SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Page 33

SunnudagsMogginn - 10.07.2011, Page 33
10. júlí 2011 33 sækja skóla. Hún fer reglulega í heim- sóknir í fátækrahverfin. Þannig er fylgst með og reynt að finna börn í verstu að- stæðunum. Stórt vandamál er að götu- börnin sniffa oft lím og afleiðingarnar af því geta verið skelfilegar. Við fráhvörf- unum hefur reynst best að gefa þeim nógu mikið að borða. Þeim líður svo illa af því að þau eru svöng, þannig að það að sniffa lím lagar ákveðna vanlíðan. „Eftir að þau eru komin undir okkar verndarvæng fara þau stundum aftur út af heimavistinni, því fíknin er svo mikil, segir Guðrún. „Þetta er barátta upp á líf og dauða og við biðjum fyrir þessum börnum. Við sjáum börn sem eru í raun- inni of langt leidd, en það er ástríða hjá Þórunni að ná börnunum áður en það er um seinan, jafnvel að hugsa fyrir því hvaða möguleika þetta barn á á því að fá stuðningsaðila. Stuðningsaðili vill kannski bara litla sæta stelpu en ekki götustrák sem er orðinn 12 eða 13 ára, en Þórunn hefur valið að hugsa ekki út í það heldur að ef þetta barn fái ekki hjálp núna, þá sé það um seinan – þetta sé síðasta tækifærið. – Eru mörg börn á biðlistum eftir heimavist? „Já, það eru langir biðlistar og á tíma- bili voru á annað þúsund börn á biðlista í Pakistan. Mörg þorp biðja okkur um að setja upp skóla. Á sumum stöðum er far- in sú leið að tekið er eitt barn úr völdum fjölskyldum þar sem ástandið er verst, en hin systkinin fá ekki skólavist. Svo að þörfin er botnlaus. Það er svakalega sárt að geta ekki gefið öllum börnum skóla- vist. Þetta eru svo sjálfsögð mannrétt- indi,“ segir Guðrún. Auk biðlistanna er búið að taka þús- undir barna inn í kerfið, en það vantar stuðningsaðila. Þau börn eru skráð á heimasíðunni www.abc.is og þar kemur upp mynd af þeim börnum sem vantar stuðningsaðila. Þar eru grunnupplýs- ingar um barnið og með einum smelli er hægt að styrkja barn. Þetta er eina heimasíðan á Íslandi sem virkar á þenn- an hátt. Það kostar 3.000 krónur á mán- uði að styrkja barn sem gengur í dag- skóla og 4.500 krónur fyrir barn á heimavist. „Þrýstingur er á að taka inn fleiri börn en við getum það ekki á með- an við höfum svona mörg óstudd,“ segir Guðrún. Hrunið og afleiðingar þess á hjálparstarfið Starfsemi ABC gekk ágætlega þar til krónan féll. Þetta eru eingöngu íslensk samtök og ekki í neinu alþjóðlegu sam- starfi, enginn bakhjarl og engir sjóðir sem hægt er að ganga í. Samtökin reiða sig á íslensku krónuna og eru ekki með höfuðstöðvar erlendis. „Við erum ein með þessi börn og ábyrgðin er hér á Íslandi,“ segir Guðrún. „Núna í kreppunni hafa um 700 börn misst stuðningsaðila. Það er ekki alltaf vel efnað fólk sem er að styðja börn og margir eru að gefa af skorti sínum. Þetta endurspeglar ástandið í þjóðfélaginu því flest þessara barna hafa misst stuðning- inn á þessu ári. Þetta er yfirleitt það sem fólk lætur síðast frá sér, því þetta er per- sónulegur stuðningur. Fólk hefur mynd af barninu og fær sendar einkunnir, bréf og teikningar frá börnunum,“ segir Guð- rún. Allur kostnaður við starfsemi ABC er í dollurum. Í janúar 2008 var dollarinn á 60 krónur, en ári seinna var hann komin í 130 krónur. Guðrún segir þetta hafa verið skelfilegt áfall. „Kannski ekki svo mikið fyrir skrifstofuna hér heima held- ur fyrir samstarfsaðilana sem sjá um börnin,“ segir hún. „Við stóðum til dæmis mjög tæpt í Kenía og það var mikil barátta um hvort starfið myndi lifa af. Það þurfti hreinlega að vísa börnum frá heimavistinni. Það var kannað vel hvar skástu aðstæðurnar voru, en mörg þessara barna voru komin aftur á götuna eftir að við sendum þau heim, svo