SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Page 19

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Page 19
10. júlí 2011 19 4,9% án uppgreiðsluákvæðis og 4,4% með uppgreiðsluákvæði. Uppgreiðsluákvæðið er hugsað þannig að ef þú ætlar að greiða umframgreiðslur eða ef þú ætl- ar að greiða lánið upp, greiðir þú ákveðna uppgreiðsluþóknun fyrir að vera með lægri vexti. Teljir þú að þú ætlir að vera með lánið til lengri tíma og ætlir ekki að breyta neinu, er þannig hagkvæmara að velja lægri vexti. Ef þú ætlar hins vegar að greiða lánið upp, áttu alls ekki að taka það. Þetta er svolítið nýtt fyrirbrigði; þú ert í rauninni að greiða til baka þann afslátt sem þú hefur feng- ið á vöxtunum, þannig að það kemur í rauninni ekki til bóta nema að það sé til langs tíma. Eins og dæmin sýna, þarf maður að eiga 5-10 milljónir í eigin fé á milli handanna ætli maður að taka nýtt lán og því eru yfirtökur eldri lána yfirleitt eina leiðin fyrir ungt fólk, ef það vill komast í eigið húsnæði. „Við vorum búin að leita mik- ið,“ segir Jóhann „og við höfð- um tekið eftir því að ef þú ert bara með nokkuð snotra eign, sem búið er að leggja eitthvað í , þá vekur hún alltaf athygli. En þar sem bankarnir bjóða ekki eins hagstæð lán og þeir gerðu fyrir hrun og veðsetning- arhámarkið hefur verið lækkað, er eini möguleikinn í dag fyrir ungt fólk að yfirtaka áhvílandi lán, sé það í boði. Maður hefur fundið fyrir því að þegar eignir eru á sölu með hagstæðum lán- um til að taka yfir og það mun- ar litlu á áhvílandi lánum og ásettu verði, er þeim sýndur mikill áhugi þar sem upphæðin sem borguð yrði í milli við yf- irtöku er viðráðanlega há,“ segir Jóhann. Ástþór Reynir Guðmunds- son, löggildur fasteignasali hjá Remax, tekur í sama streng og Jóhann. „Í dag er staða ungs fólks á fasteignamarkaði svolít- ið erfið. Ef þú ætlar að taka lán til fasteignakaupa, þarftu að eiga 20-30% af markaðsverði eignarinnar og þá eru yfirtökur eini kosturinn sem stendur eft- ir,“ segir Ástþór. „Þessi svo- kölluðu auðveldu kaup, þ.e. eignir sem fara á yfirtöku, eru mjög vinsælar eignir og verðið á svoleiðis eignum getur haldist uppi, þar sem þú ert eiginlega með betri söluvöru en ella,“ segir Ástþór og bætir við að dæmi séu um að fasteignir sem eru með lágu veðsetningarhlut- falli hafi lækkað í verði sökum óhagstæðrar veðsetningar. Yfirtökur Þrjár meginástæður eru fyrir því að fólk sækist í auknum mæli eftir því að yfirtaka fast- eignalán. Í fyrsta lagi voru lán, sem gefin voru út á árunum 2003 til 2007, á töluvert hag- stæðari kjörum en gengur og gerist í dag. Í öðru lagi losna þeir sem yfirtaka lán við ýmsan kostnað sem fellur til við lán- töku, s.s lántökugjald og stimpilgjald. Aðalástæðan fyrir yfirtökum er þó, eins og fram hefur komið, sú, að veðsetn- ingarhlutföll bankanna hafa lækkað og þar af leiðandi er gerð krafa um að fólk hafi meira eigið fé á milli handanna þegar það tekur fasteignalán. Allar þær lánastofnanir sem Morgunblaðið talaði við, sam- mæltust um það að hægt væri að taka yfir veðsettar og yf- irveðsettar eignir, svo lengi sem viðkomandi stæðist greiðslumat. Við hverja og eina yfirtöku gilda þó mismunandi skilyrði sem fara eftir því hvernig málum er háttað hjá þeim sem koma að málinu, þ.e. kaupanda og seljanda, og skoða þarf hvert mál út frá þeim for- sendum sem gilda í hverju máli fyrir sig. Óskar Hafnfjörð Auð- unsson, aðstoðarframkvæmd- arstjóri viðskiptabankasviðs Arion banka, bendir þó á að í einhverjum tilfellum sé verið að flytja til vandamál. „Það er ekki hægt að neita því að mjög stór hluti fasteignaviðskipta í dag fer fram með þeim hætti að fólk yfirtekur áhvílandi lán á eignum. Það má þó ekki gleyma því að maður er að ein- hverju leyti að flytja vandamál til. Þeir sem eru að selja þurfa væntanlega að kaupa sér aðra fasteign og þurfa þá að fjár- Morgunblaðið/Ómar

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.