SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Side 12
12 17. júlí 2011
Mánudagur
Örn Úlfar Sævarsson
Hefur ferðaþjón-
ustan skotist fram úr
Líú í keppninni um
frekustu atvinnu-
greinina?
Elma Lísa Gunn-
arsdóttir
Flatey á morgun,
hlakka til!
Gunnar Hersveinn
Speki dagsins: Brjóttu regluna
reglulega, annars ertu reglulega
óspennandi. /gh
Þriðjudagur
Andrés Jónsson
Er að búa til lista
yfir fjármálafyrirtæki.
Vefsíður þeirra eru
allar eins með mynd-
um úr íslenskri nátt-
úru. #andlausfjarmalafyrirtaeki
Gerður Kristný
Í anda orðanna
,,borðstofuborð“ og
,,pönnukökupanna“
baka ég nú ,,múffu-
formamúffur“. Eng-
ar bollakökur hér!
Fésbók
vikunnar flett
Einu sinni sem oftar er Steve Jobs
mærði iPad notaði hann tækifærið til
að fara niðrandi orðum um keppi-
nauta Apple, þar á meðal Samsung og
sjötommu spjaldtölvu þess, Galaxy
Tab; gott ef Jobs sagði ekki að allir
þeir sem héldu að 7" spjaldtölva væri
málið væru í tómu rugli.
Það má svosem taka undir það að
notagildi spjaldtölvu með 7" skjá sé
minna en vélar m,eð 10" skjá og gef-
ur reyndar augaleið. Að því sögðu þá
er hægt að gera margt það sem menn
fást við á iPad á 7" Galaxy Tab og það
meira að segja sársaukalítið eða
-laust. Á móti kemur svo að spjald-
tölva með minni skjá fer betur í vasa
og í hendi, þ.e. oft er þægilegra að
hafa minni vél við höndina.
Víða er hægt að kaupa Samsung
Galaxy Tab með 7" skjá hér á landi og
víðar og Samsung er ekki að heykjast
á því að selja slík tól, því ný gerð
hennar er væntanleg í haust og reynd-
ar spjaldtölva með 10,1" skjá líka.
Tab-inn er dálítið þungur í vasa, en fær
annars bestu meðmæli.
Samsung Galaxy Tab
Skjástærðin
skiptir ekki
öllu máli
Já, þetta er prentari, ekki Blu-Ray-
spilari eða fjarskiptamiðstöð. Envy-
prentarinn er nokkuð þungur, tæp
átta kíló, rúmir 40 cm á breidd, 10 cm
á hæð og 33 cm á dýpt. Hönnunin er
vissulega glæsileg og þeir HP-menn
státa sig einnig af því að í prent-
aranum er ekki vottur af PVC-efni..
Þegar heimilið er að fyllast af
lausum tækjum, fartölvum, far-
símum, spjaldtölvum og svo
framvegis, er vesen að þurfa að
senda allt inn á „prentaratölv-
una“ til að prenta út. Það er því
óneitanlega kostur, og svín-
virkar, að hægt er að prenta út
yfir netið; prentarinn birtist á
þráðlausu neti heimilisins, eða
fyrirtækisins, og hægt er að
senda myndir eða önnur skjöl á
hann. Svo má líka senda hon-
um tölvupóst og láta skjalið
fylgja með sem fylgju.
Sem heimilisprentari dugar hann vel, afbragðsvel reyndar, en trúað gæti ég að
einhverjum þætti hann fullseinvirkur fyrir fyrirtækjanotkun. Hann er nefnilega
ekki nema miðlungi hraðvirkur, en ekkert slor þó. Sem ljósmyndaprentari skil-
ar hann ágætis myndum, toppar ekki framköllunarþjónustu, en dugir vel fyrir
myndir í fjölskyldualbúmið.
Það þarf væntanlega ekki að taka fram að prentarinn er blek-
sprautuprentari. Hann notar eitt svart blekhylki og eitt með
þremur litum, gulum, rauðum og bláum. Það ku vera ódýrari
leið en að vera með mörg litahylki eins og í heimilisprent-
urunum tveim, sem báðir eru frá HP, og víst er það mun einfald-
ara en að sullast með hina litina. Svo getur maður víst fyllt á
sjálfur með smá lagni.
Allt í einum pakka
Sú var tíðin að prentarar voru bara prentarar, en svo tók allt að renna saman
og endaði í græjum eins og til að mynda HP Envy 100 – prentari, skanni og
ljósritunarvél sem nota má yfir þráðlaust net.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is