SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Side 10
10 17. júlí 2011
L
oksins virðast Bretar ætla að þora að láta til skarar
skríða gegn Rupert Murdoch, fjölmiðlakónginum sem
hefur um allt of langa hríð verið Baugsveldi breskra fjöl-
miðla. Murdoch var við það að sölsa undir sig Sky-
sjónvarpsstöðina þegar upp komst um strákinn Tuma og hans
hyski. Murdoch þurfti að hverfa frá yfirtökunni á BSkyB og fjöl-
miðlar hans sæta nú rannsókn. Scotland Yard hefur þegar hand-
tekið níu manns við lögreglurannsókn sína og feðgarnir Rupert
Murdoch og James, sonur hans þurfa að mæta fyrir breska þing-
nefnd í næstu viku.
Almenningur er ævareiður og stjórnmálamenn í Bretlandi vita
sem er, að nú er lag, að bregðast við ofurveldi Ástralans og draga
tennurnar úr skrímslinu. Þetta er vonandi bara upphafið. Það er
ljóst að breski fjölmiðlamark-
aðurinn þarf á miklum
hreinsunum að halda.
Blaðamenn blaðs í eigu
hans, hins 168 ára gamla News
of the World, höfðu sem sé
ástundað alls konar ólögmætt
athæfi, eins og það að hlera
með ólögmætum hætti far-
síma, í von um að finna þar
efni í fréttir, brjótast inn í tal-
hólf fórnarlamba glæpamanna
og jafnframt eru þeir grunaðir
um að hafa mútað breskum lög-
reglumönnum til þess að kom-
ast yfir upplýsingar í saka-
málum. Aðrir fjölmiðlar í eigu
Murdochs eiga von á svipuðum
rannsóknum, ekki bara í Bret-
landi, heldur einnig vestanhafs,
í sjálfum Bandaríkjunum.
BBC greindi frá því í vikunni
að bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Jay Rockfeller, for-
maður viðskiptanefndar Bandaríkjaþings, hefði lýst því yfir að
hann teldi nauðsynlegt að viðeigandi yfirvöld létu rannsaka hvort
blaða- og fréttamenn News Corporation (fjölmiðlafyrirtæki Mur-
dochs) í Bandaríkjunum hefðu gerst brotlegir með sama hætti og
kollegar þeirra í Bretlandi. „Ég hvet viðeigandi yfirvöld til þess að
ganga úr skugga um það að ekki hafi verið ráðist inn í einkalíf
Bandaríkjamanna með ólögmætum hætti,“ sagði Rockefeller m.a.
Óli Björn Kárason heldur úti vefmiðlinum T24. Í vikunni fjallaði
hann á athyglisverðan hátt um málið í pistli undir fyrirsögninni
„Hver er munurinn á því að stela tölvupóstum og hlera farsíma?“
Þar bar Óli Björn saman hvað væri að gerast í Bretlandi þessa dag-
ana við það sem gerðist alls ekki hér á landi, þegar sambærileg
lögbrot voru framin.
Í pisli sínum sagði Óli Björn m.a.: „Ljóst er að almenningur í
Bretlandi hefur fyllst reiði í garð fjölmiðla í eigu Ruperts Murdoch
og þessi reiði hefur gefið stjórnmálamönnum, sem áður þorðu
ekki að gagnrýna fjölmiðlaveldið, kjark til að stíga fram og segja
hingað og ekki lengra. Völd og áhrif þessa manns eru orðin of
mikil.
Það hefur verið athyglisvert að fygljast með þróun mála í Bret-
landi en um leið er ekki hægt annað en hugleiða hversu ólík við-
brögðin voru hér á landi þegar fjölmiðlar komust yfir stolna per-
sónulega tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur. Þá reis engin
reiðialda. Þá steig enginn stjórnmálamaður upp og sagði við fjöl-
miðlaveldið 365; hingað og ekki lengra. Þá hafði enginn kjark til
að halda því fram að siðlaust væri að fjölmiðlar nýttu sér per-
sónulegar upplýsingar sem voru illa fengnar.
Jafnvel Hæstarétti stóð á sama og taldi slíkt í góðu lagi.
Því vaknar þessi spurning:
Hver er munurinn á því að stela tölvupóstum frá einstaklingum
og að hlera og brjótast inn í farsíma þeirra, í leit að frétt?“
Vitaskuld hefur Óli Björn á réttu að standa. Það er enginn eðl-
ismunur á þessum lögbrotum, aðeins tæknilegur munur. Tölvu-
hakkarar brjótast inn í tölvur og stela gögnum, en símahakkarar
brjótast inn í síma og talhólf og stela gögnum. Söm er gjörðin og
jafnólögleg og siðlaus. Hér var enginn sem hafði kjark til þess að
að hjóla í 365 miðla, fjölmiðla Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Ekki
stjórnvöld, ekki lögregla, ekki dómstólar. Í ræðu og riti var þeim
sem stóðu fyrir lögbrotunum jafnvel hampað og þeir sem frömdu
glæpinn hafa aldrei þurft að svara fyrir brot sín, hvað þá að sæta
ábyrgð. Svo einfalt er það.
