SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Síða 11
10. júlí 2011 11
B
lackie gamli Lawless, leiðtogi
bandaríska málmbandsins
WASP, hefur ekki verið fyr-
irferðarmikill á síðum þessa
blaðs gegnum tíðina. Úr því verður
bætt núna. WASP átti sitt blómaskeið á
níunda áratugnum, sprottin úr sama
sverði og glysbönd á borð við Mötley
Crüe, Ratt og Poison enda þótt nálgun
sveitarinnar væri öllu frumstæðari –
subbulegri myndu sumir segja, alltént
heittrúaðir hænsnabændur.
Eins og menn hafa ugglaust getið sér
til er Blackie Lawless listamannsnafn,
kappanum var upprunalega gefið nafnið
Steven Edward Duren. Hann fæddist í
New York 4. september 1956 og verður
því 55 ára gamall í haust. Hann er af
ætt Blackfoot-indíána, auk þess sem
írskt og franskt blóð rennur í æðum.
Lawless fékk trúarlegt uppeldi en afi
hans var djákni og frændi hans prédik-
ari.
Lawless sleit barnsskónum í Stóra
eplinu í slagtogi við menn eins og Ace
Frehley, sem síðar varð gítarleikari í
Kiss. Hann eignaðist sinn fyrsta gítar
níu ára og stofnaði í kjölfarið sína fyrstu
hljómsveit, The Underside.
Ekki rakst Lawless nægilega vel í hópi
og þrettán ára gamall varð hann fyrir
hnífsstungu en náði sér að fullu. Ári
síðar rituðu foreldrar hans drenginn inn
í herskóla til að kenna honum aga.
Þeirri skólagöngu lauk hálfu öðru ári
síðar, þegar Lawless lagði hendur á yf-
irmann.
Þar sem honum var höndin laus var
alveg eins gott að taka gítarinn upp aft-
ur. Lawless kom við sögu margra banda
á ofanverðum áttunda áratugnum,
meðal annars London, þar sem enginn
annar en Nikki Sixx plokkaði bassa. Á
þeim tímapunkti var Lawless fluttur
vestur til Los Angeles, þaðan sem hann
hefur gert út allar götur síðan.
Þegar Sixx hvarf á braut til að stofna
Mötley Crüe setti Lawless sína eigin
sveit á laggirnar, WASP, ásamt Randy
Piper, Chris Holmes og Tony Richards. Í
þessari nýju sveit sá Lawless um söng,
auk þess að leika á bassa. Innblástur
sótti WASP öðru fremur til AC/DC,
Black Sabbath, Alice Cooper og Kiss,
bæði hvað varðar stíl og leikræna til-
burði. WASP varð snemma alræmd fyrir
uppátæki sín á sviði, svo sem að fleygja
hráu kjöti út til áhorfenda, hengja hálf-
naktar stúlkur á píslarbekki og slátra
hænum. Ekki heyrði til tíðinda ef tón-
leikum sveitarinnar var aflýst af yf-
irvöldum á viðkomandi stöðum. „Sjóið“
þótti ekki á ameríska æsku leggjandi.
WASP var hundelt af Tipper Gore,
eiginkonu Als Gores, og siðanefnd
hennar á níunda áratugnum en hún
virtist hafa það markmið að eyða málmi
af jörðinni. Þeim ofsóknum svaraði
WASP með eftirminnilegum hætti í lag-
inu Harder, Faster á tónleikaplötunni
Live … In the Raw.
Fyrir hvað stendur WASP?
Margir hafa gegnum tíðina velt vöngum
yfir nafni sveitarinnar. WASP er
skammstöfun en aldrei hefur fengist
staðfest fyrir hvað hún stendur. Venju-
lega stendur WASP fyrir White Anglo
Saxon Protestants en næsta víst er að
það á ekki við í þessu tilviki. Lawless
kastaði einhverju sinni fram nafninu
We Are Sexual Perverts í hálfkæringi í
viðtali en einnig hefur verið giskað á
We Are Satan’s People, We Are So Per-
fect og We Ate Savory Pancakes. Þín
ágiskun, lesandi góður, er jafngóð og
hver önnur.
