SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 37

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 37
10. júlí 2011 37 pakka- og skyndi-menninguna, menn- ingu þar sem við þurfum ekkert að kunna til að búa til mat sem er ekki góður. Við erum að stytta okkur leið alveg að óþörfu. Þess vegna finnst mér heim- ilisfræðin gríðarlega mikilvæg grein. Við eigum hamra inn í krakkana að það sé mjög eðlilegt að elda, vinna með mat og hugsa um mat. Það er í rauninni besta forvörnin gegn offitunni, að elda sjálfur. Það er ekki hægt að elda óhollan mat ef maður eldar hann frá grunni og þannig ber maður meiri virðingu fyrir matnum.“ Hann segir heimilisfræðikennarastarf- ið vera fyrst og fremst fjölbreytt og gef- andi. „Ég er að kenna fag sem krökk- unum finnst gaman að læra, það hjálpar til!“ Hann segist þurfa að koma miklu að í fáum kennslustundum. „Mér finnst elda- mennskan sjálf skipta mestu máli og ég reyni að kenna þeim aðra hluti í gegnum matreiðsluna. Ég reyni að hafa lítið af þessum bóklegu tímum. Krakkarnir læra um hreinlæti, næringu og hollustu.“ Útieldun er líka hluti af heimilisfræð- inni í Laugarnesskóla. „Krakkarnir læra að elda á prímus og yfir eldi og kolum. Ég kenni þeim að gera hentugar súpur og pastarétti til að elda á prímus. Þetta er mín leið til að ýta undir útiveru og nátt- úrutenginguna hjá krökkunum. Ég hef aðallega verið að hugsa um að þau hafi sjálfstraustið þegar og ef þau vilja fara að njóta náttúrunnar á þennan hátt,“ segir Guðmundur, sem veit að leiðin að hjarta krakkanna er í gegnum matinn. Ruslið er að sjálfsögðu flokkað. Krakkarnir elduðu tikka masala-kjúkling. Svo þarf auðvitað að ganga frá eftir sig. Þema dagsins var indversk matseld. Þennan rétt elduðu krakkarnir daginn sem Sunnudagsmogginn kom í heimsókn. Naan-brauð Úr spelti eða heilhveiti Hráefni: 4 dl spelt eða heilhveiti 1 tsk. lyftiduft ¼ tsk. salt 2 dl ab-mjólk Aðferð: 1. Blandaðu þurrefnunum saman í skál. 2. Bættu ab-mjólkinni út í. 3. Skiptu deiginu í 4 hluta og búðu til litlar flatar kökur úr þeim. 4. Hitaðu brauðin á pönnunni á báðum hliðum þar til þau eru gyllt og gegnumsteikt. 5. Brauðin eru sett í rakt stykki til þess að þau harðni ekki. 6. Gott er að pensla þau með ólífuolíu áður en þau eru borin fram. Gott er að bæta í þetta brauð t.d. kúmeni, kóríander-fræum eða chili-flögum. Magnið fer eftir smekk en 1-2 teskeiðar gefa gott bragð. Tikka-masala og hrísgrjón Hráefni: 2 kjúklingabringur 2 msk. ólífuolía 2 kardimommufræ 1 laukur, smátt saxaður 1 tsk. smátt saxað ferskt engifer 1 tsk. smátt saxaður hvítlaukur ½ tsk. cumin-duft ½ tsk. turmerik-duft 2 tsk. chili-duft ½ tsk. garam masala 1 msk. tómatpúrra 1 dós saxaðir tómatar 3 dl vatn salt Kóríander til að skreyta. Aðferð: 1. Settu olíu í pönnu yfir með- alhita. Þegar hún hefur hitnað skaltu bæta kardimommufræjum og lauk saman við. Hrærðu þar til laukurinn brúnast aðeins. 2. Bættu kryddum og hvítlauk saman við og leyfðu því að hitna í olíunni. 3. Bættu tómatpúrru og tómötum saman við og hrærðu vel. Lækk- aðu hitann og láttu þetta malla. 4. Skerðu kjúklinginn niður í ten- inga og settu út í ásamt vatninu. Gættu þess að setja eins mikið vatn og þér finnst þurfa. Þetta á ekki að vera of þunnt. 5. Láttu malla í 10-20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleld- aður. 6. Saltaðu eftir smekk og settu niðursaxað kóríander yfir áður en þú berð fram. Berðu fram með hrísgrjónum, naan-brauði og salati. Indverskt þema

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.