Baugsveldi
Bretlands
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Rupert
Murdoch
Jón Ásgeir
Jóhannesson
’
Vitaskuld hefur
Óli Björn á
réttu að standa.
Það er enginn eðl-
ismunur á þessum
lögbrotum, aðeins
tæknilegur munur.
7.00 Vaknaði við What a
wonderful world í útsetningu
trompetleikarans Joe Wilder. Ég
er að gera tilraunir með lög sem
gott er að vakna við og held að
ég sé með kandidat.
7.10 Vakna við sama lag. Ýti
aftur á snús.
7.20 Hjónin fara á fætur.
Vekja börnin þrjú. Sú yngsta (2)
vaknar syngjandi glöð. Yngri
strákurinn (6) vaknar stuttu
seinna. Sá elsti (11) er vakinn af
hinum tveimur. Heimilisfólkið
klæðir sig.
7.40 Seríos og mjólk fyrir
börnin. Kaffi og mjólk fyrir
konuna. Ég stelst í smá seríos.
8.30 Linda, það er konan,
keyrir þá yngstu í leikskólann
og eldri bræður hennar í sund.
Ég set á mig hjálminn, kveiki á
RunKeeper-forritinu sem mælir
hvert ég fer og hve hratt, og
hjóla af stað í vinnuna. Forritið
spilar lög af lagalista iPhone-
símans. Flautukonsert Vivaldis í
C-dúr er ljúfur en maður hjólar
heldur hægt við hann. Sódóma
Theme með Ham hvetur hjól-
reiðamanninn betur.
Ég er á milli 10 og 20 mínútur
að hjóla í vinnuna – vindurinn
ræður mestu um það. Leiðin
liggur í gegnum Vogahverfið
niður að Sæbraut. Þrátt fyrir
minna skjól er miklu þægilegra
að hjóla eftir tilbúnum hjólastíg
en upp og niður gangstétt-
arbrúnir. Eins eru færri gatna-
mót á þeirri leið og því fer mað-
ur hraðar yfir.
8.40 Stoppa til að taka Esju-
mynd (alltaf á sama stað). Það er
komið allgott safn af Esjumynd-
um sem verða að einhverju
stærra á árinu … eða næsta
(flickr.com/thorlakur).
8.42 Ég stöðva Runkeeper (12
mínútur og 10 sekúndur, 4,75
km) og held á hjólinu upp á
skrifstofuna á annarri hæð. Hef
vinnudaginn á stóru vatnsglasi
og bolla af engifertei. Kaupi
miða á Harry Potter í kvöld fyrir
mig og eldri strákinn minn og
held áfram með verkefni gær-
dagsins, sem ég ætla að klára
áður en ég fer í frí á morgun.
12.10 Hádegismaturinn er
tekinn með vinnufélögunum.
Við ætlum að prófa einhvern
nýjan stað og röltum upp
Laugaveginn. Lesum matseðla
en verð fælir mig og kolvetni
annan. Endum á Sólon, eins og
oft áður. Dýrara en ég hefði kos-
ið en fiskurinn er góður þar.
15.55 Hjóla aftur heim eftir
vel heppnaðan vinnudag. Þar
sem vindurinn er lítill tek ég
Sæbrautina alla leið (14 mínútur
og 27 sekúndur, 5,87 km). Skil
hjólið eftir í Spilavinum á Lang-
holtsvegi, Linda er önnur eig-
endanna, og skipti yfir í bílinn.
16.20 Sæki dótturina á leik-
skólann og yngri strákinn til
ömmu sinnar. Skutla honum
beint til vinkonu hans (sem
spurði eftir honum gegnum
tölvupóst – magnað).
17.00 Sest í sófann heima
með dótturinni að horfa á Dóru
landkönnuð og Línu langsokk.
Stelst til að vinna í fartölvunni á
meðan.
18.20 Í kvöld er spilakvöld
hjá Spilavinum (Linda að kenna
á spil) og ég á leiðinni í bíó, þá
sækjum við grillaðan kjúkling í
matinn og bökum franskar með
honum. Mamma passar yngri
börnin tvö á meðan.
19.40 Egilshöll. Harry Potter
bíður okkar.
22.40 Sáttir feðgar komnir
heim. Pistill skrifaður fyrir
Moggann.
23.30 Elsti sonurinn sendur í
háttinn.
23.50 Elsti sonurinn fer í
háttinn.
0.30 Linda kemur heim.
Spilakvöldið gekk vel. Við horf-
um á einn White Collar fyrir
svefninn.
1.20 Fer of seint að sofa, eins
og venjulega.
Dagur í lífi Þorláks Lúðvíkssonar grafísks hönnuðar
Morgunblaðið/Eggert
Sæbrautin á 14.27
Sumarið hefur lagst á íbúa Sófíu,
höfuðborgar Búlgaríu, af fullum
þunga og á föstudaginn fór hita-
stigið upp í 34 gráður á Celcius.
Þótti ýmsum nóg um. Til að
mynda kveinkaði nashyrning-
urinn Chico sér undan hitanum
og brá starfsmaður í dýragarði
borgarinnar fyrir vikið á það ráð
að sprauta vatni á kappann.
Ekki verður annað séð en sá fer-
fætti hafi kunnað dembunni vel.
Veröldin
Chico
kældur