SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 21

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Blaðsíða 21
10. júlí 2011 21 Tíska D rungaleg stemning réð ríkjum á há- tískusýningu franska tískuhússins Chanel í París í vikunni. Þetta mark- ast ef til vill af því að Karl Lagerfeld, aðalhönnuður hússins, eignaðist nýverið myndaseríu úr hinni sígildu framtíðarmynd Metropolis. Myndinar voru í eigu aðalstjörnu myndarinnar Brigitte Helm og áritaðar af leikstjór- anum Fritz Lang. Sviðið var svart og glansandi, eins og það væri nýbúið að rigna á það og fyrirsæturnar voru dul- arfullar á svip í glæsilegum fötunum. Meðfylgjandi myndir eru allar frá sýningunni á hátískufatalínu komandi hausts. Tískuhúsið býr yfir ákveðinni fag- urfræði, sem Lagerfeld hefur þróað áfram síðustu ár en andi Coco Chanel svífur jafnframt yfir vötnum. Sterkbleikur er flottur í bland við þetta svarthvíta. Svört gegnsæ slæða hvílir yfir hvíta litnum. Pilsið verður allt léttara svona gegnsætt. Fjaðraprentið undirstrikar léttleikann.Herra Karl Lagerfeld þakkar fyrir sig. Tvíddragtir eru aðalsmerki Chanel-tískuhússins. Hvítt og svart er sígild samsetning. Gegnsætt og glæsi- legt. Reuters Brúðarkjóllinn er jafnan stjarnan á hátískusýningunum. Pífurnar koma vel út. Dularfullt og drungalegt Dökk og drungaleg stór- borgarstemning ríkti á há- tískusýningu Chanel í París. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.