SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Page 33

SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Page 33
Í sælureit fjölskyldunnar á Norðurlandi er mikið og fjöl- breytt fuglalíf. Áhugaverðast finnst mér þó að fylgjast með eftirlætisfuglunum mínum; kríunni, lóunni og rjúpunni. Þær eru búnar að klekja út eggjunum sínum og keppast nú við að finna handa þeim æti og hjálpa þeim að bjarga sér af eigin rammleika. Krían er svo fallega straumlínuhönnuð og létt. Hún er af- reksmóðir sem flýgur frá suðurheimskautinu til að verpa á norðurhjara. Vegna þess hve metnaðarfullri flugáætlun hún fylgir ferðast hún létt. Hún verpir tveimur eggjum en venjulega kemst ekki meira en einn ungi á legg. Fleiri munna getur hún ekki mett, jafnvel þó maki hennar sinni fæðugjöfinni af sama ákafa. Krían er fræg fyrir að verja varpið sitt grimmilega. Aleiga hennar liggur í einum unga svo skilj- anlega sættir hún sig ekki við klunnalega risa sem þramma um og sjá ekki bústna hnoðrana sem ungarnir hennar eru. Svolítið stressuð týpa sem þarf að hafa mikið fyrir því að leita ætis, getur ekki geymt mikinn forða í gogginum fyrir ungann sinn sem hún ver grimmilega. Rjúpan svo bústin og búsældarleg með 10 unga hóp vapp- andi um móann. Heimakær fugl sem Íslendingar eiga í sér- stöku sambandi við. Ár eftir ár verpir hún á svipuðum slóðum og á eftir henni fylgir óvenju myndarlegur ungahópur. Þessir ungar þurfa ekki að fljúga langar vegalengdir þegar kólna tek- ur og eru því líklega öruggari undir verndarvæng múttu sinn- ar. Það sem rjúpan heimakæra hefur fram yfir aðra fugla er fallegur fataskápur. Hún er pjattrófa og móðurleg fram í „fið- urgóma“. Sú sem syngur fugla fegurst er lóan snoppufríða. Lóan er al- vöru díva sem kemst alltaf í fréttirnar þegar hún kemur til landsins. Þessi langfleygi fugl flögrar um móa og mela í ís- lensku sumri og gleður okkur hin ósegjanlega með söng sín- um. Lóan eignast 4 unga á sumri sem henni tekst að gera fleyga og fullmótaða til langferðar að hausti. Hún er klók blessunin og nálgist einhver hreiðrið hennar villir hún fyrir honum með því að þykjast vængbrotin, rétt eins og hún segi „sjáðu hvað ég er auðveld bráð“ en flýgur svo í burtu þegar búið er að draga kjánann á asnaeyrunum. Hún er nútímamóðir sem tekst bæði að sinna ungunum sínum óaðfinnanlega ásamt því að vera veraldarvön prímadonna. Furðufuglinn freknótti liggur í móanum og hlustar á fuglana syngja, kvaka, hneggja, ropa og garga. Andar að sér ilminum af gróðrinum í blóma og horfir á ung- ana sína vappa um í kringum sig í ímyndunarleik þar sem hraunkambar eru kastalar og virki sem í leynast drekar og riddarar. Hér erum við gestir fuglanna. Hér erum það við sem erum hættulegir furðufuglar. Lóan er alvöru díva sem kemst alltaf í fréttirnar þegar hún kemur. Morgunblaðið/Ómar Fuglalíf er móðurlíf Móðurhlutverkið Agnes Ósk Sigmundardóttir ’ Furðufugl- inn frekn- ótti liggur í móanum ... 2003 en gaf síðar út plötur undir hljómsveitarnafninu Roachford en Word of Mouth kom út 2006. Roachford hefur verið í hljóð- veri að undanförnu og kemur platan Addictive út í september. Syngur með Mike + The Mechanics Hann er virkur í tónleikahaldi og spilar þá helst í Evrópu og Ástralíu. Af myndböndum á YouTube að dæma hefur Roach- ford breyst merkilega lítið og er kraftmikill á sviði og röddin hljómfögur. Roachford gerir það líka gott með hinni góðkunnu hljómsveit Mike + The Mechanics. Hann syngur á nýjustu plötu sveit- arinnar, The Road, sem kom út í apríl á þessu ári. Roachford er núna á tónleikaferðalagi með hljómsveitinni og gefast þó- nokkur tækifæri til að sjá sveit- ina á sviði. Næst spilar Roachford með sinni eigin sveit í Bonn þann 26. ágúst þar sem hann hitar upp fyrir Texas. Síðan fer hann í langt tón- leikaferðalag um Bretland, Þýskaland og Austurríki þegar Addictive kemur út í haust. ingarun@mbl.is Plötuumslag lagsins sem gerði Roachford frægan. 17. júlí 2011 33 Svarthvítt og seiðandi. Skannaðu kóðann til að horfa á lagið Cuddly Toy (Feel For Me).

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.