frá eftir sókn Norðmanna. Marita Skammelsrud (t.v.) og Madeleine Giske þjarma að henni. Norsku stúlkurnar komust ekki upp úr riðlinum. Lene Mykjaland miður sín eftir tap Noregs gegn Ástralíu. Cristiane, leikmaður Brasilíu, fagnaði marki gegn Miðbaugs-Gíneu með miklum tilþrifum. Hin frábæra Marta kann að meta fagnið. Konur fara á kostum Heimsmeistarakeppni kvenna í fótbolta þykir frábærlega heppnuð.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.