SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Side 12

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Side 12
12 10. júlí 2011 Mánudagur Ragnhildur Sverr- isdóttir Um daginn voru leikir U-21 liða sýndir og endursýndir í hið óendanlega. Hvað með HM kvenna? Ekki einn einasti leikur sýndur, eða hvað? Tvær 10 ára fótboltastelpur eru spældar út í RÚV. Við reyndum að hringja þang- að um helgina en enginn var við símann á íþróttadeildinni. Er þetta virkilega svona? Ekki einn leikur sýndur af sjálfu HM? Þriðjudagur Kári Sturluson Ég sá „Kalla í Pelsinum“ í Bankastrætinu í morg- un. Hann var ekki í pels og þegar ég pæli í því þá hef ég aldrei séð hann í pels. Einar Bárðarson Á ein- hver Liverpool-búning í XXXXL fyrir mig ? Rauði dagurinn á Kananum á föstudag ! Miðvikudagur Halla Gunnarsdóttir var hissa að lesa á forsíðu Fréttablaðsins að veiðimaðurinn á Stokkseyri hefði staðið fyrir skothríð, var þetta ekki meint skothríð? Fésbók vikunnar flett Smámyndavélar eru nánast út um allt eða svo finnst manni í það minnsta, sjá til að mynda straum slíkra mynd- skeiða inn á YouTube; það er sann- kölluð sprenging í slíkum græjum. Eitt frægast dæmi um notkun á smá- myndavélum af þessu tagi var það er sérsveitarmenn bandaríska hersins réðust inn á heimili Osama Bin Laden í Pakistan og á meðan gátu æðstu yf- irmenn Bandaríkjahers fylgst með í beinni útsendingu – hermennirnir voru með smávélar á hjálmunum sem sendu myndgögn í þyrlu og miðaði þeim síðan beint til Bandaríkjanna. Það voru þó ekki GoPro-vélar, heldur tegund sem sérsmíðuð er fyrir herinn. Löggæsla vestan hafs notar og slíkar vélar í æ meira mæli og eins slökkvi- liðsmenn og sjúkraflutningamenn og fleiri stéttir sem vilja skrásetja það sem verður á vegi þeirra. Ekki er kominn umboðsaðili fyrir GoPro-vélar hér á landi, en ýmsir hafa flutt þær inn og svo er auðvitað hægt að kaupa þær á netinu ef þær finnast ekki í búðum. Strípuð GoPro-vél, þ.e. ekki sérútgáfa fyrir brimbretti, hjálm eða mótorsport, kallast GoPro HD HERO Naked. Hún tekur vídeó í miklum gæðum, 1080p / 960p og 720p í HD- upplausn. Hún tekur 60 ramma á sek í 720p upplausn, en annars 30 ramma. Hún getur tekið allt að hálfan þriðja klukkutíma á hleðslu rafhlöðu og á 32 GB SD- korti má koma fyrir allt að níu klukkutímum af myndefni. Hægt er að nota vídeóvélina sem myndavél, nema hvað, og þá tek- ur hún fimm milljóna díla myndir með 2, 5, 10, 30 eða 60 sekúndna millibili sjálfvirkt - nóg er að smella af einu sinni og þá fer myndatakan í gang og getur gengið svo í tvo og hálfan tíma. Með fylgir tengi til að festa vélina við hjálm eða bílþak eða hvaðeina og einnig er með hýsing sem verndar vélina fyrir hnjaski. Með hýsingunni er vélin vatnsheld allt að 60 metra dýpi og að sögn tiltölulega auðvelt að gera við vélar sem verða fyrir skemmdum, skipta út einingum og jafnvel ekki svo snúið að skipta út linsunni, segja menn á net- inu sem það hafa reynt. Allskyns aukadót má kaupa við vélina, þrífæt- ur, sogskálar, klemmur og hvaðeina aukin- heldur sem hægt er að spenna vélarnar á sig, til að mynda á úlnlið eða upphaldlegg, nú eða ökkla eða bringu. Með fylgir USB-snúra og snúrur til að tengja við sjónvarpstæki og tilheyrandi. Hún er með innbyggðan hljóðnema. Rafhlaðan nær 80% hleðslu á klukkutíma með straumbreyti, en tekur hana tvo tíma í gegnum USB-tengi. Hún er ekki nema 4,4 x 6 x 3 að stærð; sjón er sögu ríkari. Smá og kná Það hlaut að koma að því að stafræn ljósmyndatækni næði svo langt að hægt væri að vera með almennilegar smámyndavélar. Það eykur svo notagild- ið umtalsvert þegar hægt er að festa vélina við nánast hvað sem er og hún þolir nánast hvað sem er, eins og til dæmis GoPro-vélarnar. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Augað alsjáandi Smámyndavélar eru allstaðar

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.