við tókum mörg þeirra aftur inn. Við erum þarna með götubörn og þetta var orðið dagaspursmál. Það var að byrja ný önn haustið 2009 og aðstæður voru gríð- arlega erfiðar. Við vorum orðin stór- skuldug þarna úti og alltof lítið sent út af fjármunum. En þá gerðist kraftaverk. Við vorum búin að biðja og biðja – það er nú það sem maður gerir þegar maður ræður ekki við aðstæður. Þá er eina úr- ræðið að biðja. Þegar önnin var að hefjast sendi Þórunn mér tölvupóst sem ég sendi áfram á stuðningsaðila og hann rataði í fjölmiðla. Það söfnuðust fjórar milljónir og 300 þúsund í mánaðarleg framlög,“ segir Guðrún. Frá og með þessum degi bjargaðist starfið í Kenía og hefur ekki lent aftur í þessum skuldum. ABC-skólinn á Íslandi ABC-skólinn hefur verið starfræktur í tæp tvö ár og markmið kennslunnar er að auka þekkingu á þróunarhjálp og málefnum er varða hjálparstörf í þróun- arlöndum Skólinn er kjörinn fyrir þá sem vilja taka virkan þátt í hjálparstarfi. Skólinn stendur yfir í 10 vikur og svo býðst nemendum að fara í þriggja vikna vettvangsferð til Kenía. Nú þegar hafa sjötíu manns útskrifast úr skólanum. „Það hefur gefið fólki gríðarlega mikið að koma í þennan skóla, ég tala nú ekki um þá sem hafa haft tækifæri til að fara í vettvangsferðina,“ segir Guðrún. „Við viljum sjá miklu fleiri nemendur. Við viljum að allir komist í skólann og að hann sé ódýr. Ástæðan fyrir því að við getum haft þetta svona ódýrt er að allir kennarar gefa vinnuna sína. Við erum með nokkra lækna með okkur, sem kenna næringar- og sjúkdómafræði, sál- fræðinga, mannfræðinga, kennslufræð- inga og þróunarfræðinga og fólk með alls konar reynslu af starfi á vettvangi. Við leggjum mikla áherslu á það í skólanum að undirbúa fólk undir vettvangsferðina. Það heyrir sögur og skoðar myndir og þeir sem hafa farið lýsa aðstæðum,“ segir Guðrún. Á www.abcskolinn.is er hægt að sjá tilgang og markmið með skól- anum. En hverjar eru framtíðarhorfur þessara barna sem hafa verið styrkt í gegnum starfið, geta þau brotið sér leið út úr þessum hörmungum? „Það er náttúrlega ákveðin hjálp í því að komast í gegnum grunnskóla en það er ekki nægilega góð menntun til að fá góða vinnu,“ segir Guðrún. „Þess vegna reynum við eins og við getum að koma börnum í framhaldsnám eða í verklegt nám. Í Úganda erum við til dæmis með verkmenntaskóla og sá sem hefur verið að byggja skóla fyrir okkur undanfarið útskrifaðist úr okkar skóla, hann er bú- inn að stofna fyrirtæki og ráða aðra starfsmenn. Hann var barnahermaður áður en hann kom til okkar og var því bjargað úr hörmulegum aðstæðum.. Á Filippseyjum höfum við verið að styrkja börn í alls konar nám. Við vorum að opna nýjan skóla þar og forsvars- mönnum bæjarins, þar sem skólinn var reistur, var boðið að vera við opnunina. Þá kom í ljós að einn yfirmannanna var fyrrverandi styrktarbarn og var styrktur frá Íslandi í gegnum þetta starf. Þetta kom skemmtilega á óvart,“ segir Guðrún og brosir. Guðrún er óþreyjufull, vill áorka meiru og segir að lokum: „Mér finnst al- veg skelfilegt að vera bara með þessi tólf þúsund börn þegar ég veit af öllum þess- um fjölda götubarna. Framtíðarsýnin er rosalega metnaðarfull. Ég vil að öll götu- börn eignist heimili. Ég þykist þó vita að það sé ekkert sérlega raunhæf framtíð- arsýn. En ég hef bara svo mikla trú á því að Guð geti gert óvenjulega hluti í gegn- um venjulegt fólk.“ Guðrún Margrét með börnum á heimili ABC í Líberíu í janúar 2011. Guðrún Margrét með börnum í einum ABC-skólanum í Pakistan í október 2010.Morgunblaðið/Ómar Skannaðu kóðann til að skoða hvernig þú getur stutt barn gegn- um ABC-barnahjálp.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.