WASP hefur starfað óslitið fram á
þennan dag enda þótt Lawless sé nú
eini upprunalegi meðlimurinn. Sveitin
hefur sent frá sér fjórtán hljóðvers-
plötur, þá síðustu fyrir tveimur árum,
og fjórar tónleikaplötur. Kunnustu verk
sveitarinnar eru The Last Command
(1985), The Headless Children (1989) og
The Crimson Tide (1992).
Á ýmsu hefur gengið hjá Lawless
karlinum í seinni tíð. Fyrir fimm árum
þrengdi að æðum við hjartað en hann
hristi það af sér eins og hvert annað
hundsbit. Sama ár var hann dreginn
fyrir dómstóla grunaður um að hafa
heilsað öryggisverði að sjómannasið.
Hann var sýknaður. Í fyrra upplýsti
Lawless síðan að hann væri farinn að
iðka trú sína aftur af kappi og afneitaði
ýmsum WASP-lögum, meðal annars
hinu víðfræga Animal (Fuck Like A
Beast). „Ég mun aldrei leika það lag
aftur!“
orri@mbl.is
Hvað varð um …
Blackie
Lawless
Blackie Lawless er enn í fullu fjöri í málmheimum, að verða 55 ára gamall.
Lawless galvaskur á einni WASP-skífunni.
JOB REFERENCE : 11/11
EFTA Surveillance Authority webpage:
www.eftasurv.int
Deadline for application:
5 August 2011
Interviews: August/September 2011
Application must be filled in and sent
online at the following address:
https://jobs.eftasurv.int
Role description:
The successful candidate will pro-
vide support relating to opera-
tional procedures in the Internal
Market Affairs Directorate (e.g.
checking compliance with case
handling procedures, collecting
data, producing statistics and
reports, using Excel in particular),
and provide general assistance to
the management and staff of the
Directorate. The successful candi-
date may also be assigned addi-
tional tasks by the Director.
Essential Skills:
l Relevant work experience and
education,
l Excellent command of written
and spoken English,
l Comfortable with figures and
statistics,
l Very good computer literacy,
especially proficiency with MS
Word, Excel, Outlook and Power
Point,
l Good organisational and com-
munication skills,
l Flexibility and ability to work both
independently and in a team,
Desirable:
l Norwegian, Icelandic or German
language skills (EFTA lan-
guages),
l Interest in European affairs,
l Experience in working on securi-
ty related issues.
Performance Indicators:
The performance indicators for
this position include oral and writ-
ten communication and presenta-
tion skills, analytical skills and
problem-solving, quality and
result orientation, compliance with
internal rules, processes and
instructions, as well as sociability
and teamwork, organisation skills,
autonomy, motivation to work, ini-
tiative, transfer of knowledge, flex-
ibility and creativity and IT skills.
Conditions :
The position is placed at grade B5
of the salary scale, starting at
45.578.88 € per year.
Appointments are normally made
at step 1 of the indicated grade.
Depending on, inter alia, the can-
didate’s family status, allowances
and benefits may apply.
Favourable tax conditions apply.
Overview of conditions at: http://
www.eftasurv.int/about-the-
authority/vacancies/recruit-
ment-policy.
While its staff members shall nor-
mally be nationals of one of the
three EFTA States party to the EEA
Agreement, the Authority will also
consider other applications, pri-
marily those of nationals of the
other States that are party to the
EEA Agreement.
Start date: As soon as
possible in the autum
Type and duration of appointment:
fixed-term contract of three years.
Job title : Assistant.
If considered desirable, an
additional fixed-term contract of
three years may be offered.
Questions regarding the post may
be posed to Mr Ólafur Einarsson,
Director of the Internal Market
Affairs Directorate, to
+32 (0)2 286 18 73
or Mrs Tuula Nieminen,
Deputy Director of the Internal
Market Affairs Directorate,
to +32 (0)2 286 18 67.
Questions regarding the
recruitment process may be posed
to Mr Erik J. Eidem,
Director of Administration,
on +32 (0)2 286 18 90 or
Mrs Sophie Jeannon,
HR Assistant,
on +32 (0)2 286 18 93.
The EFTA Surveillance Authority monitors compliance by Iceland, Liechtenstein and Norway with the law of the European Economic Area,
enabling those countries to participate in the European internal market. In monitoring and enforcing the EEA Agreement, the Authority has
powers that correspond to those of the European Commission. The Authority is based in Brussels and operates independently of the EFTA States.
The Authority is led by a College which consists of three members appointed by the EEA EFTA States.
Assistant